Bændablaðið - 10.10.2019, Side 24

Bændablaðið - 10.10.2019, Side 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201924 ÖKUTÆKI&ORKUSKIPTI Vaxandi áhugi á gasknúnum bílum í Svíþjóð: Metfjöldi nýskráninga á metanbílum Í ágúst voru meira en 1.000 nýir gasknúnir bílar skráðir í Svíþjóð samkvæmt nýlegri tölfræði frá Umferðar greiningunni. Það er mesti fjöldi skráðra metangasbíla á einum mánuði í Svíþjóð frá því byrjað var að birta tölfræði yfir nýskráða gasbíla árið 2006. Fjöldi gasknúinna bíla í Svíþjóð hefur verið tiltölulega stöðugur undanfarin ár, að því er greint var frá á heimasíðu Biogas Öst þann 10. september síðastliðinn. Fluttir hafa verið út álíka margir metangasbílar frá Svíþjóð og innflutningurinn nemur, eða um það bil 3.000–4.000 nýir bílar á hverju ári. Mikil eftirspurn er utan Svíþjóðar eftir gasknúnum bílum sem framleiddir eru í landinu, hefur það heldur dregið úr vextinum í Svíþjóð. Talið er að óvenjumikill fjöldi nýskráninga í ágúst stafi af auknum almennum áhuga á gasknúnum bifreiðum í kjölfar innleiðingar á nýja prófunar­ staðlinum WLTP (World wide harmonized light­duty vehicle test procedure) fyrir ný ökutæki. Langar biðraðir með tilkomu WLTP Síðan í september 2018 verður að prófa alla nýja bíla í Evrópu samkvæmt nýjum prófunar staðli, eða „samræmdum heims við­ miðunum við prófanir á léttum ökutækjum“, sem er ný leið til að mæla efnalosun í útblæstri bíla með sprengihreyfla. Þetta hefur orsakað langar biðraðir á rannsóknarstofunum sem geta annast prófanirnar og gefið vottanir um hvort nýir bílar standast reglur. Í þessum mælingum hafa bensín­ og dísilbílar oft forgang þar sem þeir eru enn ráðandi í bifreiðasölunni. Fjöldi vinsælla gasknúinna bílgerða hafa nú verið samþykktar og hægt er að bjóða þær til sölu. Hefur það greinilega leitt til sprengingar í nýskráningum gasknúinna bifreiða. Mun ódýrari í rekstri Fyrir utan að vera margfalt umhverfis­ vænni en dísilbílar, spillir ekki fyrir að gasknúnir bílar eru mun ódýrari í rekstri. Það gildir einnig fyrir slíka bíla á Íslandi og dæmi eru um að gasáfylling á bíl sem dugar í akstur til Akureyrar kosti innan við helming þess sem kostar að aka sambærilegum dísilbíl. Skráningar á lífdísilbílum dragast saman Það sem stuðlar að auknum vinsæld­ um metangasbíla er einnig talið líklegt til hækkandi verðs á dísilbílum sem falla undir HVO100 og hafa verið ráðandi á markaðnum. Árið 2017 var orkugeta í nýjum dísilbílum sem framleiddir voru í Svíþjóð 5.333 GWst. Það var komið í 3.726 GWst árið 2018 og í 3.726 GWst á fyrri hluta ársins 2019. Á fyrri hluta þessa árs fóru nýjar dísilbifreiðar með 1.050 GWst orkugetu út í umferðina í Svíþjóð. Það eru allt bifreiðar sem eru með vélar sem notað geta bíódísil undir staðlinum HVO100. Nýi WLTP mælingastaðallinn þýðir að auknar skyldur eru settar á framleiðendur véla varðandi nýtni eldsneytis við brennslu. Það þýðir að breyta þarf stærstum hluta kerfisins við framleiðslu dísilbíla. Rafbílum fjölgaði einnig en voru þó aðeins 3% í ágúst Af nýskráningum í ágúst voru 88 prósent dísil­ eða bensínbifreiðar, en aðeins 3 prósent voru hreinir rafbílar. Þá voru 3 prósent bensín­ bílar og 5 prósent tengil­tvinn bílar. Þetta þýðir að þótt endurhlaðan­ legum ökutækjum og gasknúnum bílum fjölgi mjög, eru samt nærri 9 af hverjum 10 nýjum bílum gerðarviðurkenndir fyrir bensín og dísil. Verið er að framleiða aukið magn af lífdísil og lífbensín og nú þegar er mikill fjöldi bifreiða á sænskum vegum sem geta notað þær eldsneytistegundir. Með því að auka hlutfall ökutækja sem geta notað aðra endurnýjanlega valkosti eins og rafmagn, lífgas, etanól og vetni eykst möguleikinn á að skipta um eldsneyti í umferðinni. „Við sjáum aukinn áhuga á gasknúnum bifreiðum bæði í einka­ geiranum og opinberum geirum. Það er mikilvægt að vinna að því að halda uppi jákvæðri þróun þar sem allir endurnýjanlegir kostir eru mikil vægur hluti lausnarinnar við að skipta út bifreiðum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti,“ segir Björn Isaksson, verkefnisstjóri hjá BioDriv Öst. Á heimasíðu Biogas Öst má finna bækling með upplýsingum um mikinn fjölda bíla sem brenna metangasi. Þar kemur m.a. fram að umhverfisáhrifin við að skipta yfir í gasknúna bíla sé veruleg. Þeir losi um 80% minna af koltvísýringi en bensín­ og dísilknúnir bílar. /HKr. Gasknúinn strætisvagn í Uppsala. Mersedes Benz Econic NGT. Scania Sería P.Suzuki Ignis Gas/Bensín. Efri mynd; Volkswagen gasbíll. Neðri mynd; Audi A3 Sportback g-tron fyrir gas og bensín. Vísindamenn við Illinois-háskóla í Chicago í Bandaríkjunum: Segjast hafa leyst gátuna við að búa til „liþíum-koltvísýringsrafhlöður” – Telja að slíkar rafhlöður hafi mun meiri þéttni og endist betur en núverandi liþíum-ion rafhlöður Vísindamönnum við Illinois- háskóla í Chicago (UIC) virðist hafa tekist að búa til endurhlaðan- lega liþíum-koltvísýrings rafhlöðu (lithium-CO2) sem eru með yfir sjö sinnum meiri orkuþéttni en liþíum-jóna-rafhlöður (lithium- ion batteries). Nú segjast vísindamenn hafa fengið liþíum­koltvísýringsrafhlöður til að virka fullkomlega eftir endur hleðslu. Telja þeir sig hafa staðfest í tilraunum að slíkar rafhlöður hafi langan líftíma og hægt sé að endurhlaða þær með 500 milliamperstunda (mAh g−1) hleðslu oftar en 500 sinnum. Það þýðir um 10 ára endingu miðað við hleðslu einu sinni í viku og er sagt mun meiri ending en hægt sé að ná með liþíum­ion rafhlöðum sem nú eru m.a. notaðar í bíla. Hefur grein um þetta m.a. verið birt í tímaritinu Advanced Materials og á heimasíðu Illinois­ háskóla. Fræðilegir útreikningar vegna verkefnisins voru gerðir af teymi doktors Larry Curtis hjá Argonne National­ rannsóknar stofunni. Þá var verkefnið styrkt af orkumála­ ráðuneyti Bandaríkjanna, skrifstofu orkunýtni og nýsköpunar í orkumálum og Vísindasjóði Bandaríkjanna (National Science Foundation) Amin Salehi­Khojin, dósent við vél­ og iðnverkfræðideild skólans, segir að liþíum­koltvísýrings­ rafhlöður hafi verið taldar vænlegur orkugeymslukostur um langa hríð vegna þess að þau hafa orkuþéttleika sem er meira en sjö sinnum meiri en algengt er í lithium­ion rafhlöðum. Fram til þessa hafi vísinda­ mönnum hins vegar ekki tekist að þróa koltvísýringsrafhlöður sem virki almennilega og séu endurhlaðanlegar. Þekkt sé að þegar liþíum­ koltvísýrings rafhlaða er notuð valdi efnahvörf umbreytingu í litíumkarbónat og kolefni. Litíum­ karbónatið endurvinnst meðan á hleðslu stendur, en kolefnið safnast bara upp, sem að lokum leiðir til þess að rafhlaðan hættir að virka. Salehi­Khojin og samstarfsmenn hans notuðu nýtt efni í tilraunir með koldíoxíð­rafhlöðuna til að bæta endur vinnslu bæði litíum karbónats og kolefnis við endurhleðslu. Til þess notuðu þeir, ef rétt er skilið, „MoS2 nanoflögur í bakskaut samhliða jónískum vökva úr dímetýl súlfoxíð raflausn“, hvað sem það annars þýðir á mannamáli. „Okkar einstaka samsetning hjálpar til við að gera fyrstu kolefnis hlutlausa liþíum­koltví­ s ýrings rafhlöðuna með miklu meiri skilvirkni og lengri líftíma, en hægt er að ná í sambærilegum rafhlöðum. Það gerir það kleift að nota þessa tækni í háþróuð orkugeymslukerfi,“ sagði Salehi­ Khojin. HKr.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.