Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201910
FRÉTTIR
Í síðasta Bændablaði var um fjöllun
um Halldór Kristján Jónsson, sem
er síðasti starfandi hreppstjórinn á
Íslandi. Þar var líka upptalning á
landshlutum og sveitarfélögunum
70 sem í þeim eru, en þar af eru
25 hreppar. Þar er sagt að enginn
hreppur sé á höfuðborgarsvæðinu,
sem er ekki rétt því Kjósarhreppur
er þar eitt sveitarfélaganna 7 sem
þar eru.
Kjósarhreppur er þar útvörður á
norðurlandamærunum við Vestur
land sem tekur við í Hvalfjarðarbotni.
Er hreppurinn jafnframt stærsta
sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu
að flatar máli, en um leið fámennasta
sveitarfélagið. Þar voru skráðir 238
íbúar þann 1. janúar 2019.
Sigríður Klara Árnadóttir,
matvæla og rekstrarfræðingur,
situr í hrepps nefnd Kjósarhrepps og
er þar varaoddviti og er skrifstofu
stjóri á hreppsskrifstofunni.
Oddviti er hins vegar Karl Magnús
Kristjánsson, sem er þá eins konar
ígildi sveitarstjóra. Sigríður segir
mikinn kraft og gleði ríkja í
Kjósinni.
Öflug innviðauppbygging
Þrátt fyrir fámennið hafa íbúarnir lyft
grettistaki í innviðauppbyggingu
með hitaveituframkvæmdum og
lagningu ljósleiðara. Í blaðinu
Vesturlandi, sem kom út í júlí
á þessu ári, er mikið viðtal við
Sigríði. Hún er reyndar fædd og
uppalin Reykvíkingur en á ættir að
rekja austur á Seyðisfjörð. Sigríður
er gift Óðni Elíassyni, refaskyttu
og lögfræðingi, sem borinn er
og barnfæddur Kjósverji. Fyrir
sex árum fluttu þau endanlega
úr höfuðborginni í Kjósarhrepp
og segist Sigríður ekkert sakna
Reykjavíkur. /HKr.
Dagana 29. til 30. apríl 2020 verður
alþjóðleg ráðstefna á Grand Hótel
í Reykjavík um smáþörunga. Er
þetta í tíunda sinn sem haldin er
ráðstefna af þessum toga undir
heitinu European Algae Industry
Summit.
Ráðstefnugestir munu m.a. heim
sækja fyrirtækið Algalife Iceland
sem hóf starfsemi í október 2013
og framleiðir nú fjölbreytt úrval
fæðubótarefna. Umræða og áhugi
á nýtingu smáþörunga hefur farið
mjög vaxandi á undanförnum árum,
en Bændablaðið hefur ítrekað
fjallað um þessi mál og síðast í 18.
tölublaði 26. september síðastliðinn.
Þar kemur fram að smáþörungar
eru afar öflugir við að um breyta
með ljóstillífun koltvísýringi í
andrúms loftinu í olíu sem nýta má
til manneldis, dýrafóðursgerðar
og til að framleiða lífrænt og
kolefnishlutlaust eldsneyti m.a. á
þotur. Þá framleiða smáþörungar
að talið er um 70% af súrefni
heimsins og á sumrin má oft sjá á
gervihnattamyndum gríðarlega stóra
fláka af þörungabreiðum í hafinu
nærri Íslandi.
Í fréttaskýringu í Bændablaðinu
26. september er m.a. vitnað
í grein og viðtal í Forbes
undir fyrirsögninni „Sjáum
hvernig þörungar gætu breytt
veröldinni okkar“. Þar er vísað í
loftslagsvísindamanninn Charles
Greene, sem er prófessor við
Cornellháskóla og félagi í Marine
Algae Industrialization Consortium
(MAGIC), sem hefur m.a. fengist
við að skoða hvernig hægt sé að
nota smáþörunga til að framleiða
lífeldsneyti. Hann segir að hægt sé
að framleiða allt eldsneyti og allt
prótein sem mannkynið þurfi á að
halda úr þörungum.
Árið 2050 munum við hafa 9,5
til 10 milljarða manna í heiminum
og með þörungum höfum við fundið
leið til að fæða þetta fólk með því að
framleiða mikið magn af próteini.
Kannski munum við ekki sannfæra
hinn vestræna heim um að breyta
mataræði sínu strax, en við höfum
leið til að berjast gegn vannæringu í
þróunarlöndunum og það eitt og sér
gerir það áhugavert,“ sagði Greene.
Greinina í Bændablaðinu má finna
á vefsíðu blaðins bbl.is. /HKr.
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Tækifæri og áskoranir við
uppbyggingu smávirkjana á Íslandi
Ráðstefna á Grand Hótel 17. október 2019
08:00 Skráning og morgunverður
08:30 Setning ráðstefnu
- Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri
08:40 Ávarp ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
08:50 Öryggisstjórnkerfi virkjana
- Óskar Frank Guðmundsson, sérfræðingur hjá Mannvirkjastofnun
09:10 Umhverfismat fyrir smærri virkjanir - Jakob Gunnarsson, sviðsstjóri hjá
Skipulagsstofnun
09:30 Smávirkjanir og dreifikerfið
- Kjartan Rolf Árnason, deildarstjóri tæknisviðs hjá RARIK
09:50 Kaffihlé
10:10 Smávirkjanir og flutningskerfið
- Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóri þróunar- og tæknisviðs
10:30 Fjármögnun smávirkjana - Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar
10:50 Smávirkjanir í Noregi - Knut Olav Tveit, Daglig leder, Småkraftforeningen
11:10 Hafa orkufyrirtækin áhuga á að kaupa orku frá smávirkjunum
- Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri framleiðslu og sölu hjá HS Orku
11:30 Virkjanasaga Húsafells - Arnar Bergþórsson, stjórnarformaður Arnarlækjar
11:50 Samantekt og fundi slitið
Fundarstjóri Erla Björk Þorgeirsdóttir verkefnisstjóri hjá Orkustofnun
Skráning á fundinn og útsending frá fundinum er á os.is
Orkustofnun efnir til ráðstefnu um tækifæri og áskoranir við
uppbyggingu smávirkjana á Íslandi. Fjallað verður um umhverfismat,
tengingar smávirkjana við dreifikerfið, fjármögnun og fleiri atriði er
varðar smávirkjanir. Einnig verða sagðar reynslusögur af uppbyggingu
smávirkjana bæði á Íslandi og í Noregi.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra mun ávarpa ráðstefnuna.
Kjósarhreppur er eitt af sjö sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu:
Fámennasta en stærsta sveitarfélagið
er í öflugri innviðauppbyggingu
Tvöfalt fleiri gestir komu í
sund í Varmahlíð í sumar
Sundlaugarnar í Skagafirði voru
vel sóttar á liðnu sumri en gestir á
tímabilinu frá byrjun júní til loka
ágúst voru ríflega 47 þúsund og er
það 6% aukning frá sama tímabili
á síðastliðnu ári.
Mestu munar um aukinn gesta
fjölda í sundlaugina í Varmahlíð,
en hann tvöfaldaðist á þessu tíma
bili. Börnum fjölgar langmest í
gestahópnum, en það má án efa
rekja til þess að ný rennibraut
var tekin í notkun í vor. Fjölgun
gesta í sundlaugina í Varmahlíð
nema 98,3% í sumar miðað við
það sem var í fyrrasumar, þegar
þeir voru 5781. Nú í sumar sóttu
11.462 Varmahlíðarlaugina heim.
Sveitarfélagið Skagafjörður rekur
einnig sundlaugar á Sauðárkróki,
Hofsósi og í Sólgarði. Í þeim tveimur
fyrstnefndu varð fækkun gesta í
sumar 6 og 9% en 4% aukning gesta
varð í sundlaugina í Sólgarði. /MÞÞ
Sjúkraflutningamenn verða áfram á vakt
í þjóðgarðinum á Þingvöllum alla daga
Heilbrigðisstofnun
Suður lands (HSU)
og þjóðgarðurinn
á Þingvöllum hafa
fram lengt samn ing
sinn um að sjúkra
flutninga menn verði
í Þjóðgarðinum alla
daga til að veita
öryggis og viðbragðs
þjónustu á staðnum.
Um tilrauna verkefni
var að ræða í eitt ár
sem hófst sumarið
2018 en nú hefur verið
ákveðið að halda áfram
með verkefnið því
það hefur gengið svo
vel. „Já, með viðveru
sjúkraflutningamanna
alla daga í þjóð
garðinum með vel útbúinni
bifreið fyrir fyrstu viðbrögð
hefur skapast aukið öryggi
og viðbragðstími er styttri ef
verða alvarlega atvik
eða slys á svæðinu.
Mörg dæmi síðasta ár
hafa sýnt að viðvera
sjúkraflutningamanns
á staðnum hefur skilað
hraðari aðkomu við
bjargir í alvarlegum
tilfellum.
Staðsetning við
bragðs bifreiðar og
sjúkra flutninga manns
hefur líka leitt af sér
betri þjónustu við aðra
staði í nágrenninu en
sjúkraflutninga maður á
vakt fer iðulega í útköll
á nærliggjandi stöðum
utan við þjóðgarðinn,“
segir Einar Á. E.
Sæmundsen þjóð
garðs vörður, alsæll með nýja
samninginn. /MHH
Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður og Herdís
Gunnarsdóttir, forstjóri HSU, undrrituðu framtíðarsamninginn
á Hakinu á Þingvöllum.
Alþjóðleg ráðstefna
um smáþörunga
– verður haldin í Reykjavík í lok apríl 2020