Bændablaðið - 10.10.2019, Síða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201918
HROSS&HESTAMENNSKA
„Rökin fyrir 1.000 íbúa lágmarki
finnast hvergi, Alþingi má aldrei
setja slík mörk bara til að gera
eitthvað,“ segir í ályktun sem
sveitarstjórn Grýtubakkahrepps
hefur samþykkt, en hún hafnar
alfarið lögþvingaðri sameiningu
sveitarfélaga.
Sveitarstjórnin bendir á að sjálf
bærni sveitarfélaga fari ekki eingöngu
eftir íbúafjölda og minni sveitarfélög
standist ný skuldaviðmið almennt
betur en þau stærri. Þá er einnig
nefnt að mörg minni sveitarfélög
veiti íbúum góða þjónustu og í þeim
sé lýðræðis leg virkni almennt meiri
en í stærri sveitarfélögum. Jaðarsvæði
eigi jafnan erfiðast í sameinuðum
sveitarfélögum.
Þó svo að sveitarfélög starfi
saman að þjónustu sem hentugt
þykir hafi það ekki neitt að gera
með stærð þeirra. Eins bendir
sveitarstjórnin á að þó svo að
faglegir veikleikar kunni að vera
á þjónustu minni sveitarfélaga
búi þau líka yfir mikilvægum
styrkleikum, svo sem yfirsýn og
nánd. „Sameining sveitarfélaga þar
sem innan við 5% íbúa landsins
býr, breytir sáralitlu um styrk
sveitarfélagsins í heild,“ segir í
ályktun sveitarstjórnar Grýtubakka
hrepps.
Minni sveitarfélögum
haldið utan vinnunnar
Hún átelur að minni sveitarfélögum
hafi beint og óbeint verið haldið utan
við vinnu sem fólst í gerð tillögu um
sameiningu sveitarfélaga og 1.000
íbúa markið. Minni sveitarfélög hafi
ekki komið að þeirri vinnu. Þá hafi
stærri sveitarfélög beitt þau minni
aflsmun á landsþingi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og m.a. talið
sér sæma að samþykkja á þinginu
að minni sveitarfélög skyldu annan
hvort sameinast innbyrðis eða renna
undir þau stærri. Til að fá þau á
sitt band hafi stórfé verið lofað úr
jöfnunarsjóði.
„Stuðningur sumra minni sveitar
félaga helgaðist líka af því að þau eiga
þegar í viðræðum um sameiningu. Það
er sérstakt að slík sveitarfélög, sem
vilja jafnvel alls ekki sameinast stórum
nágranna sínum sjálf, styðji tillögu
sem þvingar önnur lítil sveitarfélög
í þá stöðu,“ segir sveitarstjórnin í
Grýtubakkahreppi. „Það er einnig
sérstakt að samþykkt þings, sem
þannig er fengin, sé blygðunarlaust
kynnt sem vilji sveitarfélagsstigsins í
heild, þó gangi þvert gegn vilja mikils
meirihluta þeirra sveitarfélaga sem
tillagan snertir með beinum hætti.“
Ný jaðarsvæði verða til
í nýju sveitarfélögunum
Grýtubakkahreppur telur það ganga
þvert gegn öllum markmiðum tillög
unnar að þvinga fram samein ingar
sveitarfélaga „þar sem fyrir séð er að
þær muni ná yfir mjög stór landsvæði
eða að ný jaðarsvæði í stórum
sveitarfélögum verða til og þar sem
íbúar eru sannfærðir um að sameining
muni leiða til skertra lífskjara og
lakara þjónustustigs,“ eins og segir
í ályktuninni og að alls ekki sé
viðunandi að Alþingi samþykki slíka
tillögu í nafni lýðræðis og undir því
fororði að styrkja eigi búsetu úti
um landið, þegar áhrifin á sumum
svæðum verði þveröfug.
Grýtubakkahreppur gagnrýnir
ráð herra fyrir að hafna því að
bjóða litlu sveitarfélögunum til
fundar og heyra þeirra sjónarmið,
en hreppurinn heitir á Alþingi að
hlusta á þeirra sjónarmið. Ófært sé
að góð markmið í tillögunni falli
í skuggann af valdbeitingu stærri
sveitarfélaganna.
Hvergi finnast rök fyrir
1.000 íbúa lágmarkinu
Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri
í Grýtubakkahreppi, bendir í pistli
á heimasíðu hreppsins á að alls séu
um þessar mundir 39 sveitarfélög
í landinu sem ekki nái 1.000 íbúa
markinu, af 72 sveitarfélögum alls.
„Fyrir svo harkalegri aðgerð
þurfa að vera ríkir hagsmunir og
sterk rök. Því er ekki að heilsa í
þessu máli, enda alger fásinna að
sameining sveitarfélaga, þar sem
aðeins 5% þjóðarinnar búa, í eitthvað
stærri einingar, hafi nokkur áhrif á
styrk sveitarfélaga landsins í heild.
Raunar finnast hvergi í gögnum eða
ferli málsins nokkur rök fyrir þessu
lágmarki.
Hins vegar er mörgu snúið alveg
á haus, t.d. að samstarf sveitarfélaga
sé ólýðræðislegt þar sem íbúar færist
fjær ákvarðanatöku og ábyrgð, því
þurfi sveitarfélög að vera svo stór að
þau ráði við að sinna þjónustu ein
og óstudd. Af þessum sökum þurfi
að sameina lítil sveitarfélög. Hvergi
er hins vegar nefnt hvaða þjónustu
er átt við, eða hvaða þjónustu íbúar
litlu sveitarfélaganna séu ekki að
fá. Enda er staðreyndin sú að íbúar
minni sveitarfélaga eru almennt
sáttir og fá ágæta þjónustu.“
Valdi samstarf lýðræðisbresti
Þröstur segir samstarf sveitar
félaga um rekstur og þjónustu
ganga ágætlega og sé hagkvæm
leið fyrir íbúana og hafi hvorki
með stærð þeirra né lýðræði að
gera. Valdi samstarf sveitarfélaga
lýðræðisbresti væri ekki úr vegi
að hefjast handa þar sem hann er
mestur, þ.e. á höfuðborgarsvæðinu
þar sem hefð er fyrir miklu samstarfi
sveitarfélaga.
Þröstur segir það alvarlegt að
takmarkað samráð hafi verið haft
við litlu sveitarfélögin og að auki
rangt farið með þegar frá því sé sagt,
m.a. að tillaga um sameiningu sé
lögð fram með velþóknun sveitar
stjórnar stigsins í heild og að allir séu
jákvæðir og sammála tillögunum. Í
engu sé getið um harða andstöðu
gegn lögþvinguðum sameiningum
né efasemdum um þá leið, sem þó
sé áberandi í umsögnum margra
sveitar félaga. /MÞÞ
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hafnar lögþvingaðri sameiningu sveitarfélaga:
Segir engin rök lögð fram fyrir 1.000 íbúa lágmarkinu
FRÉTTIR
Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri í
Grýtubakkahreppi.
Úr Grýtubakkahreppi.
Matvælastofnun breytti í fyrra
haustskýrsluskilum umráða
manna hrossa í þeim tilgangi að
styrkja hagtölusöfnun um fjölda
hrossa í landinu. WorldFengur
(WF), upprunaættbók íslenska
hestsins, bauð þá upp haust
skýrslu skil í heimarétt hvers
eiganda, sem mjög margir nýttu
sér.
Tilgangurinn var að gera eigend
um hrossa auðveldara að skila
árlegri haustskýrslu í Bústofni,
því gögn úr WF fluttust þá með
rafrænum hætti yfir í gagna grunn
Bústofns. Á móti þurftu eigendur
hrossa að leggja nokkra vinnu í
fyrsta skipti við að staðsetja hross
sín á bú eða hesthús í þéttbýli,
yfirfara skráningu um umráðamann
og almennt yfirfara skráða hestaeign
sína í WF.
Margþætt hlutverk WorldFengs
Rétt er að leggja áherslu á að
WorldFengur er allt í senn;
uppruna ættbók íslenska hestsins
á veraldarvísu, skýrsluhaldskerfi
og hjarðbók. Þeir búfjáreigendur
sem eiga annað búfé en hross
skila áfram haustskýrslu í gegnum
Bústofn eins og verið hefur.
Það er ekki nokkur vafi á því
að með þessu nýja fyrirkomulagi
náðist umtalsverður árangur í að
bæta hagtölusöfnun um hrossaeign
í landinu og bæta lögbundna
skráningu hrossa í hjarðbók, og
á sama tíma að auðvelda skil til
lengri tíma litið á haustskýrslu fyrir
þorra hestamanna í þéttbýli.
Breytingar í samræmi við lög
Breytingarnar sem voru gerðar
síðastliðið haust á skráningum
haustskýrslna og í heimarétt
WF auðvelda umráðamönnum
hrossa að uppfylla ákvæði laga
um búfjárhald og reglugerðar
um merkingar bú fjár. Jafnframt
leiddi hið nýja fyrirkomulag til
þess að auðveldara er að átta sig
á hvar þurfi að styrkja eftirlit
með hagtölusöfnininni hjá þeim
sem hafa hunsað lögbundna
skráningu hrossa í hjarðbók og/
eða á haustskýrslu.
Matvælastofnun hefur nú upp
lýs ingar um fjölda hrossa sem
eigendur hafa ekki örmerkt,
tölvuvert var um leiðréttingar
á afdrifum hrossa og geldingi
stóðhesta. Matvælastofnun mun
fylgja fast á eftir að skráningar í
hjarðbækur og merkingar hrossa
séu fullnægjandi.
Dýraeftirlitsmenn Matvæla
stofnunar geta nú með sérstöku
eftirlitsAppi með tengingu við
AppFeng skimað örmerki í
hrossum í hesthúsum, og fengið
strax upplýsingar um hvort hross
hafi verið talið fram á haustskýrslu
og skráð í WF, auk upplýsinga um
hross og umráðamenn úr WF og
Bústofni.
Aftur komið að haustskýrslum
Nú er komið að haustskýrslu skilum
að nýju, en skila á haustskýrslu
eigi síðar en 20. nóvember nk. í
samræmi við lög um búfjárhald.
Eigendur hrossa eru vinsamlega
beðnir um að yfirfara skráningu í
heimarétt WorldFengs og gera þær
leiðréttingar sem nauðsynlegar eru,
ef þeirra er þörf.
Rétt er að benda á að skv. 11. gr.
laga um búfjárhald ber umráðamaður
búfjár kostnað af eftirliti reynist
haustskýrsluskil ófullnægjandi.
Allir hestaeigendur geta fengið
sérstakan hjarðbókaraðgang að WF
þeim að kostnaðarlausu. Aðgang
að hjarðbók veitir tölvudeild
Bænda samtaka Íslands (netfang:
tolvudeild@bondi.is). Þá veitir
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
einnig aðstoð við skráningu á
haustskýrslum og skýrsluhald í
hrossarækt.
Jón Baldur Lorange,
framkvæmdastjóri
Búnaðarstofu
Matvælastofnunar
Bjarki Pjetursson,
sérfræðingur hjá
Búnaðarstofu
Matvælastofnunar
Eigendur hrossa eru vinsamlega beðnir um að yfirfara skráningu í heimarétt WorldFengs:
Skila á haustskýrslu eigi síðar en 20. nóvember
í samræmi við lög um búfjárhald
Bjarki Pjetursson, sérfræðingur hjá Búnaðarstofu og Jón Baldur Lorange
framkvæmdastjóri. Myndir / HKr.
Á Emstruleið.