Bændablaðið - 26.09.2019, Side 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 2019 43
Easy Swing gripaburstar
fyrir velferð dýranna
Í samstarfi við Finneasy í
Finnlandi býður BYKO nú upp
á Easy Swing gripabursta af
ýmsum stærðum án mótora.
Burstarnir henta gripum allt frá
ungum kálfum upp í fullorðin
naut. Burstarnir eru smíðaðir
með mikið álag í huga. Easy
Swing gripaburstarnir eru
auðveldir í uppsetningu og kosta
mun minna en rafmagnsdrifnir
kúaburstar.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
byko.is
GRIPABURSTAR
sem meðalbúið er með 93 árskýr.
Þar á eftir koma íslensku búin með
49 árskýr, þá þau finnsku með 42
árskýr og norsku búin reka lestina
með ekki nema 27 árskýr að jafnaði.
Meðalbúið með 598 þúsund kíló
Ársframleiðsla norrænu kúabúanna
er auðvitað nátengd bústærðinni en
að jafnaði lagði hvert bú inn 598
þúsund lítra á síðasta ári sem er
aukning um 41 þúsund lítra á einu
ári eða um 7,4% frá fyrra ári. Eins
og við er að búast fylgist innvigtunin
nokkuð vel kúafjöldanum þó svo að
afurðasemi kúnna hafi þar auðvitað
töluverð áhrif.
Eins og undanfarin ár bera
dönsku búin höfuð og herðar
yfir önnur bú á Norðurlöndunum
og raunar í allri Evrópu en þau
voru að jafnaði að leggja inn 1,9
milljónir lítra sem er tífalt meira
mjólkurmagn en norsku búin voru
að leggja inn að meðaltali, en
þau eru að framleiða langminnsta
mjólkurmagnið á Norðurlöndum
og meðalinnlögnin þar er ekki nema
192 tonn á ári.
Kúnum fækkar líka
Samhliða fækkun kúabúa hefur
kúnum líka fækkað en afurðasemin
hefur þó aukist að sama skapi.
Þannig fór fjöldi þeirra úr 1.402
þúsund kúm í árslok árið 2017 í
1.377 þúsund kýr í árslok 2018 sem
er þó ekki nema fækkun um 1,8%
á milli ára.
Mest fækkaði sænskum og
finnskum kúm en heldur minni
fækkun varð í Noregi og Danmörku.
Ísland er eina landið sem stóð í stað
á milli ára þegar horft er til fjölda á
mjólkur kúm.
Meðalkýrin að skila 8.947 kg í
afurðastöð
Þegar horft er til afurðasemi kúnna
á milli landanna er staðan nokkuð
ólík eftir því hvaða land á í hlut
enda hefur þar áhrif bæði kúakynið
sem er notað við framleiðsluna og
það umhverfi sem kúabúin starfa
við. Þannig er t.d. kvótakerfi bæði í
Noregi og á Íslandi en framleiðslan
í hinum löndunum er frjáls sem
getur haft sín áhrif á það hvernig
bændurnir stýra sínum búum.
Þegar meðalafurðir eru metnar er
oft notast við skýrsluhaldsafurðir,
þ.e. uppgefnar afurðir búa sem
taka þátt í skýrsluhaldi og þá er
ekki tekið tillit til heimanota á
mjólk eða mögulegra áfalla vegna
sjúkdómameðhöndlunar svo dæmi
sé tekið. Í samanburði NMSN er
hins vegar notast við upplýsingar
um alla innvegna mjólk til afurða
stöðvanna í löndunum og svo
heildarfjölda skráðra mjólkurkúa
í löndunum. Þegar þetta er reiknað
þannig út kemur í ljós að sem
fyrr eru mestar afurðir að finna
í Danmörku, þar sem hver kýr
er að skila að jafnaði 9.851 kílói
í afurðastöð. Vegna þess hve
danska mjólkurframleiðslan vegur
þungt á norræna vísu er meðaltal
Norðurlandanna hátt, eða 8.947
kíló. Á eftir dönsku kúnum koma
þær finnsku með þó nærri einu tonni
minna mjólkurmagn, eða 8.917 kíló
og þar á eftir eru sænsku kýrnar með
8.818 kíló. Norsku kýrnar eru þær
fjórðu afurðamestu með 7.054 kíló
en þær íslensku eiga nokkuð í land
með að ná dönsku kúnum með ekki
nema 5.630 kíló að jafnaði.
Heimild: Tæknihópur NMSM
Mjólkurframleiðsla Norðurlandanna - ýmsar stærðir
2017 2018 2017 2018 2017 2018 2017 2018 2017 2018 2015 2016 2017 2018
Fjöldi kúabúa alls 2.971 2.953 6.806 6.250 573 556 8.154 7.481 3.614 3.350 24.730 23.442 22.118 20.590
Fjöldi kúabúa með mjaltaþjóna 702 722 1.075 1.138 181 197 1.841 2.012 1.012 1.118 4.444 4.629 4.811 5.187
Fjöldi mjaltaþjóna 2.055 2.132 1.593 1.729 222 249 1.957 2.052 1.926 2.065 7.179 7.447 7.753 8.227
Fjöldi mjólkurkúa, þúsundir 575 570 271 264 27 27 208 204 322 313 1.453 1.411 1.402 1.377
Meðalbústærð 194 193 40 42 47 49 26 27 89 93 59 60 63 67
Heildarmjólkurframleiðsla, milljónir kg. 5.494 5.615 2.366 2.354 151 152 1.495 1.439 2.817 2.760 12.285 12.297 12.323 12.320
Meðalframleiðsla pr. bú, þúsundir kg 1.849 1.901 348 377 264 273 183 192 779 824 497 525 557 598
Meðalinnvigtun mjólkur í afurðastöð pr. kú 9.554 9.851 8.731 8917 5.593 5.630 7.188 7.054 8.748 8.818 8.455 8.715 8.790 8.947
NorðurlöndinDanmörk Finnland Ísland Noregur Svíþjóð
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4980
info@yamaha.is
www.yamaha.is
GRIZZLY 700 EPS
DRÁTTARVÉL
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á WWW.YAMAHA.IS
Tilboðsverð:
2.390.000,-
Fullt verð: 2.550.000,-
Örfá eintök til
afhendingar strax!
Kerhólsskóli í Grímsnes- og Grafningshreppi:
Danskur skólahópur frá 127
manna eyju í heimsókn
Nemendur og starfsmenn
Kerhóls skóla í Grímsnes-
og Grafningshreppi fengu
nýlega skemmtilega fjögurra
daga heimsókn þegar danskir
grunnskóla nemendur frá eyjunni
Anholt heimsóttu skólann. Íbúar
eyjunnar eru aðeins 127 en hún
liggur á milli Danmerkur og
Svíþjóðar.
Anholt skole er minnsti skólinn
í Danmörku en í skólanum eru 14
nemendur í grunnskóladeild og 3
börn í leikskóladeild. Hann er eins og
Kerhólsskóli að því leyti að í báðum
skólum er leik og grunnskóladeild.
Öll börn grunnskóladeildarinnar
komu ti Íslands ásamt kennurum og
nokkrum foreldrum, alls 31. „Þau
höfðu samband við okkur í fyrra og
langaði að koma af stað samstarfi.
Við sóttum um styrk úr Nordplus
en fengum ekki, þannig að þau
söfnuðu fyrir sinni heimsókn í tvö
ár hingað. Við ætlum að sækja um
aftur á næsta ári og erum að skoða
hvort við komumst þá til þeirra í
heimsókn,“ segir Alice Petersen,
kennari í Kerhólsskóla.
Starfsmenn Kerhólsskóla
skipulögðu fjölbreytta og
skemmtilega dagskrá á meðan
heimsóknin stóð, bæði í skólanum
og svo var farið í nokkrar
skoðunarferðir. Þema yngsta
stigsins var söngur og samvera,
miðstigið var með þjóðsögur og
náttúruna og unglingastigið tók
fyrir heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna. Út frá þemunum var
ákveðið að fara saman í ferðir en
farið var einn daginn á Þingvöll
og annan dag var farið að skoða
orkusýninguna í Ljósafossvirkjun.
Þá var farið í sund á Borg.
„Þar sem Kerhólsskóli er talinn
lítill skóli með 73 nemendur í
grunnskóla og leikskóladeild fannst
okkar börnum gaman að heyra frá
gestunum, hvað væri gaman að vera
í svona stórum skóla þar sem næðist
í góð lið í fótboltanum. Nemendur
og starfsmenn skólanna náðu vel
saman og stefnir Kerhólsskóli á
að heimsækja Anholt skole ef fást
styrkir til fararinnar,“ segir Jóna B.
Jónsdóttir, skólastjóri Kerhólsskóla.
/MHH
Dönsku og íslensku nemendurnir skemmtu sér vel. Mynd / MHH