Bændablaðið - 10.10.2019, Side 13

Bændablaðið - 10.10.2019, Side 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 13 Útgáfa hjá Matís: Vefrit um geita- og sauðamjaltir og smáframleiðslu á hangikjöti Matís hefur gefið út tvö vefrit um annarsvegar hangikjöt og hins vegar geita- og sauðamjaltir. Um er að ræða faggreinaleiðbeiningar fyrir góða starfshætti og innra eftirlit fyrir smáframleiðendur. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkar leiðbeiningar eru gefnar út. Óli Þór Hilmarsson, sérfræð­ ingur hjá Matís, tók textann saman og teikningar eru eftir Sólveigu Evu Magnúsdóttir. Óli Þór segir leiðbeiningarnar alfarið byggðar á þeim lögum og reglugerðum sem fara þarf eftir við framleiðslu á þeim vörum sem þær ná yfir. „Þær eru settar fram í aðgengilegum texta, oft með skýringarmyndum. Leiðbeiningarnar eru lesnar yfir af eftirlitsaðilanum, í þessu tilfellli Matvælastofnun, sem að lokum samþykkir að skilningur laga og reglna komist sem best til skila. Þar með eru komnar skýrar leiðbeiningar um hvernig skuli staðið að framleiðslu á hinum ýmsu vörum. Í löndunum í kringum okkur hefur útgáfa sem þessi verið stunduð lengi, hvort heldur það er til einföldunar fyrir smáframleiðendur eða hina stærri. Fagleiðbeiningarnar fyrir Geita­ og sauðamjaltir voru unnar í samvinnu við Geitfjárræktarfélag Íslands, Landssamband sauðfjárbænda, samtök in Beint frá býli og Matvæla­ stofnun. Fag leið bein­ ingarnar fyrir hangikjöt voru unnar í samvinnu við Landssamtök sauðfjár­ bænda, Matvælastofnun og samtökin Beint frá býli. Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar í gegnum vef Matís, undir „Útgáfa og miðlun“. /smh Sýnishorn úr leiðbeiningaritinu um framleiðslu á hangikjöti. Óli Þór Hilmarsson tók textann saman í handbókunum.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.