Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201938
LÍF&STARF
Í ævintýraför með
undradrykk
Hjónin Manuel Plasencia Gutierrez
og Ragna Björk Guðbrandsdóttir
byrjuðu að framleiða kombucha-
drykkinn fyrir tveimur árum og
í fyrstu var einungis hægt að fá
drykkinn á krana hjá fáeinum
aðilum. Í dag eru drykkir þeirra í
níu mismunandi bragðtegundum
seldir um allt land og virðist sem
Íslendingar hafi tekið vel í þessa
nýjung á markaðnum.
„Manuel hefur lengi haft mikinn
áhuga á því flókna ferli sem fer í
gang við gerjun og hefur í mörg ár
verið að gera ýmsar tilraunir. Eftir að
hafa aflað sér upplýsinga um hráefni
til bruggunar rakst hann á forna
aðferð við að gerja te-Kombucha.
Manuel fann fljótt fyrir jákvæðum
áhrifum á líðan eftir að hafa drukkið
kombucha reglulega og þá fyrst og
fremst á magaflóruna. Sjálf hef
ég ástríðu fyrir heilbrigðu líferni
og finnst mikilvægt að láta gott af
mér leiða, bæði fyrir samfélagið og
náttúruna. Þarna rann þetta tvennt vel
saman. Við áttuðum okkur fljótlega
á sérstöðu Kombucha-drykkjarins
og langaði okkur til að deila þessum
undrarykk með sem flestum og þá
hófst kombucha-ævintýrið okkar,“
útskýrir Ragna.
Heilsusamlegur svaladrykkur
Kombucha Iceland er lítið fjölskyldu-
fyrirtæki rekið af hjónunum og
fögnuðu þau tveggja ára afmæli
fyrirtækisins í ágúst síðastliðnum.
„Í byrjun var hægt að fá drykkinn
á krana hjá nokkrum aðilum, þá
gat fólk komið með eigin flösku
og fyllt á. Í dag erum við mjög
stolt af því að geta boðið upp á
áfyllingar á nokkrum stöðum á
höfuðborgarsvæðinu, hjá Frú Laugu
í Laugardal, Sólir jóga úti á Granda,
Mamma veit best í Kópavogi og Litlu
hönnunarbúðinni í Hafnarfirði. Nú
nýlega hefur bæst við áfyllingarstöð
í Fisk kompaní á Akureyri og í Húsi
handanna á Egilsstöðum. Þetta
fyrirkomulag leggst vel í kramið
hjá fólki sem hugsar um umhverfið
og vill sniðganga óþarfa umbúðir.
Við hlökkum til að kynna drykkinn
fyrir fólki á Austurlandi en við
munum taka þar þátt í viðburði
sem tengist plastlausum september.
Við erum alltaf að leita að nýjum
endursöluaðilum og okkur langar að
fólk geti nálgast Kombucha Iceland
hvar sem er á landinu,“ segir Ragna
og aðspurð um hvað kombucha sé í
raun er hún fljót til svars:
„Kombucha er gerjað te sem
inniheldur fjölbreytt úrval af
heilsu bætandi efnasamböndum.
Þetta er sem sagt heilsusamlegur
svaladrykkur sem inniheldur mikið
af góðgerlum. Drykkurinn er aðeins
súr með náttúrulegri kolsýru en
einstaklega hressandi. Það sem
er sérstakt við drykkinn er botn-
fallið sem sjá má en er fullkomlega
eðlilegt og einnig í sumum tilfellum
er hægt að sjá fljótandi SCOBY
(örveruþyrping) í flöskunni, ef að
maður er heppinn.“
Fá hvatningu og innblástur
Fyrsta árið sem þau hjónin fram-
leiddu drykkinn seldu þau að
meðaltali 1600 lítra á mánuði og
hefur salan aukist jafnt og þétt frá
byrjun. Í dag selja þau drykkinn
með 9 mismunandi bragðtegundum.
„Við erum fyrst og fremst craft
brugghús þar sem okkar aðalvara
er Kombucha en við gerum margar
tilraunir með bragðsamsetningar.
Okkar helstu bragðtegundir eru
engifer, krækiber, glóaldin, spirulina,
rabarbari-vanilla, original, rauðrófa
og mynta,“ útskýrir Ragna og segir
jafnframt:
„Við gerð kombucha er byrjað
á því að hella upp á gæða te og
lífrænum sykri er bætt út í. Þegar teið
nær réttu hitastigi er gerjunin sett í
gang. Um er að ræða svipað ferli og
við framleiðslu á jógúrti, súrkáli og
kefir. Notuð er lifandi örveruþyrping
sem kallast SCOBY (e.Symbiotic
Solony of Bacteria and Yeast) sem
knýr áfram gerjunina og nærist á
sykrinum og koffíninu úr teinu.
Við gerjunina breytir SCOBY teinu
yfir í flókinn og bragðgóðan drykk,
stútfullan af góðgerlum, sýrum og
fleira. Það gleður okkur mikið að sjá
hversu hratt kombucha-samfélagið á
Íslandi hefur vaxið á þessum tíma frá
því að við byrjuðum. Okkar helsta
hvatning og innblástur kemur frá
okkar tryggu kombucha-unnendum.
/ehg
Hjónin Manuel Plasencia Gutierrez og Ragna Björk Guðbrandsdóttir,
stofnendur og eigendur fyrirtækisins Kombucha Iceland, framleiða nú
kombucha-svaladrykkinn með níu mismunandi bragðtegundum.
Kombucha er gerjað te með náttúrulegri kolsýru og góður svaladrykkur.
Hér er um að ræða eina
vinsælustu blómstrandi
potta plöntu síðari áratuga,
ekki síst í Evrópulöndum.
Plantan er dæmigerður
þykkblöðungur og getur
geymt í laufi og stilkum
talsvert af raka sem gerir
plöntuna jafn auðvelda í
umhirðu og allir vita sem
reynt hafa.
Hún er skyld íslensku
holta blómunum hellu-
hnoðra og flagahnoðra
en í náttúrunni vex hún
helst á hinni fjarlægu eyju
Madagaskar í Indlandshafi.
Vinsæl vegna
fallegra blaða
Kóraltoppur, Kalanchoe
blossfeldiana, er lágvaxin,
þéttgreind og sígræn planta,
nokkurs konar jurtkenndur
hálfrunni. Tennt laufblöðin
eru gljáandi og dökk græn
á heilbrigðum plöntum.
Fáeinar skyldar tegundir
hafa þann sérstaka eiginleika
að geta myndað agnarlitlar
smáplöntur eftir endilöngum
blaðjöðrunum sem falla að
lokum af og mynda nýja
einstaklinga, en sá eiginleiki
er afar sjaldgæfur í plönturíkinu.
Blómstilkar kóraltopps eru lágir
og marggreindir og á endum
þeirra vaxa litrík blóm sem geta
ólíkt mörgum öðrum plöntum af
þessari stærð staðið mjög lengi,
jafnvel í tvo til þrjá mánuði.
Hæstu stilkarnir ná dálítið upp
fyrir laufið en einnig myndast
lágir, þéttir blómsveipir sem gera
plöntuna enn meira aðlaðandi.
Algengasti liturinn er hárauður en
til eru gul, bleik og hvít afbrigði
sem öll eru ljómandi falleg. Best
er að hafa plöntuna í góðri birtu en
vökva hana sparlega og nota mjög
þynntan áburðarlög í 2-3 hvert
skipti sem vökvað er á sumrin.
Pottahlíf er sjálfsögð.
Stýrð ræktun
Garðyrkjubændur nota ýmis ráð til
að ná plöntunni þéttri og blómríkri
svo varla er hægt að búast við að
hún endist lengur en nokkra mánuði
á því stigi sem hún er þegar hún er
sett á markað. Yfirleitt eru þetta
ódýrar plöntur og betra kann að
vera að kaupa nýja plöntu tvisvar
eða þrisvar á ári en að reyna með
misgóðum árangri að halda henni
fallegri í langan tíma. Sé það hins
vegar ætlunin má halda henni þéttri
með því að klípa greinaendana af
þegar þeir eru orðnir 15-20 cm
háir og umpotta síðla vetrar. Við
náttúrulega daglengd blómstrar
kóraltoppur á vorin. Ef við viljum
fá blómstrandi kóraltopp til dæmis
fyrir jól þarf að halda daglengdinni
í 10 klukkustundum í rúman mánuð
að hausti. Þá myndar plantan blóm-
vísa í stað greina.
Græðlingar róta sig vel. Teknir
eru greinabútar án blóma, settir í
vatn eða raka mold og má búast
við góðum árangri. Fræfjölgun er
líka auðveld.
Kóraltoppur þrífst við fremur
lágt hitastig í nokkurn tíma og
getur staðið á skjólgóðri verönd
eða garðskála sumar-
langt. Hitinn má þó aldrei
fara neðar en í 12°C,
kjörhiti er um 18°C.
Enn ein eiturjurtin
Hér er á ferðinni jurt
sem sumum dýrum
getur orðið verulega
meint af. Hundar, kettir
og jafnvel fuglar geta
veikst og jafnvel drepist
ef þau éta lauf eða blóm
plöntunnar.
Ingólfur Guðnason,
brautarstjóri
garðyrkjuframleiðslu
LbhÍ
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Kóraltoppur – ástareldur
Við náttúrulega daglengd blómstrar kóraltoppur á vorin.
Algengasti liturinn er hárauður en til eru
gul, bleik og hvít afbrigði.
Dýrum getur orðið verulega meint af
plöntunni.
Tennt laufblöðin eru gljáandi og dökkgræn.
1 2 3 4 5 6
Meðallestur prentmiðla á landsbyggðinni
þróun lestrar síðastliðin fimm ár samkvæmt könnunumGallup
20
14
4
3,
3%
20
15
4
5,
0%
20
16
4
3,
8%
20
17
4
3,
1%
20
14
3
3,
9%
20
15
3
1,
0%
20
16
28
,6
%
20
17
27
,3
%
20
14
2
7,
8%
20
15
2
6,
0%
20
16
2
5,
3%
20
17
2
2,
0%
20
14
1
1,
3%
20
15
7
,0
%
20
16
1
0,
8%
20
17
1
1,
2%
20
14
5
,7
%
20
15
1
0,
0%
20
16
7
,3
%
20
17
8
,0
%
20
18
9
,1
%
20
18
2
4,
6%
20
18
2
2,
1%
Bændablaðið Fréttablaðið Morgunblaðið Stundin DV Viðskiptablaðið
20
18
4
5,
6%
20
18
1
0,
8%
20
18
5
,1
%
Bæ
nd
ab
la
ði
ð
/ H
Kr
.