Bændablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 29

Bændablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 29 Við sóttum um lífrænan aðlögunar­ styrk en þann styrk er hægt að sækja um á meðan aðlögun stendur yfir. Þessi styrkur breytti mjög miklu fyrir okkur og hefur gert það að verkum að við erum komin lengra af stað með okkar starfsemi en til stóð á þessum tímapunkti,“ útskýrir hún. Kláruðu aðlögun í maí „Við vorum alltaf með skýra stefnu um að fara í lífræna ræktun og sóttum því um að byrja í lífrænni aðlögun fljótlega eftir að við keyptum og við kláruðum tveggja ára aðlögunar­ ferlið núna í maí. Við byrjuðum strax að undirbúa okkar land undir ræktunina, byrjuðum að plægja og sá höfrum sem við tættum niður árið eftir og nú í sumar fóru gulrætur í það land. Jarðvegurinn kom mjög vel út í ræktun í sumar. Við hugsum mörg ár fram í tímann með tilliti til þess að stunda skilvirka skiptirækt,“ segir Sunna. Hún bendir á að það sé bæði fyrirhöfn og það kosti auk þess talsvert að koma sér upp góðum lífrænum jarðvegi. „Lífræn ræktun er dýrari og tíma frekari en hefðbundin ræktun. Kostnaður vegna frækaupa og lífrænna áburðar­ gjafa eru dýrari og töluverður kostnaður fer í vottunar gjöld. Oftast þarf að hafa meira ræktunarland vegna mikillar skiptiræktunar til að tryggja frjósemi jarðvegsins. Mestur tími fer þó í illgresiseyðingu þegar engin eiturefni eru notuð. Við höfum fengið ómetanlega aðstoð frá vinum og vandamönnum í allri okkar vinnu. Sumarið 2018 seldum við frá okkur smávegis af grænmeti, þá aðallega gulrótum, um 250 kíló. Nú í vor ákváðum við að stækka töluvert og sáðum gulrótum í tæpan hektara. Núna í byrjun október er búið að taka upp um sex tonn en enn er mikið eftir. Við seljum okkar vörur undir vörumerkinu Garðyrkjustöðin Sólbakki og eru þær seldar í nokkrum Samkaup­ búðum í Eyjafirði. Mikil eftirspurn eftir lífrænt vottuðu grænmeti Þær mæður segja að þær horfi fram á að geta unnið eingöngu við grænmetisræktunina í framtíð­ inni. „Við höfum rekið skrúð­ garðyrkju fyrirtæki á Akureyri í 10 ár og höfum unnið við það með­ fram grænmetis ræktuninni alveg þangað til núna í lok sumars. Við stefnum á að geta skapað okkur nægar tekjur til að geta unnið alfarið við grænmetisræktunina, alla vega við mæðgur,“ segir Sunna. „Við ætlum að nýta gróður­ húsið okkar betur og forrækta í því í vor og fjölga tegundum. Við ætlum einnig að rækta í smáum skala, kartöflur og rófur úti. Við höfum fengið gríðarlega góð viðbrögð við gulrótunum okkar sem er virkilega skemmtilegt. Við erum spenntar að halda áfram að framleiða gæðavörur og við finnum fyrir því að viðhorf neytenda er að breytast. Fólk hugsar sífellt meira um hvernig vörur eru framleiddar og mikil eftirspurn er eftir íslensku lífrænt vottuðu grænmeti.“ Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA VÍKURVAGNAR EHF. RAFMAGNSBÚNAÐUR BREMSUR BEISLI DEKK LJÓS LED LJÓS IÐNVER · Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík · Sími 517-2220 · idnver@idnver.is Óskum Steiná 2 í Svartárdal til hamingju með kvoðukerfið frá System Cleaners Lágþrýsti þvotta- og hreinlætiskerfi sem veitir einstakt öryggi í matvælaiðnaði og landbúnaði Sunna Hrafnsdóttir með nýjar gulrætur.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.