Bændablaðið - 26.09.2019, Page 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 2019 35
Eigum á lager nýja kynslóð af MultiOne EZ-7
liðléttingum sem eru 100% rafknúnir með
góða endingu á rafhlöðunni.
Frábær fjölnotavél með 1600 kg lyftigetu
og möguleika á ýmsum aukahlutum.
Vélarnar afhendast með skóflu og taðgreip.
Hafðu samband við Ívar Atla í síma 590 5116
eða sendu línu á iab@klettur.is.
Ný kynslóð
100% rafmagn!
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 / 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
dró úr vexti í sumar. Hér var einnig
ríkjandi norðvestanátt í sumar,
hvasst og kalt og það dró örugglega
líka úr vextinum.
Tilraunasvæðið skiptist í mörg
minni hólf sem eru að stórum hluta
í kringum íbúðarhúsið og í nágrenni
við það. Hólfin eru alls níu og hvert
um sig um 13 metrar á kant.
Vöxturinn var greinilega mestur
þar sem við gátum vökvað reglulega.
Til að byrja með var vöxturinn víðast
lítill vegna vatnsskorts, vinds og
kulda og plönturnar ekki nema 5
til 10 sentímetra háar fram í byrjun
júlí. Þá fór að rigna og var milt í
veðri í tæpar tvær vikur og þá var
dagamunur á plöntunum. Ég gat
nánast horft á þær vaxa, eða að
minnsta kosti mælt 5 til 7 sentímetra
vöxt á sólarhring.“
Uppskera og vinnsla
„Fyrsta skrefið í uppskerunni var að
skera blómin af Finola afbrigðinu,
þurrka og skoða kristalmagnið í
þeim. Restin verður svo öll skorin
og bundin í knippi og látin standa úti
í um mánuð til að veðrast. Eftir það
eru stönglarnir þurrkaðir og marðir
til að merja kjötið frá trefjunum og
að lokum eru stönglarnir valsaðir.
Afurðin sem eftir stendur er hnoðri
af trefjum sem er spunninn eins og
hver annar þráður eða ull. Eða þá að
trefjarnar eru pressaðar í plötur eins
og ég ætla að gera við þær.
CBD kristallarnir sem hamp
plantan framleiðir er meðal annars
notað sem fæðubótarefni sem
hefur góð áhrif á ónæmis kerfi
mannslíkamans. CBD er til dæmis
notað við mígreni, flogaveiki og
margs konar öðrum manna meinum
með góðum árangri og margir sem
hafa góða reynslu af notkun hennar.
Notkun á olíunni hefur ekki vímu
í för með sér og því ekki notuð í
þeim tilgangi.
Til geta flutt inn fræ af
iðnaðar hampi þarf að fá leyfi frá
Matvælastofnun, eins og með öll
önnur fræ. Það sem Matvælastofnun
skoðar er meðal annars hvort fræ
framleiðandinn sé með tilskilin
vottorð um að fræin innihaldi innan
við 0,2% af THC og að þau séu
sótthreinsuð.“
Pálmi segist hafa séð talsvert
magn af kristöllum í blómum bæði
af Finola og Felina 75 afbrigðunum
eftir sumarið, jafnvel í mjög lág
vöxnum plöntum, en þessi afbrigði
eiga að innihalda um 3–6% af
CBD kannabíóðum. „Satt best
að segja kemur kristal magnið í
plöntunum mér á óvart og ég er
sannfærður um að það liggja miklir
möguleikar í framleiðslu á olíum
úr svona blómum hér á landi, enda
gríðarlegur markaður fyrir efnið
bæði hérlendis og erlendis og
verðið mjög hátt.“
Góð landnámsjörð
Pálmi segir að Gautavík sé góð
landnámsjörð og talið að Þang
brandur hafi búið þar um tíma og
reynt með takmörkuðum árangri
að kristna menn með Biblíuna í
annarri hendi og sverð í hinni. „Hér
var kaupstaður áður en hann var
fluttur á Djúpavog og búskapur þar
til skömmu eftir síðustu aldamót. Ég
var búinn að fylgjast með jörðinni í
nokkur ár, en Oddný vildi vera nær
höfuðborgarsvæðinu. Þegar ég sýndi
henni hana svo síðastliðið vor og bað
hana að gefa henni séns, þrátt fyrir
fjarlægðina frá Reykjavík, áttaði hún
sig á því að hún uppfyllti allar okkar
kröfur og rúmlega það. Tveimur
mánuðum seinna vorum við alflutt.
Hér er gott íbúðarhús og rúmir
þúsund fermetrar af útihúsum. Þar
á meðal 110 fermetra einangruð
vélaskemma sem nú hýsir fyrirtækið
okkar, Geisla, sem var áður til húsa
í Bolholti í Reykjavík.“
Engin spurning hvort
tilraununum verður haldið áfram
Pálmi er ekki í neinum vafa um að
þau muni halda hampræktuninni
áfram. „Árangurinn í sumar var mjög
góður og við höfum lært talsvert af
þeirri reynslu og munum nýta okkur
hana. Ég komst til dæmis að því að
uppskeran var mest þar sem var tætt,
sáð, vökvað og valtað og sett plast
yfir í nokkra daga eftir sáningu. Við
erum fyrst og fremst að gera þessar
tilraunir til að vekja athygli á öllum
þeim tækifærum sem felast í ræktun
á iðnaðarhampi og vinnslu óteljandi
vara úr honum. Hampurinn gefur
Íslendingum tækifæri til að verða
sjálfbærari um fjölbreytt hráefni í
iðnað, eins og byggingarefni, textíl,
pappír, plast, eldsneyti, matvæli,
lyf og fæðubótarefni svo eitthvað
sé nefnt og eru bændur lykillinn
að því að svo geti orðið, því fyrsta
skrefið er auðvitað ræktunin sjálf,“
segir Pálmi Einarsson, bóndi og
iðnhönnuður, að lokum.
Oddný Anna Björnsdóttir, sjálfstæður ráðgjafi og bóndi í Gautavík, í miðjum hampakri.
Góður vöxtur var í plöntunum í sumar þrátt fyrir sérlega slæma tíð og náðu
þær um 130 sentímetra hæð.