Bændablaðið - 26.09.2019, Síða 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201944
Fyrir skömmu lauk vinnu við
verkefni um hagrænt vægi
eigin leika í nautgriparækt sem
staðið hefur yfir í um tvö ár.
RML hefur staðið fyrir þessari
vinnu sem hefur verið í höndum
þeirra Kára Gautasonar og
Jóns Hjalta Eiríkssonar og
hefur notið stuðnings þróunar
sjóðs nautgriparæktarinnar,
Landssambands kúabænda
og Nautastöðvar BÍ. Hluti
verkefnisins var unninn í sam
starfi við sérfræðinga Háskólans
í Árósum í Danmörku, einkum
Morten Kargo Sørensen. Þann
6. ágúst sl. var lokaafurðin kynnt
fagráði í nautgriparækt og er
skýrsluna að finna á heima síðu
RML.
Fagráð ákvað að nýta niðurstöður
verkefnisins svo fljótt sem verða má
og við næstu keyrslu kynbótamats
verður útreikningi á heildareinkunn
breytt til samræmis við niðurstöður
verkefnisins.
Gott kynbótastarf byggir á
skýrum og góðum markmiðum þar
sem velja þarf fyrir eiginleikum sem
skila okkur afkastameiri, hraustari,
hag kvæmari og betri gripum auk
þess sem hafa verður í huga velferð
þeirra. Ein leið til að ákvarða sam
setningu og vægi eiginleika er að
leiða út með hvaða áherslum má
vænta mests hagræns ávinnings.
Ef valið fer fram samkvæmt því
má vænta hámarksnýtingar þeirrar
fjárfestingar sem fer í kynbótastarfið
en það er sérstaklega mikilvægt ef
dýrar, og jafnframt öflugar, aðferðir
svo sem erfðamengisúrval eru nýttar
Við mat á hagrænu gildi eiginleika
er horft til framtíðar en verðmæti
þeirra fer eftir ýmsum ytri aðstæðum.
Ávinningur af kynbótastarfi er
framtíðar ávinningur og það er alls
ekki auðvelt að spá fyrir um þær
aðstæður sem kunna að verða að t.d.
10 árum liðnum.
Í verkefninu var gerð tilraun
til þess að spá fyrir um
aðstæður árið 2027 og
smíða líkön sem líkja
eftir framleiðsluaðstæðum og kúa
búum framtíðarinnar. Settar voru upp
þrjár sviðsmyndir en sú sem líklegust
þótti valin til áframhaldandi vinnu í
samráði við fagráð í nautgriparækt.
Sú sviðsmynd gerir ráð fyrir
því að kúabúum fækki úr 581
um áramótin 201617 niður í 406
árið 2027. Reiknað er með að þá
verði meðalstærð orðin 65 árskýr,
meðalnyt komin í 7.100 kg og
heildargreiðslumark 173 milljónir
lítra. Einhverjum kann að þykja
bratt að auka greiðslumark um 28
milljónir lítra eða 19% á tíu árum.
Þessi spá byggir á spám um fjölda
ferðamanna og lágspá Hagstofu
Íslands um fólksfjölgun auk þess
sem tekið er tillit til áhrifa tollfrjáls
innflutnings. Það verður hins vegar
að hafa í huga að mikil óvissa er um
marga þætti sem hafa áhrif á stærð
mjólkurmarkaðarins og má þar nefna
gengis og tollamál, mannfjölda og
fjölda ferðamanna ásamt breytingum
í neyslumynstri á mjólkurvörum. Í
þessari sviðsmynd er tekið tillit til
fjölda annarra þátta, s.s. fóðrunar og
uppeldiskostnaðar, launakostnaðar,
afurðaverðs o.fl. Það er hins vegar
of langt mál að gera grein fyrir
öllum forsendum hér og því bent á
skýrsluna sjálfa.
Hluti verkefnisins var að meta
hagrænt gildi útlits og umhirðuþátta
gripanna, eins og júgur og spena
gerðar, mjalta og skaps. Það var m.a.
gert með því að senda könnun til
bænda þar sem þeir voru beðnir um
að leggja mat á þann vinnusparnað
sem verður með því að bæta þessa
eiginleika. Jafnframt voru bændur
spurðir um hvernig þeir vilja hafa
vægi eiginleika í ræktunarstarfinu.
Gleitt settir framspenar og of
mjóir spenar stærsta vandamálið
Helstu niðurstöður könnunarinnar
voru þær að bændur telja gleitt setta
framspena og of mjóa spena stærsta
vandamálið varðandi spenagerð,
þ.e. þetta væru þeir þættir sem yllu
aukinni vinnu við gripina. Þeir
lögðu lögðu nokkuð að jöfnu hvort
gallar í júgurgerð stöfuðu af lítilli
festu, ógreinilegu júgurbandi eða
mikilli júgurdýpt enda fara þessir
gallar oft saman. Varðandi mjaltir
og skap töldu menn að hækkun
þessara eiginleika um eitt stig í
einkunn sparaði 3060 sek. á kú á
ári í mjöltum og samsvarandi tala
fyrir skap var 2030 sek. Þeir sem
svöruðu könnuninni voru almennt
nokkuð sammála um að lækka beri
vægi afurða í heildareinkunn og
hækka vægi annarra eiginleika eins
og júgur og spenagerðar, mjalta og
skaps.
Danskur hugbúnaður, SimHerd,
var aðlagaður eins og kostur var
að íslenskum aðstæðum og þeirri
stöðu sem líklegust þykir árið 2027.
Í samráði við fagráð var gert ráð
fyrir að framleiðslustýringu með
greiðslumarki yrði viðhaldið og
þróun í fækkun og stækkun búa
væri með svipuðum hætti og verið
hefur. Sjónarhornið á hagrænan
ávinning kynbótanna í þessu
verkefni er að markmiðið sé að
lækka framleiðslukostnað mjólkur,
og er þá látið liggja á milli hluta
hver nýtur þess ávinnings, hvort
það eru bændur, afurðastöðvar eða
neytendur.
Erfðaframfarir í einstökum
eiginleikum lækka
framleiðslukostnað mjólkur
Í niðurstöðum verkefnisins kemur
fram að erfðaframfarir í einstökum
eiginleikum lækka framleiðslu
kostnað mjólkur um 1,05 kr/l á ári
sé valið eftir nýrri heildareinkunn
eða um 150 milljónir króna á ári.
Þessar tölur um árlegan sparnað
miða við framleiðslukostnað á
þeim tíma þegar áhrifanna er
farið að gæta að fullu. Ef að
skoða á ávinning af fjárfestingu
í kynbótum núna þarf að taka
tillit til þess tíma sem áhrifin eru
að koma fram. Sé miðað við að
kostnaður við kynbótastarf komi
fram við sæðingu, ágóðinn þegar
þeir gripir sem þá verða til koma
til framleiðslu, 4% ávöxtunarkröfu
og að starfið borgi sig upp á 15
árum má kynbótastarf með
þeim árangri sem metinn er í
verkefninu kosta 960 milljónir á ári
hérlendis. Samkvæmt samningi um
starfskilyrði nautgriparæktarinnar
(2016) eru lagðar nálægt 196
milljónum króna í kynbóta starf
árlega af hálfu hins opinbera.
Því til viðbótar kemur framlag
bænda sjálfra á formi til dæmis
sæðingagjalda og kynbótaáætlana.
Miðað við sömu forsendur mega
aðgerðir sem skila aukinni framför
upp á 0,1 stig í heildareinkunn
kosta 69 milljónir. Því má ætla að
kostnaðarsamar aðgerðir eins og
upptaka erfðamengisúrvals borgi
sig upp á fáum árum. Stærsti
ávinningurinn af erfðamengisúrvali
liggur í styttingu ættliðabils og
þar með þeim tíma sem tekur
að fá fjárfestingu í kynbótum
endurgreidda. Sú fjárfesting
skilar varanlegum og marg földum
ávinningi, ekki síst ef horft er til
lengri tíma.
Fagráð ákvað að fara að þeim
tillögum sem lagðar eru til í verkefninu
og breyta útreikningi á heildar
einkunn. Segja má að því felist einnig
ákveðin breyting á ræktunarmarkmiði
nautgripa ræktarinnar. Sú breyting
sem koma mun til framkvæmda
við næstu keyrslu á kynbótamati á
að auka ávinning af ræktunar starfi
nautgripa ræktarinnar í formi minni
framleiðslukostnaðar, sem metinn
er af höfundum skýrslunnar nálægt
150 milljónum króna á ári. Það er því
ljóst að verulegan ábata er að sækja
í erfðaframfarir eða sem nemur um
1 krónu á hvern framleiddan lítra
mjólkur.
Í breytingunni felst að vægi á
afurðum verður lækkað úr 44% í
36% auk þess sem samsetningu
afurðaeinkunnar verður breytt á
þann veg að fituafurðir fá 47% vægi,
próteinafurðir 48% og próteinhlutfall
5%. Þannig mun afurða einkunnin
endurspegla verð hlutföll verðefnanna
auk þess sem próteinhlutfallið fær 5%
vægi til þess að halda því jafnháu og
nú er. Vægi annarra eiginleika mun
breytast lítillega en stærsta breytingin
verður sú að ending mun eingöngu
koma inn í heildareinkunn nauta sem
hafa reiknaða endingareinkunn.
Í töflunni hér fyrir ofan má
sjá vægi eiginleika fyrir og eftir
breytingu. Þessi breyting er mjög í
takt við vilja kúabænda eins og fram
kom hér að framan.
Allar breytingar
hafa áhrif á val gripa
Allar breytingar á heildareinkunn
hafa áhrif á val gripa í ræktunar
starfinu. Með þessari breytingu
munu þau naut sem eiga dætur
sem mjólka fituríkri mjólk hækka
í mati. Jafnframt kemur þessi
breyting nautum sem skila okkur
góðri júgur og spenagerð ásamt
mikilli endingu til góða. Við næstu
keyrslu kynbótamats geta bændur
því búist við því að sjá einhverjar
breytingar í skrá yfir nautsmæður
og efnilegar kvígur.
Rétt er að fram komi að þrátt
fyrir að sú heildareinkunn sem
nú verður tekin upp byggi í fyrsta
skipti á mati á hagrænum gildum
hinna einstöku eiginleika er
breytingin ekki byltingar kennd.
Heildar einkunnin sem unnið
hefur verið með frá árinu 2005 er
í töluverðum takti við hina nýju
einkunn og þær breytingar sem
gerðar hafa verið á henni gegnum
tíðina hafa allar fært hana nær
hinum hagrænu gildum eigin
leikanna.
Við hvetjum kúabændur og aðra
til að kynna sér skýrsluna sem finna
má á heimasíðu RML á slóðinni
https://www.rml.is/static/files/
Nautgripa raekt/Fagrad/verkefni/
hagraent_vaegi_eiginleika_
nautgripa raekt.pdf.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vottaður hífi- og festingabúnaður
Námskeið um notkun á hífibúnaði
Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði
Hífi- og festingabúnaður
Breytingar á heildareinkunn í nautgriparækt
Guðmundur Jóhannesson
ábyrgðarmaður í
nautgriparækt
mundi@rml.is
Vægi eiginleika
Eldri
Eiginleiki einkunn Naut Kýr
Afurðir 44% 36% 36%
Frjósemi 8% 10% 11%
Frumutala 8% 8% 9%
Júgur 8% 10% 11%
Spenar 8% 10% 13%
Mjaltir 8% 8% 10%
Skap 8% 8% 10%
Ending 8% 10%
Í töflunni má sjá vægi eiginleika fyrir og eftir breytingu
Ný heildareinkunn
Gunnfríður Elín
Hreiðarsdóttir
Þróunar- og verkefnastofa
geh@rml.is
Hvar auglýsir þú?
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
45,6% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
20,4%
45,6%
á landsbyggðinniá höfuðborgarsvæðinu
29,5%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára.