Bændablaðið - 26.09.2019, Page 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201948
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Stóra-Ármót hefur verið í eigu
Búnaðarsambands Suðurlands
frá því 1979. Hér hefur verið rekið
tilraunabú í nautgriparækt, lengst
af í samstarfi við Bændaskólann á
Hvanneyri, seinna LbhÍ.
Búrekstur á Stóra-Ármóti er í
höndum bústjóra og hafa Hilda og
Höskuldur sinnt því starfi frá því í
september 2001.
Býli: Stóra-Ármót.
Staðsett í sveit: Flóahreppur.
Ábúendur: Hilda Pálmadóttir og
Höskuldur Gunnarsson.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Auk
okkar hjóna þá eru það börnin 5; Helga
Margrét, Hannes, Hólmar, Hallgerður
og Hanna Dóra. Tíkarkjáninn Píla og
meindýravarnirnar í fjósinu (lesist
kettirnir) Ponta, Klói og Steypa.
Stærð jarðar? 650 ha.
Gerð bús? Blandaður búskapur.
Fjöldi búfjár og tegundir? Mjólkur-
kýrnar á búinu eru um 50 talsins og
kvígur og kálfar í samræmi við það.
Sauðfé um 145 hausar á vetrarfóðrum
og svo eigum við prívat einhver 10
hross sem aðallega sjá um að hreinsa
vegkanta og snyrta í kringum bæinn.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Fyrst og síðast morgna og kvöld eru
fjósverkin og svo annað tilfallandi
þar á milli.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Flest er skemmtilegt
þegar vel gengur, hins vegar er
alltaf leiðinlegt að þurfa að farga
skepnum.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir
fimm ár? Með svipuðu sniði
og nú er, hugsanlega aukin
mjólkur framleiðsla til að fullnýta
aðstöðuna sem er til staðar.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Þakklát þeim sem
gefa sig í þá vinnu. Það er ekki alltaf
öfundsvert hlutverk og sjaldnast að
allir séu sáttir við það sem gert er.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni? Ef
fólk áttar sig á því að við eigum að
kaupa það sem framleitt er næst
okkur þá vegnar honum vel.
Hvar teljið þið að helstu
tækifærin séu í útflutningi
íslenskra búvara? Fyrst og fremst
á að einblína á að uppfylla innan-
lands markaðinn.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, lýsi og egg.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Sitt sýnist hverjum um
það. Lambahryggurinn á jólunum
ofarlega á blaði hjá flestum, yngri
kynslóðin yfirleitt hamingjusöm
með heimagerða pitsu og steiktur
fiskur í raspi kemur líka sterkur inn.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Fjósbreytingarnar
haustið 2017 voru skemmtilegar
og gott þegar loksins tókst að hýsa
kýrnar það árið. Eftirminnilegra
hjá flestum fjölskyldumeðlimum
er þó smalabrjálæði húsbóndans
og annars sonarins þegar rekið
var í fyrsta skipti inn í ný fjárhús
2015, enda fór fjarri því að blessuð
sauðkindin vildi fara þangað sem
ætlast var til.
Kjúklingur, kalkúnn og súkkulaði
Kjúklingur er frábær fæða enda
fara vinsældir hans sívaxandi.
Kjúklingaréttir passa vel fyrir
lífsstíl margra í dag, þar sem
maturinn þarf að vera fljótlegur
og hollur.
Sérstaklega eru þeir hentugir
þegar nýja haustgrænmetið er
komið í verslanir og þá er lítið mál
að slá upp hversdagsveislu.
Ofnbökuð gljáð kjúklingalæri
með nýjum hráum gulrótum
› 600 g kjúklingalæri
› 100 g nýjar gulrætur beint úr
garðinum eða frá bónda
› salt og pipar
Aðferð
Steikið lærin í ofni við 160–170
gráður í 35–40 mínútur eða grillið
ef það er enn við höndina.
Gott er að bera lærin fram með
fersku salati og steiktum kartöflu-
bátum – og hráum gulrótum sem
gott er að dýfa í sýrðan rjóma
með kryddjurtum með ögn af
sítrónusafa. Líka hægt að nota sem
sósu með kjúklingnum.
Kalkúnabringur með maltgljáa
og rósmarin
Ef margir eru í mat ætti að vera
auðvelt að hægelda kalkúnabringu
og svo brúna á grilli eða pönnu.
› 1 heil kalkúnabringa
› 1 lítil maltdós
› 1 hvítlaukur
› 1 grein rósmarín
› 20 g púðursykur
› 20 g sinnep
› olía
› salt og pipar
Aðferð
Blandið kryddleginum saman í
poka; olíu, söxuðum hvítlauk,
púðursykri, salti, pipar og sinnepi.
Setjið til hliðar.
Færið kalkún í ofnfast fat og bakið
við vægan hita þar til kjötmælir nær
65 gráðum, brúnið svo á pönnu eða
undir grilli í ofni. Ef notað er grill
skal grilla við vægan hita í um
hálftíma eða þar til kalkúnninn er
fulleldaður.
Penslið reglulega yfir kalkúninn með
kryddleginum.
Gott getur verið að krydda aðeins
betur með salti og pipar.
Ef mikill safi lekur niður er gott
að setja álpappír undir
kalkúninn svo kvikni
ekki í veislunni.
Súkkulaðikaka
í formi
› 200 g dökkt
hágæðasúkk ulaði
› 1 egg
› 3 eggja-
rauður
› 175 g smjör
› 40 g sykur
Saxið súkkulaðið og hitið
við vægan hita í örbylgjuofni
eða yfir vatns-
baði. Bætið
bræddu smjöri
við og hrærið
saman við einu
eggi og svo
einni rauðu
ásamt sykri.
Bakið til dæmis
í sílikon formi
eða formi með
smjörpappír við
180 gráður í 6–7
mínútur.
Gott að reiða
fram með súkku-
laði sósu og
jafnvel vanillu-
ís og íslenskum
berjum eða
þeyttum rjóma
(stundum þarf að
kæla súkkulaðið
til að ná því úr
forminu).
Bjarni Gunnar Kristinsson
Matreiðslumeistari
Stóra-Ármót