Bændablaðið - 26.09.2019, Side 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201946
Þegar ég prófaði Volkswagen
T-Roc frá Heklu kom upp
spurning um hvort maður ætti að
segja að bíllinn væri jepp lingur
eða fjórhjóladrifinn fólks bíll.
T-Rock er fáanlegur í nokkrum
mismunandi útfærslum, ýmist
með bensínvél eða dísilvél.
Bíllinn sem ég prófaði var með
2,0 lítra dísilvél sem á að skila 150
hestöflum og kostar 4.890.000.
Útlitið eins, en fjórir
mismunandi bílar
Verðið á Volkswagen T-Roc Style
er ódýrast frá 3.790.000 sem er
beinskiptur 115 hestafla bensínbíll,
en dýrastur af Style bílunum er 190
hestafla bensínbíllinn og kostar
5.290.000 (svo eru í boði Style+
og R-line sem eru dýrari útgáfur af
Volkswagen T-Roc). Í Style bílnum
er eins og í flestum nýjum bílum
mikið lagt upp úr öryggi og er
bíllinn m.a. með neyðarhemlunar-
búnaði, vöktunarkerfi fyrir gangandi
vegfarendur, akreinavari/lesari, ESC
stöðugleikastýringu og ýmislegt
fleira.
Prufuaksturinn í styttra lagi
Til að kynnast bílum sem best hef ég
reynt að keyra prufubíla helst ekki
minna en 100 km, en sökum veðurs
og anna var þessi prufuakstur rétt
tæpir 70 km á mismunandi vegum.
Í innanbæjarakstri er bíllinn lipur
og þægilegur í akstri og hentar vel
við þröngar aðstæður, gott að leggja í
stæði, en persónulega hefði ég viljað
að hliðarspeglar mættu vera aðeins
stærri til að fylgjast með umferð fyrir
aftan bílinn.
Á malbiki er gott að keyra
bílinn en samt fannst mér veghljóð
á malbikuðum vegi vera fullmikið.
Á malarvegi er Volkswagen
T-Roc bíll sem ég gef hærri einkunn
en sambærilegum bílum fyrir lítið
malarvegahljóð undir bílnum. Mjög
dempað hljóð og greinilega vel
hljóðeinangraður undirvagn. Einnig
kom það mér á óvart hversu ákveðið
má keyra bílinn í lausamöl án þess
að skriðvörnin fari á. Maður var
hreinlega hissa hvað mátti keyra
bílinn hratt í gegnum beygju í
lausamöl með fullt grip á hjólin án
þess að skriðvörnin færi á.
Eyðsla, plúsar og einn mínus
Allan prufuaksturinn var ég að skipta
á milli vélarstillinga frá eco yfir í
sport til að finna muninn á upptaki
og akstri á mismunandi stillingum.
Ég verð að viðurkenna að ég var ekki
að taka neitt mikið á bílnum þ.e.a.s.
lítið um botngjafir.
Samkvæmt aksturstölvunni var
ég að eyða 6,5 lítrum á hundraðið
á þessum tæpu 70 km sem ég ók á
meðalhraða upp á 44 km. Mestan
tímann var vélin stillt á sport þannig
að ég var ekki mikið að hugsa um
sparakstur. Ég get ekki verið annað
en ánægður með eyðsluna þar
sem í sölubæklingi er uppgefin
meðaleyðsla í blönduðum akstri
6,8 l/100 km.
Það er gott að sitja í fram-
sætunum, pláss gott og þá
sérstaklega fyrir þá sem sitja í
aftur sætunum. Farangurs rýmið
er í samræmi við bílinn, en ég
saknaði þess að sjá varadekk í þar
til gerðu hólfi. Sennilega kem ég
aldrei til með að sætta mig við
varadekkslausa bíla, en það er eini
mínusinn sem ég gef þessum bíl.
Lokaorðin, fjórhjóladrifinn bíll
á góðu verði sem gott er að keyra.
Ég einfaldlega get ekki ákveðið
hvort ég kalla Volkswagen T-Roc
fjórhjóladrifinn fólksbíl eða minnstu
gerð af jepplingi.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Þyngd 1.990 kg
Hæð 1.573 mm
Breidd 1.819 mm
Lengd 4.234 mm
Helstu mál og upplýsingar
Volkswagen T-Roc, ódýr,
fjórhjóladrifinn og kraftmikill
Volkswagen T-Roc Style. Myndir / HLJ
Fínt pláss í aftursætunum og rými gott. Baksýnisspeglarnir á hliðunum mættu vera stærri.
Það besta við bakkmyndavélarnar í VW er að linsan verður aldrei skítug.
Myndi halda að þetta hólf væri hannað fyrir varadekkið, en hvar er það?
Undir vörumerkinu er augað fyrir linsuna fyrir bakkmyndavélina og þess
vegna alltaf hrein mynd.
Get ekki annað en verið montinn af því að vera undir uppgefinni eyðslu.