Bændablaðið - 10.10.2019, Page 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201932
HROSS&HESTAMENNSKA
Sýningarárið 2019
Í þessum pistli verður farið
yfir sýningarárið 2019 en það
einkenndist af góðri mætingu
hrossa til dóms, miklum áhuga
á kynbótasýningum og úrvali
frábærra hrossa. Þá voru haldin
tvö stórmót; Fjórðungsmót á
Austurlandi og Heimsleikar í
Berlín.
Alls voru haldnar 15 sýningar víðs
vegar um landið auk Fjórðungsmóts
Austurlands sem haldið var á
Fornustekkum. Felldir voru 1176
dómar, þar af 1031 fullnaðardómur
sem er svipaður fjöldi dóma sé miðað
við ár sem ekki eru Landsmót en alls
komu 967 hross til dóms. Óvenju fá
hross voru dæmd í maí miðað við
síðastliðin ár, þrjár sýningar voru
áætlaðar í maí en þær voru allar
felldar niður og sameinaðar í einni
sýningu sem haldin var í Hafnarfirði
í síðustu viku maí. Fjöldinn náði
sér svo upp á miðsumarssýningum
en fjórar miðsumarssýningar voru
haldnar; þrjár á Hellu og ein á
Hólum en 369 dómar voru felldir á
þessum miðsumarssýningum sem
er metfjöldi. Fjórðungsmótið tókst
vel en alls voru 31 kynbótahross
sem mættu þar til dóms. Miðað var
við ákveðinn fjölda efstu hrossa í
hverjum flokki eins og fyrir síðustu
stórmót. Vel var að mótinu staðið
og eiga Hornfirðingar heiður skilinn
fyrir framkvæmdina en afar góð
stemning var á mótinu og býður
mótssvæði þeirra upp á mikla
möguleika með glæsilega reiðhöll,
framboð af hesthússplássum og
myndarlegt félagsheimili.
Þá var full mæting kynbótahrossa
fyrir hönd Íslands á Heimsleika sem
voru haldnir í Berlín; eitt hross í hvern
flokk 5, 6 og 7 vetra og eldri hryssna
og stóðhesta. Þau stóðu sig öll með
prýði á mótinu, stóðu vel við fyrri
dóma og voru efst í öllum flokkum
nema 5 vetra flokki stóðhesta þar
sem annað sætið var niðurstaðan.
Þá forfallaðist því miður Nói frá
Stóra-Hofi í elsta flokki stóðhesta.
Mikill fjöldi frábærra hrossa kom
til dóms í ár og er verðmætt að sjá
hvað ræktendur hafa úr mikilli flóru
góðra stóðhesta að velja en aldrei
hefur verið meira úrval af gæða
stóðhestum af mismunandi gerðum
á boðstólum. Alls voru 286 feður á
bak við sýnd hross í ár en Spuni frá
Vesturkoti átti flest afkvæmi sem
komu til dóms í ár, eða 42. Í töflu
má sjá þá feður sem skiluðu tíu eða
fleiri afkvæmum til dóms á árinu.
Meðaltöl og dreifingu einkunna
má sjá í meðfylgjandi töflum
fyrir alla eiginleika byggingar og
hæfileika auk aðaleinkunna fyrir árið
2019 á Íslandi.
Hærri meðaltöl fyrir
eiginleika sköpulags
Meðaltöl fyrir eiginleika sköpu-
lagsins eru heldur hærri en í fyrra
hjá flestum eiginleikum fyrir utan
prúðleika þar sem meðaltalið í ár er
lægra (7,61 vs 7,72). Breytingarnar
eru þó afar litlar fyrir utan hófa-
einkunn sem er töluvert hærri í ár
samanborið við árið í fyrra (8,19 vs
7,94).
Þetta gæti skýrst af breyttum
áherslum við mat á hófum þar sem
meiri áhersla hefur verið lögð á
rétt form hófsins; þ.m.t. lengd og
halla á hælum, hvelfingu í botninn
og meira dregið niður fyrir þrengsli
í hófnum, þ.e. meira lagt upp úr
réttu formi hófsins aftur í hæl og
að hólþófarnir séu heilbrigðir. Þá
er minni áhersla á dýpt hófsins sem
ræðst eingöngu af því hversu mikið
vaxinn hófurinn er. Þá eru meðaltöl
fyrir eiginleika hæfileika heldur
lægri í ár samanborið við árið í fyrra
fyrir utan fet en þar er meðaltalið
hærra (7,73 vs 7,69). Breytingarnar
eru þó ekki miklar á milli ára en
stærsti munurinn er í skeiðeinkunn.
Meðaltal fyrir skeið var í fyrra 7,04
en er í ár 6,82 (meðaltalið er einnig
lægra sé eingöngu horft til hrossa
sem ná 5,5 eða hærra fyrir skeið).
Það gæti skýrst af því að heldur fleiri
klárhross voru sýnd í ár en 32%
hrossa sem sýnd voru í ár voru með
5,0 fyrir skeið sem er hærra hlutfall
en oft áður en yfirleitt hefur hlutfall
klárhrossa af sýndum hrossum verið
í kringum 25%.
Meðalaldur sýndra hrossa var
6,23 ár en það er hæsti meðalaldur
sýndra hrossa í seinni tíð. Það
skýrist fyrst og fremst af því að
færri fjögurra vetra hross voru
sýnd í ár, þau eru u.þ.b. helmingi
færri í ár samanborið við árið í
fyrra eða um 7% sýndra hrossa
(25 fjögurra vetra stóðhestar voru
sýndir og 35 hryssur).
Skrokkmál
Íslenski hesturinn hefur verið
að stækka á undanförnum árum
eins og lesendur eflaust þekkja.
Meðalhæð hrossa sem komu til
dóms á Íslandi í ár var rúmlega
142 cm á herðar, hryssur voru að
meðaltali 141,6 cm og stóðhestar
144,4 cm. Til samanburðar þá
var meðal hesturinn á árunum í
kringum 1990 133 cm á herðar.
En hesturinn hefur ekki bara
verið að hækka á herðar, hann
hefur einnig orðið framhærri með
árunum, þ.e. munurinn á hæð á
herðar og hæð á lend hefur verið
að aukast. Í dag er meðal hrossið
rúmlega 4 cm hærra að framan en að
aftan (hryssur 3,9 cm hærri á herðar
en á lend og stóðhestar 5,9 cm).
Framhæð hrossa hefur mikil
áhrif á ganghæfni þeirra og um
að gera fyrir ræktendur að skoða
skrokkmálin. Þá er áhugavert að
kanna hver meðal fótahæð hestsins
er en hana má reikna út með því
að bera saman hæð á herðar og
brjóstdýpt. Meðal fótahæð hestsins
í dag er rétt um 14 cm (hryssur: 13,6
cm og stóðhestar: 15,3 cm). Fótahæð
íslenska hestsins hefur einnig verið
að aukast á síðustu árum í viðleitni
okkar við að skapa glæsilegri
hest gerð en til að skara fram úr í
keppni til dæmis er nauðsynlegt að
hafa góða fótahæð í hrossum, það
skapar meiri skreflengd og eykur á
útgeislun.
Hæstu hross ársins
efstu hryssurnar
Alls voru sýndar 35 fjögurra vetra
hryssur á árinu og voru þær rúmlega
4% sýndra hrossa. Efstu hryssurnar
eru allar afar vel ættaðar hryssur
sem eiga framtíðina fyrir sér.
Jafnar með þriðju hæstu einkunn
ársins í þessum flokki eða 8,24
voru þær Dagmar frá Hjarðartúni
og Mánadís frá Feti. Dagmar er
undan Degi frá Hjarðartúni og
Pöndru frá Reykjavík, ræktandi
er Óskar Eyjólfsson en eigandi er
Einhyrningur ehf. Dagmar var efst
í fjögurra vetra flokki hryssna á
Fjórðungsmótinu; myndarleg, fótahá
hryssa og flugaefnileg með mikla
skrefstærð á öllum gangi.
Mánadís frá Feti er undan Eldi
frá Torfunesi og Vigdísi frá Feti,
ræktandi er hrossaræktarbúið Fet
og eigandi er Fet ehf. Mánadís
er vel gerð með 8,5 fyrir háls,
herðar og bóga og samræmi og
efni í frábæra alhliða mýktar
hryssu með 8,5 fyrir tölt og
fegurð í reið og 9,0 fyrir vilja
og geðslag.
Með aðra hæstu einkunn
ársins er Lóa frá Efsta-Seli,
undan Arion frá Eystra-Fróðholti
og Lady frá Neðra-Seli. Hún
hlaut í aðaleinkunn 8,35 með 9,0
fyrir háls, herðar og bóga og vilja
og geðslag; fínleg, framfalleg og
mjúk á gangi.
Efsta hryssan var með
8,38 í aðaleinkunn og heitir
Álfamær frá Prestsbæ, undan
Landsmótssigurvegurunum
Spuna frá Vesturkoti og Þóru
frá Prestsbæ. Álfamær er
reiðhestslega og traustlega gerð,
þá er hún skrefmikil á gangi
og skrokkmjúk, einstaklega
jafnvægisgóð og flink á skeiði
og með þjálan vilja.
25 hestar í fjögurra
vetra flokki stóðhesta
Í fjögurra vetra flokki stóðhesta voru
sýndir 25 hestar í fullnaðardóm eða
um 3% sýndra hrossa.
Með þriðju hæstu einkunn í
þessum flokki, 8,39 í aðaleinkunn,
var Pensill frá Hvolsvelli, undan
Ölni frá Akranesi og Hörpu Sjöfn
frá Hvolsvelli. Ræktendur eru
Ásmundur Þórisson og Helga
Friðgeirsdóttir. Pensill er afar fallega
og vel gerður hestur með 8,76 fyrir
sköpulag þar sem hæst ber 9,5 fyrir
bak og lend og samræmi, sameinar
einstaklega vel fegurð og fínleika
og styrk í byggingunni. Þá er Pensill
efnilegur á gangi, skrefmikill og
mjúkur og hlaut hæst 9.0 fyrir brokk.
Með aðra hæstu einkunn í þessum
flokki er Hávaði frá Haukholtum,
undan Ómi frá Kvistum og Eldingu
frá Haukholtum. Ræktandi er
Þorsteinn Loftsson og hann er
einnig eigandi ásamt Lóu Dagmar
Smáradóttur. Hávaði er hávaxinn og
fótahár en hann er 149 cm á herðar,
með 9,0 fyrir samræmi. Þá er þetta
afar efnilegur foli með 8,37 fyrir
hæfileika.
Efsti hesturinn í þessum flokki
í ár er Leynir frá Garðshorni á
Þelamörk en ræktendur hans eru
Agnar Þór Magnússon og Birna
Tryggvadóttir. Leynir er undan
Höfðingja og Grósku frá Garðshorni
á Þelamörk. Leynir er ekki stór, 137
cm á herðar, en afar reiðhestslega
gerður með sterka yfirlínu í hálsi
og baki og lend með 8,5 fyrir háls,
herðar og bóga og 9,0 fyrir bak og
lend. Þá er Leynir gæðingur á gangi,
framganga hans var hreint óvanaleg
af svo ungum hesti að vera og hlaut
8,70 fyrir hæfileika; afar léttstígur,
skrefmikill og fjölhæfur hestur með
9,0 fyrir tölt og vilja og geðslag
og 8,5 fyrir alla aðra eiginleika
hæfileikanna.
145 í flokki fimm vetra hryssna
Í fimm vetra flokki hryssna voru
sýndar 145 hryssur og voru þær 17%
sýndra hrossa.
Með þriðju hæstu einkunn ársins
var Dröfn frá Stykkishólmi undan
Hágangi frá Narfa stöðum og Tvíbrá
Keilisdóttur frá Árbæ. Ræktandi
hennar er Guðmundur Ó. Bæringsson
en eigandi er Valentínus Guðnason.
Dröfn er gullfríð og framfalleg hryssa
með 9,0 fyrir höfuð og háls, herðar
og bóga og 8,48 fyrir sköpulag. Þá er
Dröfn jafnvíg á gangi með 8,5 fyrir
tölt og brokk og 9,0 fyrir skeið þar
sem hún býr yfir eðlisjafnvægi og
tilþrifamikilli getu en einnig hlaut
hún 9,0 fyrir vilja og geðslag enda
afar næm og fylgin sér.
Með aðra hæstu einkunn ársins er
Sigurrós frá Stuðlum, hún er undan
Dyn frá Dísarstöðum og Stöku frá
Stuðlum sem er undan Akk frá
Brautarholti og heiðurshryssunni
Þernu frá Arnarhóli. Ræktendur
eru Páll Stefánsson og Edda Björk
Ólafsdóttir og Páll er eigandi
hryssunnar ásamt Hauki Baldvins-
syni og Ragnhildi Loftsdóttur.
Sigurrós er gæðingur á gangi með
8,70 fyrir hæfileika, afar ásækin og
einbeitt, með mikla hreyfingu og
skrefstærð.
Með hæstu einkunn ársins í
fimm vetra flokki hryssna er Þrá frá
Prestsbæ, undan Arion frá Eystra-
Fróðholti og Þóru frá Prestsbæ.
Ræktendur og eigendur er Inga og
Ingar Jensen. Þrá er með 8,31 fyrir
sköpulag þar sem hæst ber 8,5 fyrir
háls, herðar og bóga og fótagerð
og 9,0 fyrir samræmi, enda með
afar framskotna og lausa bóga sem
bjóða upp á mikla hreyfingu sem
Þorvaldur Kristjánsson
ábyrgðarmaður í
hrossarækt
thk@rml.is
Með hæstu einkunn ársins í elsta flokki stóðhesta og yfir landið í ár var Draupnir frá Stuðlum, undan Kiljan frá
Steinnesi og Þernu frá Arnarhóli. Ræktendur er Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson og þau eru einnig eigendur
ásamt Austurás hestum ehf. Mynd / Óðinn Örn Jóhannsson.
Höfuð Háls, herðar og bógar Bak og lend Samræmi Fótagerð Réttleiki Hófar Prúðleiki Sköpulag
Meðaltal 7,88 8,32 8,12 8,24 8,00 7,69 8,19 7,61 8,12
Staðalfrávik 0,50 0,37 0,54 0,44 0,47 0,48 0,46 0,71 0,24
Lægsta gildi 6,50 7,50 6,50 7,00 7,00 6,50 6,50 5,50 7,37
Hæsta gildi 9,50 9,50 9,50 9,50 9,50 9,00 9,50 10,00 8,84
Tölt Brokk Skeið Stökk Vilj og geðsl. Fegurð í reið Fet Hægt tölt Hægt stökk Hæfileikar Aðaleink.
Meðaltal 8,30 8,02 6,82 8,08 8,40 8,21 7,73 8,01 7,78 7,96 8,03
Staðalfrávik 0,52 0,57 1,45 0,47 0,42 0,46 0,68 0,49 0,58 0,36 0,27
Lægsta gildi 6,00 6,00 5,00 7,00 7,00 6,50 5,50 5,00 5,00 6,65 7,28
Hæsta gildi 10,00 10,00 9,50 9,50 9,50 9,50 9,50 10,00 9,50 9,00 8,88
Stóðhestur Fjöldi afkvæma
Spuni frá Vesturkoti 42
Stáli frá Kjarri 32
Álfur frá Selfossi 23
Arion frá Eystra-Fróðholti 22
Framherji frá Flagbjarnarholti 22
Loki frá Selfossi 21
Óskasteinn frá Íbishóli 21
Sjóður frá Kirkjubæ 20
Ómur frá Kvistum 19
Hrannar frá Flugumýri II 18
Viti frá Kagaðarhóli 14
Skýr frá Skálakoti 14
Jarl frá Árbæjarhjáleigu II 14
Orri frá Þúfu 13
Krákur frá Blesastöðum 1A 13
Kjerúlf frá Kollaleiru 13
Kiljan frá Steinnesi 13
Arður frá Brautarholti 12
Sær frá Bakkakoti 11
Auður frá Lundum 11
Eldur frá Torfunesi 11
Trymbill frá Stóra-Ási 10
Hrímnir frá Ósi 10