Bændablaðið - 26.09.2019, Qupperneq 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201934
LÍF&STARF
Hamprækt í Gautavík í Berufirði:
Möguleikar í nýtingu
hamps óendanlegir
Nýbýlingarnir í Gautavík í Beru
firði stefna á að verða sem mest
sjálfbær og framleiða sem mest sjálf
til eigin nota. Í sumar gerðu þau
tilraun með að rækta iðnaðarhamp
til framleiðslu á trefjaplöntum sem
hráefni í gjafavörur og leikföng
sem þau framleiða.
Á síðasta ári létu Pálmi Einars
son og eiginkona hans, Oddný
Anna Björnsdóttir, gamlan draum
rætast og keyptu sér jörð, Gautavík
í Berufirði. „Jörðin er 850 hektarar
að stærð, með tveggja kílómetra
strandlengju og jafn löngum
fjallgarði og um fjórir kíló metrar
þar á milli og því nóg pláss fyrir
okkur og krakkana,“ segir Pálmi.
Pálmi, sem er iðnhönnuður
og bóndi, er einlægur tals maður
sjálfbærni og samvinnu. Hann
hefur einnig mikinn áhuga á að
rækta hamp og vekja athygli á
fjölbreyttu notagildi hans. Pálmi
lærði iðnhönnun í Hollandi og bjó
í sjö ár í Bandaríkjunum. Hann
er fyrrum þróunarstjóri Össurar
hf. og með 30 ára reynslu í
hönnun og að koma vörum á
markað. Hjónin reka hönnunar
og ráðgjafarfyrirtækið Geislar
og framleiða umhverfisvænar
gjafavörur, minjagripi og módel
leikföng.
Markmiðið er sjálfbærni
„Hugmyndin við að flytja í Beru
fjörð er að gera okkur sem mest
sjálfbær og að vinna að rannsóknum
tengdum sjálfbærni. Ég hef enga trú
á því að við komum til með að reka
stórt bú í framtíðinni heldur stunda
blandaðan búskap fyrst og fremst til
sjálfsþurftar og vinna með öðrum í
sveitinni að því að verða sem mest
sjálfbær. Sjálfbærni þýðir ekki að
við verðum að framleiða allt sjálf
heldur að við framleiðum ákveðna
hluti og aðrir annað og svo getum
við deilt þeim okkar á milli eftir
þörfum.
Ein af þessum sjálfbærni hug
myndum tengist því að rækta
iðnaðarhamp og vinna úr honum
hráefni fyrir eigin framleiðslu.“
Hátæknilausnir með hampi
„Áhugi minn á hampi og notkun á
hampafurðum hófst þegar ég starfaði
hjá Össuri hf. við rannsókna og
þróunarstarf. Í kringum 2010 ætlaði
ég að leggja til að fyrirtækið skipti út
kol og glertrefjum, sem eru notaðar
í framleiðslu gervilima og spelka,
yfir í hamptrefjar, en ekkert varð
úr því. Í mínum huga var þetta ekki
bara umhverfisvæn lausn heldur líka
hátæknilausn sem ég stóð gapandi
yfir á þeim tíma. Þegar ég fór að
kynna mér möguleika hamps til
framleiðslu á alls kyns hlutum,
bæði til iðnaðar og til lyfjagerðar,
trúði ég varla mínum eigin augum
og áttaði mig fljótlega á hversu röng
pólitíkin í kringum plöntuna er og
hversu miklir hagsmunir eru í húfi
á mörgum sviðum. Það er reyndar
með ólíkindum hvað er hægt að gera
úr hampi og möguleikunum hefur
fjölgað mikið á síðustu árum.“
Í vor hófu þau hjónin tilrauna
ræktum á hampi á um hektara til að
athuga hvort hægt væri að framleiða
trefjaplötur úr heima ræktuðum
hampi til að nota í framleiðslu
Geisla. „Hugmyndin er að rækta
sjálf hráefnið sem við þurfum til
eigin framleiðslu og vera þannig
sjálfbær á þann hátt.
Í dag notum við innfluttan
birki krossvið í gjafavörurnar og
MDF plötur í módelleikföngin en
langar að geta framleitt okkar eigið
hráefni hér á staðnum og þar kemur
hampur sterkur
inn. Samkvæmt
þeim rannsóknum
sem ég hef
séð eru hamp
trefjar með allra
sterkustu trefjum
sem finnast í
plöntuheiminum
og þótt víðar
væri leitað. Í
dag eru plötur
úr hamp trefjum
mikið notaðar í
klæðningar og
sem einangrun í
bílum og kjötið innan úr stönglunum
í steypu til húsbygginga, undir burð
og fleira.
Úr lyfjahampi, sem er annað
afbrigði en sá hampur sem við erum
að rækta, eru unnin lyf sem innhalda
til dæmis virka efnið THC. Það efni
er í snefilmagni í iðnaðarhampi
og ólöglegt að rækta plöntur sem
innihalda meira en 0,2% af því hér
á landi.“
Felina, Futura og Finola
Pálmi segir að þau hafi sáð þremur
afbrigðum af iðnaðarhampi frá
Hempoint í vor, Felina 32, Futura
75 og Finola. Felina 32 afbrigðið
er aðallega ræktað vegna blómanna
sem innihalda CBD kannabíóða en
hefur einnig góðan massa og trefjar.
Futura 75 er aðallega trefjaplanta
og blómstrar lítið. Finola er sama
tegundin og Sveinn á Kálfskinni
gerði tilraun með að rækta 2008 og
ég ásamt öðrum gerðum tilraun með
að rækta á Heklusvæðinu 2013. Hún
er aðallega ræktuð vegna blómanna
og fræjanna sem eru næringarrík
fæða fyrir menn og dýr og úr þeim
unnin meðal annars hampolía og
próteinduft sem fæst í flestum
matvöru verslunum.
Við sáðum beint út í tilraunareitina
1. júní og öll afbrigðin hafa komið
vel út eftir sumarið. Plönturnar eru
um 130 sentímetrar að hæð en geta
orðið allt að þrír metrar þegar best
lætur. Sumarið sem leið var óvenju
þurrt og greinilegt að skortur á vatni
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Pálmi Einarsson, iðnhönnuður og bóndi í Gautavík, skoðar
vöxt iðnaðarhampsins í Berufirði. Myndir / PE og OAB.
Pálmi skoðar blóm hampsins undir smásjá.
Fyrsta skrefið í uppskerunni var að skera blómin af Finola afbrigðinu, þurrka og skoða kristalmyndunina á blómum og laufum.
Iðnaðarhampur er ríkur af trefjum.
Uppskeran bundin í knippi.