Bændablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201922
TÆKNI&VÍSINDI
UTAN ÚR HEIMI
Stór hluti af rekstri Ciderhuset er að taka á móti gestum sem eru áhugasamir um ávaxtaræktun staðarins. Myndir / ehg
Ciderhuset í bænum Balestrand í Noregi:
Þar snýst lífið um ávaxtaræktun og safagerð
Hjónin Åge Eitungjerde og Eli-
Grete Høyvik eiga og reka ásamt
syni sínum og tengdadóttur Cider-
huset í bænum Balestrand í Noregi.
Þar framleiða þau um 300 þúsund
lítra árlega af lífrænum epla safa
og eplasíder og hefur fram leiðslan
aukist jafnt og þétt frá því að þau
hófu reksturinn árið 1999. Að auki
reka þau sveitabúð á staðnum og
veitingastað með svæðisbundnum
vörum sem hefur fengið afar góða
dóma.
Balestrand er í Sognafirði í
Noregi og er svæðið áætlað að
vera eitt af elstu ávaxtaræktunar
svæðum í Noregi með rætur allt
aftur til ársins 1100. Í Sverrissögu
er aldinshagi í Vík í Sognafirði
nefndur og í Bjǫrgynjar Kálfskinn
er Æpplagard í Kvåle í Sogndal
nefndur. Vörurnar frá Ciderhuset,
sem markaðssettar eru sem Balholm,
eru þekktar víða um Noreg og eru
sjö starfsmenn hjá hjónunum við
safa og síderframleiðslu ásamt því
að sinna veitingahúsi staðarins yfir
sumartímann.
„Við létum pressa fyrir okkur
fyrsta eplasafann árið 1996 því
okkur fannst það svo sorglegt hversu
mikið af eplum voru send í Bflokk
til að gera blandaðan eplasafa úr fyrir
stórverslanir. Það hlaut að vera hægt
að gera eitthvað meira við þessa
flottu ávexti sem annars enduðu á
þennan veg. Síðan byrjuðum við að
þróa okkur áfram með framleiðslu
á eplavíni eða síder í kringum 2005
eftir að 80 ára framleiðslueinokun
var aflétt og aftur var leyfilegt að
framleiða síder og ávaxtavín. Fjórum
árum síðar færðum við enn frekar út
kvíarnar þegar við byrjuðum að eima
ávaxtabrennivín,“ útskýrir EliGrete.
Pressa um 400 tonn árlega
Åge er á heimaslóðum en amma hans
og afi áttu sveitabæinn og plöntuðu
fyrstu eplatrjánum árið 1922. Þau
hjónin fluttu til Balestrand árið 1989
og tóku við sveitabænum.
„Í dag pressum við í kringum 400
tonn af eplum á ári sem verða um
300 þúsund lítrar. Um 85 prósent af
því verður eplasafi en afgangurinn
verður að síder. Meirihlutinn af
eplunum sem við erum með hér eru
sérstök síderepli sem notuð eru í
síderinn. Þau koma upphaflega frá
Normandi og Somerset. Við erum
með í kringum þrjú þúsund tré,
mest af þeim eru eplatré en einnig
perutré, plómur og apríkósur sem
við búum til sultu úr og seljum
hér í sveitabúðinni okkar. Á milli
eplatrjánna ræktum við rabarbara
og erum með í kringum 100 ólíkar
tegundir af ávöxtum hér á bænum,“
segir EliGrete og bætir við:
„Ávextir og ber sem verða að
safa eða er bætt við í safa kaupum
við af öðrum ávaxta og berja
framleiðendum í Sognafirði, eins
og perur, hindber, kirsuber, bláber,
stikkilsber og fleira. Þetta á aðallega
við um borðepli, það er að segja
venjuleg epli til átu.“
Söguslóðir sídersins
„Þegar maður býr til síder eða epla
vín eru það í raun sömu lögmál sem
gilda eins og þegar maður býr til vín,
það er einungis gerjað úr eplum í
staðinn fyrir vínberjum. Ungur síder
hefur stuttan gerjunartíma, eða um
1–2 vikur. Fullgerjaður síder þarf
1–3 mánuði. Vel þroskaður síder
getur þurft 1–2 ár til að verða góður
og tilbúinn. Af því að við getum ekki
ræktað vínber svo norðarlega þá er
eplasíder í grunninn hið norræna
vín,“ útskýrir Åge og segir jafnframt:
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
Hjónin Åge Eitungjerde og Eli-Grete Høyvik eiga og reka ásamt syni sínum
og tengdadóttur Ciderhuset í bænum Balestrand í Noregi, en þar framleiða
þau um 300 þúsund lítra árlega af lífrænum eplasafa og eplasíder.
Ciderhuset í bænum Balestrand í Noregi.
Vöruúrvalið er fjölbreytt í sveita-
versluninni hjá þeim hjónum en í
dag framleiða þau 14 ólíkar tegundir
af eplasafa og eplasíder.
Það er ekki amalegt útsýnið út á
Sogna fjörðinn af veitingastaðnum
í Ciderhuset.