Bændablaðið - 26.09.2019, Qupperneq 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 2019 31
2019 er besta sumarið
Guðmunda segist muna eftir mörgum
hlýjum og góðum sumrum en það
toppi ekkert sumarið í sumar, sumarið
2019.
„Ég hef ekki heyrt svona hlýjar
tölur í veðurfréttunum eins og þær
hafa verið í sumar, þetta var einstakt
sumar, sem verður lengi í minnum
haft.“
Engin matarsóun í gamla daga
Eins og áður segir þá er Guðmunda
ein af tíu systkinum. Hún segist hafa
fengið gott uppeldi og heimilið hafi
verið eins og leikskóli enda mikið að
gera á stóru heimili með öll börnin.
„En það þurfti ekki að vera að
tala um neina matarsóun á þeim
tíma, það var ekki inni í myndinni,“
segir Guðmunda og hlær, allt var
borðað, engum mat var hent. Sjálf
var hún í farskóla þar sem kennt var
í hálfan mánuð í Kálfholti og hálfan
mánuð í Vettleifsholtshverfinu, bæði
í Ásahreppi.
Ísland er nógu stórt
Guðmunda er næst spurð hvort
hún hafi komið einhvern tímann til
útlanda og hvort hún hafi ferðast
mikið um landið.
„Nei, Ísland er nógu stórt handa
mér, ég hef aldrei farið til útlanda.
Ég hef ekkert ferðast um landið,
eini staðurinn sem ég hef komið á
fyrir utan staði hér á Suðurlandi eru
Vestfirðir, annað hef ég ekki farið.
Þegar ég fór á Vestfirðina var farið
með rútu vestur til Arngerðareyrar
og með Fagranesinu vestur á Ísafjörð.
Við fórum svo til baka með flugvél.
Þetta er eina ferðin mín um Ísland, ég
hef ekki farið meira síðan, mér hefur
alltaf fundist best að vera heima.“
Hlustar alltaf
á veðurfréttir í útvarpi
Guðmunda segist reyna að fylgjast
með þjóðmálunum eins og hún geti,
hún horfi reyndar lítið sem ekkert
á sjónvarp, það sé helst útvarpið
sem hún hlusti á, þá einna helst
veðurfréttir, hún vill ekki missa af
þeim. Guðmunda hristir höfuðið
þegar hún er spurð út í Alþingi
Íslendinga og ástandið þar.
„Ég vil nú heldur hafa færri
flokka en fleiri, þeir eru alltof margir
í dag,“ segir hún.
Á móti orkupakka þrjú
„Ég er á móti því að við séum að
fara að flytja út orku, við höfum
ekkert svo mikla orku til að flytja til
annarra landa. Af hverju ekki frekar
að setja upp áburðarverksmiðju hér
heima eða einhvern annan iðnað,
sem við þurfum á að halda? Ég er
ekki samþykk orkupakka þrjú,“
segir Guðmunda aðspurð um hennar
skoðun á því máli.
Aldrei snert á tölvu
Guðmunda er næst spurð út í
tæknina, hvort hún hafi nýtt sér
hana í búskapnum með tölvu og
góðu netsambandi í sveitinni?
„Nei, ég er alveg laus við það en
í tengslum við það finnst mér mjög
slæmt að maður sé hættur að fá póst
yfir það sem maður á að borga, það
fer allt í gegnum tölvur, ég á enga
tölvu og kann ekki á tölvu. Það er
þó búið að leggja ljósleiðara inn í
húsið mitt, ég nota hann ekki, en
það kemur kannski einhver inn í
húsið síðar meir sem þarf á slíkum
búnaði að halda,“ segir Guðmunda
og brosir.
Ekki hrifin af Trump
„Ég er ekki beint hrifin af karl
anganum, hann reynir sjálfsagt
að gera eitthvað eftir besta viti.
Ég verð að játa það að ég er ekki
alltaf sammála honum, ætli hann
reyni ekki að kaupa Ísland líka eins
og hann vildi kaupa Grænland,“
segir Guðmunda og brosir út í
annað, aðspurð um skoðun hennar
á Donald Trump, forseta Banda
ríkjanna.
Framtíðin björt
Guðmunda er að lokum spurð
hvernig framtíðin leggist í hana
nú þegar kýrnar eru ekki lengur á
bænum og aldur hennar farinn að
segja til sín.
„Ég vona bara að menn og
þjóðir hafi vit á því að gera sitt
besta. Við höfum það mjög gott á
Íslandi að geta lifað í friði og spekt.
Kannski finnst mér stundum of mikil
heimtufrekja því við höfum nóg til
allra hluta.
Peningar eru ekki allt sem við
þurfum til að lifa, það eru breyttir
tímar, það var erfitt hjá bændum
í gamla daga en vélvæðingin létti
störfin mikið. En ég skil ekki þá
bændur sem vilja vera svo stórhuga
að þeir vilja vera með allra mest,
það er gott að hafa nóg. Græðgin
er of mikil. Það mætti vera minna
af því. Ég hvet ungt fólk til að hefja
búskap ef það getur, það er gaman
að vera bóndi og gefandi. Ég óska
öllum Íslendingum alls góðs.
Ég er stolt af því að vera
Íslendingur og þakka Guði fyrir
það. Mér var kennt sem ungri
konu að erfið leikar væru bara til
að sigrast á þeim, ekki ætti að gefast
upp fyrir þeim,“ segir Guðmunda
að endingu.
/MHH
Guðmunda segist ekki hafa upplifað eins gott sumar í gegnum þau 87 ár sem
hún hefur lifað eins og sumarið í sumar, það hafi verið einstakt á Suðurlandi.
Mynd / MHH
Guðmunda hefur fengið fjölda
viður kenninga fyrir góðan
árangur í búskap sínum, m.a. frá
Landssambandi kúabænda árið
2000. Mynd / Úr einkasafni Guðmundu
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350
limtrevirnet.is
Íslenskar einingar
fyrir íslenskt veðurfar
Hjá Límtré Vírnet færðu hinar einu og sönnu Yleiningar
- stálsamlokueiningar með steinullareinangrun á milli.
Hagkvæm, umhverfisvæn og myglufrí byggingarlausn.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Kynntu þér Yleiningar á limtrevirnet.is.
Söluskrifstofur - Lynghálsi 2 - 110 Reykjavík
Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes
Netfang - sala@limtrevirnet.is
Hvar auglýsir þú?
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
45,6% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
20,4%
45,6%
á landsbyggðinniá höfuðborgarsvæðinu
29,5%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára.
MANNOL TILBOÐ T IL BÆNDA
UMBÚÐIR TILBOÐSVERÐ FULLT VERÐ
5 Lítrar 2.490,- kr. 3.495,- kr.
20 Lítrar 8.990,- kr. 12.495,- kr.
60 Lítrar 25.900,- kr. 33.995,- kr.
Smiðjuvegi 11, 200 KÓP | Stakkahrauni 1, 220 HFJ
S: 512 3030 | www.automatic.is
Mannol Traktor Súperolía 15W-40
RAFGEYMAR Í ÖLLUM STÆRÐUM
Rafgeymar í allar
vinnuvélar og bíla á
frábæru verði!
Bylting í hreinlæti!
i-mop XL - Gólfþvottavél
sem auðveldar þrif,
sparar tíma og léttir lífið.
Hafðu samband og
pantaðu kynningu fyrir
þitt fyrirtæki
Sjá nánar á:
i-teamglobal.com
Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær
Sími: 480 0000 • aflvelar.is • sala@aflvelar.is