Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 2019 29
sem heitir Fossavatn. Sumarbjórinn
okkar heitir Sæunn dansar mangó.
Hann dettur svo út í haust og þá
kemur jólabjórinn inn.“
– Þið eruð þá stöðugt að gera
tilraunir með nýjungar?
„Já, við reynum samt alltaf að
eiga á lager fjórar gerðir sem við
höldum okkur við sem grunn.
Síðan erum við með tvo bjóra sem
við leyfum okkur að leika okkur
aðeins með. Þá erum við að horfa
á árstíðabundna bjóra, eins og
jólabjór, páskabjór og sumarbjór.“
Hákon segir að ekki liggi nein
föst stefnumörkun að baki hvernig
bjór þeir framleiði. Ef honum og
bruggaranum, Vali Norðdahl, detti
í hug að prófa eitthvað nýtt, þá geri
þeir einfaldlega tilraun.
„Við erum ekki að ofhugsa
þetta neitt og ekki að reyna að
stæla beint erlendar bjórastefnur.
Hugmyndirnar koma einfaldlega
úr öllum áttum. Þannig var það t.d.
með mangóbjórinn. Við smökkuðum
einhvern erlendan mangóbjór sem
okkur langaði til að gera aðeins
öðruvísi. Úr varð bjórinn Sæunn
dansar mangó.“
Vatnið úr Vestfjarðagöngum var
lykillinn að framleiðslunni
Hákon segir að lykillinn að bjór
framleiðslunni sé að sjálfsögðu gott
vatn. Þegar Vestfjarðagöngin voru
grafin á árunum 1991–1996 urðu
miklar tafir á framkvæmdum vegna
stórra vatnsæða sem opnuðust.
Þegar til kom reyndist vatnið íbúum
Ísafjarðar mikill happafengur, en þar
var áður notast við yfirborðsvatn.
Í dag er allt neysluvatn á svæðinu
fengið úr göngunum. Í bjórinn
er því notað ákaflega gott og
tært lindarvatn sem á upptök sín
í fjöllunum við Breiðadals og
Botnsheiðar. Vatnið er síað og
algerlega hreinsað í gegnum 14
milljón ára gömul hraunlög.
Samkvæmt lýsingu Jóns Reynis
Sigurvinssonar jarðfræðings þá
skapar staðsetningin og einstakar
jarðfræðilegar aðstæður náttúru
lega lágt steinefnainnihald og hátt
basískt jafnvægi. Vatnið er því
án aukefna sem gefur hreinna og
frískara bragð.
Dokkubjórinn vinsæll meðal
gesta af farþegaskipunum
Til Ísafjarðar streymir mikill fjöldi
erlendra ferðamana sem koma
þangað með farþegaskipum á hverju
sumri. Með skipunum komu um
130.000 manns í sumar og leið þeirra
sem fara í land liggur einmitt rétt hjá
Dokkunni brugghúsi. Segist Hákon
reyndar ekki hafa tölu á hversu
margir ferðamenn af þessum skipum
komi við hjá þeim að smakka bjór,
en þeir skipti mörgum þúsundum
á sumri, líklega nálægt tíu þúsund.
Gerir lukku meðal „stálpaðra“
fermingarbarna
Þegar Bændablaðið tók hús á Hákoni
í Dokkunni fyrir skömmu voru þar
líka í heimsókn fermingarbörn
sem fædd voru 1955 og fermdust
í Ísafjarðarkirkju hjá séra Sigurði
Kristjánssyni, föður séra Agnesar
Sigurðardóttur, núverandi biskups
Íslands. Ekki bar á öðru en að
fermingarbörnunum líkaði ísfirski
bjórinn vel, enda af mörgum
afbrigðum Dokkubjórs að taka.
Reyndar var heldur ekki annað að sjá
þennan sama dag en fermingarbörn
fleiri árganga séra Sigurðar hafi
líka komist á bragðið og þætti
ísfirski mjöðurinn býsna góður.
Kannski ekki beint í strangasta anda
kristilegs uppeldis, en prúðmennska
og hófstillt framkoma var þó
allavega til fyrirmyndar. Aðdáun á
framtakssemi eigenda Dokkunnar
leyndi sér heldur ekki í svip þessara
vel stálpuðu fermingarbarna.
Virðist upplifunin Ísafjarðar
púkanna svipuð og hjá þúsundum
annarra gesta sem heimsótt hafa
brugghúsið, en það er í gönguleið
ferðamanna af skemmtiferðaskipum
sem heimsækja Ísafjörð. Á
TripAdvisor má m.a. finna fjöl
margar hástemmndar lýsingar um
ágæti Dokkubjórsins. Um 88%
þeirra segja Dokkubjórinn vera
frábæran eða „excellent“.
„Stenst samanburð við bjór frá
hvaða örbrugghúsi sem er“
Einn gesturinn sagði t.d. í sinni
athugasemd í lauslegri þýðingu:
„Ísafjörður er heillandi bær og
vel þess virði að heimsækja. Dokkan
brugghús er staðsett nálægt þar sem
skemmtiferðaskipin leggjast að
bryggju og því frábær staður til að
klára skoðunarferðina um þorpið.
Þeir eru að brugga frábæran bjór
sem stenst samanburð við bjór frá
hvaða örbrugghúsi sem er, en ég bý
á heimasvæði mikilla örbrugghúsa
í Portland og Oregon.“
Margar fleiri athugasemdir af
svipuðum toga má finna um Dokkuna
á vef TripAdvisor og sannarlega ekki
amalegt að fá slík ummæli.
Hafa vart undan en ætla ekki að
fara of geyst í stækkun
„Þegar skemmtiferðaskipin koma er
þéttsetin hjá okkur gestastofan. Þó
við höfum varla undan að framleiða
bjór, þá er stækkun ekki enn komin á
teikniborðið. Auðvitað er alltaf verið
að skoða hlutina, en menn verða líka
að passa sig að fara ekki of geyst,“
segir Hákon.
– Hugmyndafræðin á bak við
staðbundin örbrugghús, byggir hún
ekki einmitt á að nýta kosti þess að
vera með lítil umsvif?
„Jú, það getur verið kostur að
vera lítill. Það er annaðhvort að
vera með þægilega lítið brugghús
eða að vera þá það stór að maður
njóti hagkvæmni stærðarinnar. Þá
kemur margt annað inn í sem er
kostnaðarsamt og vandasamt í svona
rekstri, eins og markaðssetning og
dreifing.
Í Samtökum íslenskra
handverksbrugghúsa
Dokkan brugghús er í Samtökum
íslenskra handverksbrugg húsa
sem voru stofnuð 2018. Samtökin
hyggjast standa vörð um hagsmuni
handverksbrugghúsa.
Vilja lægra áfengisgjald á
framleiðslu örbrugghúsa
Hákon segir að núverandi
áfengisgjald sé mjög íþyngjandi
fyrir örbrugghúsin. Því berjast
samtökin Fyrir því að smærri
áfengisframleiðendum verði veittur
afsláttur af áfengisgjaldi í samræmi
við venjur og heimildir frá Evrópu
sambandinu.
Sala áfengis í matvöruverslunum
tvíeggjað sverð
Bent hefur verið á að hugmyndir um
að heimila sölu áfengis í matvöru
verslunum sé kannski ekki sérlega
vel ígrundað dæmi. Þó lagafrumvörp
um slíkt hafi verið lögð fram undir
yfirskini aukins frelsis og hagræðis
fyrir neytendur og meira valfrelsis, þá
geti raunin orðið þveröfug. Telja sumir
að slíkt geti hæglega orðið banabiti
flestra örbrugghúsa í landinu því í slíku
umhverfi ráði óhjákvæmilega afl þeirra
stærstu og sterkustu á markaðnum. Um
leið myndi tegundaúrvalið minnka
stórlega frá því sem nú er í verslunum
ÁTVR og val neytenda því verða
ansi mikið fátæklegra. Samfara því
glötuðust þau atvinnutækifæri og
þekking sem hafa verið að skapast
í framleiðslu handverksbrugghúsa á
undanförnum árum
Fái að selja framleiðslu sína
beint til almennings
Samtök íslenskra handverks
brugghúsa vilja að framleiðendur
fái að selja framleiðslu sína beint
til almennings út úr verksmiðjum
sínum eins og tíðkast á öðrum
Norðurlöndum þar sem ríkið hefur
einkaleyfi á áfengissölu. Samtökin
vilja einnig standa vörð um aðgengi
handverksbrugghúsa með vörur
sínar á bari og í verslanir ÁTVR.
Þetta getur skipt lítil handverks
brugghús miklu máli. Þó Dokkan
sé staðsett í aðeins í um 200 metra
fjarlægð frá vínbúð ÁTVR á Ísa
firði og geti vísað áhugasömum
kaupendum þangað, þá er það ekki
svo með fjölda annarra brugghúsa.
Sum eru uppi í sveit, eða á stað þar
sem jafnvel geta verið tugir eða
hundruð kílómetra í næstu vínbúð.
Fyrir slík brugghús getur orðið ansi
snúið að koma sinni framleiðslu á
framfæri. Því getur skipt sköpum
fyrir handverksbrugghúsin að þau
fái að selja sína framleiðslu beint
til almennings.
Handverksbrugghús eru staðsett
í öllum fjórðungum landsins. Aðilar
að Samtökum íslenskra handverks
brugghúsa eru:
Austri brugghús Egilsstaðir
Bastard / brewpub Reykjavík
Beljandi brugghús
Breiðdalsvík
Bjórsetur Íslands Hólar í
Hjaltadal
The Brothers Brewery
Vestmannaeyjum
Brugghús Steðja Borgarfirði
Brugghúsið Draugr Hvalfirði
Bruggsmiðjan Kaldi
Árskógssandi
Bryggjan Brugghús Reykjavík
Dokkan brugghús Ísafirði
Eimverk distillery Garðabæ
Gæðingur Skagafirði
Húsavík Öl Húsavík
Jón Ríki brewery & restaurant
Höfn í Hornafirði
Malbygg Reykjavík
RVK Brewing Co. Reykjavík
Segull 67 brewery Siglufirði
Smiðjan brugghús Vík í
Mýrdal
Ægir brugghús Reykjavík
Ölverk Hveragerði
Ölvisholt brugghús
Góð samvinna
„Við vinnum mikið saman hjá litlu
brugghúsunum. Það er gott að geta
leitað þannig ráða hjá öðrum. Litlu
brugghúsin hafa líka sett sterkan
svip á mannlífið á landsbyggðinni.
Samtökin gefa út kort eða eins konar
vegvísi fyrir ferðamenn. Maður
verður vel var við að fólk keyrir
hringinn um landið og kemur við
í litlu brugghúsunum. Við njótum
góðs af því og höfum fengið góðar
viðtökur síðan við byrjuðum og
framtíðin er björt,“ segir Hákon
Hermannsson.
Dokkan er örnefni sem þekkt
er hér í bæ. Svæðið þar sem
smábátahöfnin er, er í daglegu
tali kallað Dokkan af innfæddum
Ísfirðingum. Líklegt er að þetta
nafn sé dregið beint af enska
orðinu „dock“ sem merkir
skipakví.
Það var árið 1857 sem maður að
nafni Hjálmar Jónsson, frá Kambi í
Trékyllisvík, byggði kvína. Hjálmar
hafði verið sjómaður og flutti til
Kaupmannahafnar til að stunda
sjóinn, hann nam síðan skipasmíðar
þar ytra. 1852 kom hann svo til Ísafjarðar og var mikið í skipaútgerð og verslunarrekstri við
annan mann (Torfi Halldórsson). Kunnu Ísfirðingar vel að meta að fá þennan skipasmið
til bæjarins.
Mikill framfarahugur var í bænum á þessum árum. Hjálmar réðst í að byggja (Dokkuna)
skipakví sem hann lét grafa inni í landi og var þetta stærri og fullkomnari kví en áður
hafði verið gerð hér á landi. Með þessu fékkst öruggt vetrarlægi fyrir hákarlaskipin,
einnig spöruðu eigendur skipa sér mikið erfiði sem fylgdi því að draga skipin á kamb við
vertíðarlok og setja þá svo aftur fram í vertíðarbyrjun.
Þetta var mikið mannvirki á þessum tíma, hún var með tvöföldum tréveggjum og á
milli þeirra var fyllt með grjóti og möl. Allt að 7 skip gátu legið þarna en stærðin var um
7–800 fermetrar. Hjálmar flutti síðar til Kaupmannahafnar aftur eftir að hafa selt Ásgeiri
Ásgeirssyni Dokkuna, þar dvaldi hann sín síðustu æviár.
Ásgeir Ásgeirsson var einn af burðarásum í atvinnulífinu hér á þessum árum og
notaði hann kvína fyrir skipin sín. Það var svo 1920 sem ákveðið er að fylla upp í kvína
og byggja geymslur og fiskhjalla á uppfyllingunni, síðar var byggð bryggja út frá kvínni
sem var alltaf kölluð Dokkubryggjan.
DOKKAN
Dokkan á Ísafirði frostaveturinn mikla 1918. Bátar frosnir fastir í ísnum
á Sundunum í Skutulsfirði.
Bólverkið á fremsta hluta Dokkunnar
skömmu áður en það hvarf undir
uppfyllingar vegna framkvæmda við nýja
Sundahöfn.
Hákon segir að ekki liggi nein föst stefnumörkun að baki hvernig bjór þeir framleiði. Ef honum og bruggaranum,
Vali Norðdahl, detti í hug að prófa eitthvað nýtt, þá geri þeir einfaldlega tilraun.
Dokkubjórinn er látinn gerjast í tönkunum undir þrýstingi og þá samlagast
náttúrulega kolsýran sem myndast bjórnum betur en kolsýra sem hleypt
er á hann eftir á.