Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201914
Ungum veiðimönnum hefur
fjölgað verulega í sumar,
silungsveiðin hefur gengið vel og
veiðimenn verið að fá flotta veiði
víða um land. Veðurfarið var gott
í sumar og fjölskyldur gátu farið
saman að veiða í blíðunni sem var
í næstum allt sumar.
„Veiðikortið seldist vel í sumar,
margir náðu sér í kort til að geta veitt
víða um land,“ sagði Ingimundur
Bergsson hjá Veiðikortinu um
sumarið, sem gaf vel í mörgum
veiðivötnum.
„Já, sumarið kom vel út hjá
okkur,“ sagði Ingólfur Kolbeinsson
í Vesturröst. Silungsveiðin gekk vel
í sumar, mjög vel, síðan laxveiðin
eins og hún var, haustið er búið að
vera gott, skotveiði og mjög góð
sjóbirtingsveiði,“ sagði Ingólfur enn
fremur.
Margir veiðimenn hafa fengið
sinn fyrsta fisk í sumar en auðvitað
eiga þeir að geta veitt sem víðast.
Stangaveiðifélagið var með daga
fyrir unga veiðimenn og veiðin gekk
vel, nokkrir fengu maríulaxinn sinn
og það er auðvitað sem allir eru að
reyna, fyrsti fiskurinn, fyrsti laxinn.
„Það var gaman að fá flottan
fisk,“ sagði Helgi Þór Andrésson,
sem var einn af þeim mörgu sem
veiddi sinn fyrsta fisk í næsta
nágrenni Akureyrar. Hann var
ánægður með fiskinn eins og fleiri
veiðimenn. Það er toppurinn að fá
sinn fyrsta fisk. Og landa honum
eftir töluverða baráttu.
„Við maðurinn ákváðum að
skella okkur einn dag í Jōklu
áður en tímabilið væri búið,“
sagði Bára Péturs er við spurðum
um veiðitúrinn í Jöklu fyrir
skömmu og þar átti ýmislegt eftir
að gerast.
„Jōkla sjálf var kakó svo að við
veiddum hliðarárnar. Við vorum
búin að sjá eitthvað af fiski en ekkert
fengið. Þegar við komum að Laxárós
var ákveðið að kasta spún, en við
höfðum verið að kasta flugu fyrir
það. Það var búið að segja okkur
frá spún í Veiðiflugunni sem heitir
„Remen mōre silda“, kopar með
svartri rönd og18 grömm og ákvað
var að prufa hann. Ég var búin að
taka nokkur kōst en ekki orðið vōr
við neitt, festi spúninn einu sinni en
ákvað svo að kasta aftur, og fannst
ég vera fōst aftur, hugsaði með mér,
jesús minn, þetta ætlar að ganga
brösuglega, svo allt í einu fór stöngin
að hristast og kengbognaði. Ég vissi
lítið hvað ég var að gera enda bara í
4. skipti sem ég fer að veiða svona.
Ég gargaði á manninn minn og sagði
að ég væri með fisk, hann leiðbeindi
mér hvað ég ætti að gera.
Ég var sirka 10 mín. að landa
laxinum. Ég hef aldrei lent í öðrum
eins átökum við fisk og var alveg
gáttuð á því hvað þeir geta verið
sterkir. Það byggðist upp alveg
rosaleg spenna á þessum 10 mín.
og fékk ég hálfpartinn spennufall
þegar laxinn var kominn í land, þetta
var 75 sentímetra hængur. Það var
rosaleg gleði hjá mér og brosið náði
sennilega tvo hringi um andlitið,
hjartað hamaðist á milljón, maríluax
kominn á land! Ég var enn rosalega
gáttuð á því hvað hann var sterkur
og hvað þetta var erfitt, en svo stolt
af sjálfri mér á sama tíma. Þetta
varð til þess að ég varð alveg veik,
nú þýðir ekkert annað en að skella
sér til Björgvins í Veiðiflugunni og
galla sig upp fyrir næsta sumar og
ná næsta laxi á flugu,“ sagði Bára
enn fremur.
HLUNNINDI&VEIÐI
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
bílar
Kæli- & frystibúnaður
frá Carrier í miklu úrvali.
Fyrir allar gerðir af sendi- og flutningabílum.
hurðir
Hentar afar vel fyrirtækjum
í landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði.
fyrir kæla
Kæli- & frysti-
búnaður
hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
KAPP ehf ¬ Véla-, kæli- & renniverkstæði
Miðhrauni 2 ¬ 210 Garðabær
Sími: 544 2444 ¬ Fax: 544 2445
kapp@kapp.is ¬ www.kapp.is
Við erum sérfræðingar
á okkar sviði
CARRIER
Sölu- og þjónustuaðilar
SCHMITZ
Sölu- og þjónustuaðilar
BOCK kæli- og frystipressur
Sölu- og þjónustuaðilar
DHOLLANDIA
Sölu- og þjónustuaðilar
TAIL LIFTS
Höfum áratuga reynslu á sviði
– Rennismíði, fræsivinnu & CNC
– Kæliþjónustu & kæliviðgerða
– Vélaviðgerða & viðgerða á heddum
– Málmsprautunar og slípunar
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
„Maríulaxinn var sterkur“
Bára Péturs með maríulaxinn úr Jöklu.
Veiði á að vera fyrir alla
Ungir og stórefnilegir veiðimenn við veiðar í Eyjafirði við Ystu-Vík.
Mynd / María Gunnarsdóttir
Hann syndir áfram um Miðá
„Já, hann er flottur fiskurinn sem
Ómar Óskarsson veiddi í Miðá í
Dölum, eins metra fiskur og hann
syndir áfram um ána, honum var
sleppt aftur,“ sagði veiðimaðurinn
Gunnlaugur Guðleifsson, en hann
var ásamat fleirum í Miðá í Dölum
fyrr í sumar og þeir veiddu nokkra
laxa og þennan stóra flotta fisk.
Skrýtnu veiðitímabili er lokið
og aldrei hefur veiðin verið svona
slöpp, sumir fengu ekki högg í allt
sumar en haustið hefur bjargað
málunum.
Eða eins og einn veiðimaðurinn
sagði orðrétt:
„Fjörið byrjaði í haust, konan
var eiginlega búin að gefa mig
upp á bátinn í veiðinni en þá
byrjaði fjörið, ég fékk hvern
fiskinn á fætur öðrum. Fyrst fór
ég austur í sjóbirting og veiddi
tíu flotta sjóbirtinga, síðan aðra
fimm sjóbirtinga í Varmá og svo
endaði ég í laxveiði og veiddi sex
flotta fiska. Verst að konan vildi
koma með í síðasta veiðitúrinn og
auðvitað var það ekkert mál. En
hún veiddi alla fiskana sem komu
á land í síðasta túrnum og það var
svolítið skrítið, en allt í lagi, svona
er þetta bara,“ sagði veiðimaðurinn
enn fremur.
Ekki er allt fullkomið í veiðinni,
það vita flestir, en það kemur annað
sumar eftir þetta og þá verður
eflaust betri veiði hjá flestum.
Ómar Óskarsson með flottan laxinn
úr Miðá í Dölum.
Veiðimaðurinn ungi með fiskinn. Mynd / Þórir
Margir veiðimenn eru
ánægðir með fenginn
Margir ungir veiðimenn hafa veitt
fisk eða fiska í sumar, fiskarnir
eru misstórir en veiðimennirnir
eru allir hressir með veiðina. Það
skiptir engu þó fiskurinn sé ekki
stór, bara að veiða eitthvað og fá
fiskinn til að taka agnið.
Anna Þórisdóttir í Borgarnesi,
8 ára, veiddi sinn fyrsta silung
í bæjarlæk vestur á Mýrum í
vatnavöxtum á haustdögum, urriða
sem tók maðkinn og vó um 1 pund,
og hún var verulega hress með að
ná fyrsta fisknum sínum.
„Jú, hún var heldur betur ánægð
þegar hún veiddi fiskinn sinn,“ sagði
Þórir Valdimar Indriðason, faðir
hennar, um fiskinn.
„Hún var búinn að reyna að veiða
fisk nokkrum sinnum og svo tók
þessi urriði. Það var skemmtilegt að
fá eitthvað,“ sagði Þórir enn fremur.
Haustverkin í veiðiánum
Veiðum lauk um miðjan septem
ber í Norðurá í Borgar firði og
endaði áin í 557 löxum. Veitt var
í klak eftir það aðeins í ánni og
verður fiskurinn kreistur um
miðjan október og mun Sigurður
Már fiskifræðingur stýra verkinu.
Hrognin verða síðan grafin í efri
hluta árinnar á völdum stöðum.
Þetta sama hefur verið gert í Laxá
í Dölum, meðal annars til að hjálpa
ánni og er þetta virðingarvert
framtak. Nýr laxastigi er líka
kominn í Sólheimafoss í Laxá í
Dölum.
Nýir leigutakar eru komnir með
Blöndu á leigu en það eru Starir
sem eru með Þverá, Straumana,
Brennuna og Víðidalsá meðal
annars. Árleigan er kringum
60 milljónir en Laxá og Árni
Baldursson leigðu áður Blöndu.