Bændablaðið - 26.09.2019, Qupperneq 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 2019 39
Yleiningar - Límtré - Stálgrindarhús
| S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s |
| S t a n g a r h y l u r 7 1 1 0 R e y k j a v í k | s ím i : 5 8 8 6 6 4 0 |
Verð á skemmum frá kr:29.500 m2
Bænda
bbl.is Facebook
Allt til heimaslátrunar
Egilsholti 1
Verslun, sími: 430 5500
Opið virka daga 8-18
Laugardaga 10-14
www.kb.is, verslun@kb.is
Kjötnet, kjötkrókar, pækilmælar
Gott úrval hnífa og brýna
Gott úrval af
tunnum og fötum
Kjötfarsblanda, rúllu-
pylsukrydd, lambakrydd,
reykkrydd, nítrítsalt og gróft salt
Vagúnvélar og pökkunarplast
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Ruddasláttuvélar, gröfubakkó, smágröfur, stauraborar
og fl. landbúnaðartæki, ásamt bátum og búnaði.
Svansson ehf , netverslun í 13 ár.
Gæði á góðu verði.
Sendið okkur verðfyrirspurn á sala@svansson.is
Sími : 697-4900
Við erum líka á Facebook.
LESENDABÁS
Illyrði án innihalds
Einar Freyr Elínarson, bóndi í
Sólheimahjáleigu, jós úr brunni
sínum í síðasta tölublaði Bænda
blaðsins. Honum var heldur niðri
fyrir, fór ófögrum orðum um
framtíð íslensks landbúnaðar og
hóf m.a. grein sína á orðunum
„Eigi landbúnaðurinn í landinu
að lifa af þá þarf að heyja stríð.“
Þar var jafnframt spjótunum
beint að undirrituðum og notast
höfundurinn við þá vafasömu
aðferðafræði við skoðanaskipti að
brúka upphrópanir og stóryrði án
þess að gera nokkra tilraun til að
rökstyðja mál sitt.
Á síðastliðnu ári boðaði ég til 16
opinna fund með bændum um allt
land, og aldrei bar á svo vanstilltum
málflutningi sem Einar Freyr færir
fram, þó vissulega hafi umræður
á stundum verið hressilegar og
uppbyggjandi enda nauðsynlegt að
takast á með málefnalegum hætti.
Fyrstur með ,,fréttirnar“
Í grein sinni vísar Einar til umræðu
frá því í sumar um innflutning á
lambahryggjum. Engu er til sparað
í fullyrðingum um framgang þess
máls, m.a. vísað til blaðamannafundar
sem undirritaður á að hafa „afboðað
á síðustu stundu“, en þetta er í fyrsta
skipti sem ég heyri um þennan
meinta blaðamannafund. Þá er sú
kostulega söguskýring sett fram að
fyrrverandi landbúnaðarráðherra og
núverandi menntamálaráðherra hafi
átt einhverja aðkomu að því máli.
Þetta mun raunar vera í annað skipti
sem þessu er haldið fram í þessu
ágæta blaði. Því er mér bæði ljúft og
skylt að upplýsa á þessum vettvangi
að hvorki fyrrverandi né núverandi
ráðherrar áttu nokkra aðkomu að
því máli eða höfðu áhrif á framgang
þess. Ástæða þess að ekki var
opnað á tollkvóta á hryggjum var
einfaldlega sú að lagaleg skilyrði
fyrir slíkri opnun voru ekki fyrir
hendi. Fleiri fullyrðingar mætti
leiðrétta enda af nægu að taka í
þeim efnum en ég tel mikilvægara að
ræða það sem mestu skiptir; framtíð
íslensks landbúnaðar.
Skýr framtíðarsýn
Meginmarkmið ríkisstjórnar Katrínar
Jakobsdóttur í þessu samhengi er að
landbúnaður á Íslandi sé sjálfbær og
vernd búfjárstofna sé tryggð. Þá á
Ísland að vera leiðandi í framleiðslu
á heilnæmum landbúnaðarafurðum.
Til að framfylgja þessari stefnu
mörkun má meðal annars vísa til
aðgerðaáætlunar í 17 liðum um að
efla matvælaöryggi, tryggja vernd
búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu
innlendrar matvæla framleiðslu. Þar
er meðal annars kveðið á um:
• Skipuð verði áhættumatsnefnd.
• Átak til að draga úr útbreiðslu
sýklalyfjaónæmra baktería á
Íslandi.
• Settur verður á fót Matvæla
sjóður með áherslu á eflingu
nýsköpunar í innlendri matvæla
framleiðslu.
• Opinber stefna um innkaup
opinberra aðila á matvælum.
• Mótun matvælastefnu fyrir
Ísland.
• Átak um betri merkingar mat
væla.
• Vinna við að kanna þróun toll
verndar og stöðu íslensks land
búnaðar gagnvart breytingum í
alþjóð legu viðskipta umhverfi.
• Endurskoðun á tollskrá fyrir
landbúnaðarvörur.
Unnið hefur verið staðfastlega
að framgangi þessarar aðgerða
áætlunar, sem er í raun tíma móta
stefnumörkun Alþingis um land
búnað, líklega sú áhrifa mesta í
mörg ár, og er hún í forgangi í
mínu ráðuneyti. Ég mun þann 1.
nóvember nk. gefa Alþingi skýrslu
um framgang áætlunarinnar en hún
var samþykkt með 54 atkvæðum á
Alþingi hinn 19. júní sl.
Stjórnsýsla landbúnaðarmála efld
Á sama tíma og unnið er að því að
styrkja íslenska matvælaframleiðslu
er verið að styrkja stjórnsýslu
landbúnaðar og matvælamála.
Þannig samþykkti Alþingi í júní
sl. frumvarp mitt um að verkefni
Búnaðarstofu, sem nú heyrir
undir Matvælastofnum, færast til
atvinnuvega og nýsköpunar ráðu
neytisins frá 1. janúar nk. Með
því að koma þessum verkefnum
á einn stað undir einni yfirstjórn í
ráðuneytinu er horft til þess að auka
möguleika til forgangsröðunar, gefa
möguleika til að þróa stjórnsýsluna
með skilvirkari hætti og þannig
þjóna íslenskri matvælaframleiðslu
enn betur en nú er gert.
Endurskoðun búvörusamninga
Á þessu ári stendur yfir endurskoðun
á þeim búvörusamningum sem tóku
gildi 1. janúar 2017. Í ár stendur
yfir endurskoðun á öllum fjórum
samningunum. Einni endurskoðun
er raunar þegar lokið í kjölfar þess
að ég óskaði eftir því í fyrra að
endurskoðun sauðfjársamningsins
yrði flýtt. Í kjölfarið var skrifað
undir samkomulag um endurskoðun
þess samnings í janúar sl. Þar er
að finna breytingar sem ég tel að
muni stuðla að meira jafnvægi milli
framboðs og eftirspurnar á markaði
með sauðfjárafurðir en það hefur
verið einn helsti vandi greinarinnar
undanfarin ár. Mikilvægast af öllu
er að nú sjást skýr merki um að
hagur sauðfjárbænda er að vænkast
á ný.
Nú standa yfir viðræður
um endurskoðun samnings um
starfs skilyrði nautgriparæktar.
Þær viðræður ganga vel og
vonast ég eftir að þeim ljúki hið
fyrsta. Í kjölfarið verður gengið
frá samning um garðyrkju og
rammasamning. Þessari vinnu
fylgir mikil ábyrgð fyrir bæði
stjórnvöld og bændur enda felast
í henni dýrmæt tækifæri til að
búa svo um starfsskilyrði þessara
greina að íslenskur land búnaður
nýti þau mikilvægu sóknar færi
sem hann sannarlega hefur. Til að
svo megi verða þarf ekki stríð,
heldur samstillt átak bænda og
stjórnvalda.
Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra
Kristján Þór Júlíusson.