Bændablaðið - 10.10.2019, Page 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 37
eða marglaga himna sem í daglegu
tali er kölluð aldin. Um er að ræða
fræhjúp eða eins konar mjúkan
líknarbelg innan í hnattlaga aldinlíki
sem er 3 til 8 sentímetrar að lengd
eftir afbrigðum. Að utan er aldinið
gult eða appelsínugult í fyrstu en
verður rautt með auknum þroska.
Leðurkennt og alsett stífum og
kræklóttum öngum að utan sem geta
verið hálfur til tveir sentímetrar að
lengd eftir afbrigðum. Að innan er
aldinið eða fræhjúpurinn hnattlaga,
hvítur og safaríkur og í honum eru
yfirleitt eitt en stundum tvö fræ.
Vel á fjórða hundrað ólíkra yrkja,
afbrigða og landssorta af ígulberjum
eru í ræktun og eru þau hvert öðru
ólíkt þegar kemur að stærð, lit og
bragði. Vinsæl yrki í Malasíu eru
'Chooi Ang', 'Peng Thing Bee', 'Ya
Tow', 'Azimat' og 'Ayer Mas'. Í
Indónesíu þekkjast meðal annarra
yrkin 'Lebakbooloos' sem ber
dökkrauð aldin með eins og hálfs
sentímetra öngum og þykkri húð,
'Seematjan' er með langar greinar
og stóra og opna laufkrónu, aldinið
dökkrautt og angarnir um tveir
sentímetrar að lengd. 'Seenjonja' er
aftur á móti með slútandi laufkrónu
og vínrauð aldin með stuttum og
mjúkum öngum.
Uppruni og útbreiðsla
Ígulber eru upprunnin í Malasíu og
hafa verið í ræktun á Malasíuskaga
og í Suðaustur-Asíu og Indlandi í
margar aldir. Talið er að plantan hafi
borist vestur yfir Indlandshaf með
arabískum kaupmönnum til eyjanna
Zanzibar og Pemba við austurströnd
Afríku og þaðan til meginlands
Afríku á 13. til 15. öld.
Eftir landafundina vestan Atlants-
ála fluttu hollenskir land nemar með
sér fræ ígulberjatrjáa til Kólumbíu,
Ekvador, Hondúras og Kúbu þar sem
plantan dafnaði vel á láglendi
Plantan var fyrst flutt til Indónesíu
og Filippseyja árið 1912 en útbreiðsla
hennar þar var takmörkuð þar til um
1950 þegar ræktun hennar jókst til
muna. Skömmu eftir þarsíðustu
aldamót var gerð tilraun með að
rækta ígulber í suðausturríkjum
Bandaríkjanna en þær tilraunir báru
ekki árangur.
Fyrstu ígulberjatrjánum var
plantað í Taílandi árið 1926 af
Kínverjanum Malay K. Vong og er
árlega haldin uppskeruhátíð í Suran
Rhani-héraði honum til heiðurs.
Nafnaspeki
Latneska ættkvíslarheitið Nephelium
er dregið af gríska orðinu nephelion
sem þýðir lítið ský. Tegundarheitið
lappaceum tengist því að aldinið er
kúlulaga.
Sænski grasafræðingurinn Carl
Linnaeus, 1707 til 1778, gaf plönt-
unni núverandi latneska heitið sitt,
Nephelium lappaceum, en hún
hefur einnig gengið undir heitunum
Euphoria nephelium og Dimocarpus
crinita á latínu.
Enska heitið rambutan er komið
af heiti aldinsins á Malagasí,
rambut, sem þýðir hár eða loðinn. Á
víetnömsku kallast aldinið vai thieu
eða chôm chôm sem er hárflóki,
á Filipps eyjum kallast það usan,
usau eða usare og phruan á Taílandi
en í Ekvador kallast það achotillo.
Í Frakklandi er aldinið kallað
ramboutan, ramboutanier eða litchi
chevelu og á hollensku ramboetan.
Indverjar segja ramboostan,
Kínverjar shao tzu en Þjóðverjar,
Danir og Svíar rambutan.
Á íslensku nefnist rambutan
ígulber og kallast þannig á við
ígulker sem það líkist óneitanlega
í útliti.
Ræktun
Ígulberjatré dafna best í röku
hitabeltis loftslagi á 12 til 15°
breiddar gráðu hvort sínum megin við
miðbaug. Trén vaxa frá fjöruborði og
upp í 600 metra hæð þar sem rignir
mikið og reglulega og hiti er milli
22 og 30° á Celsíus. Trén þola illa að
hitinn fari niður fyrir 10° á Celsíus
og kjósa vel framræstan og djúpan
sand- eða leirjarðveg sem er ríkur af
lífrænum efnum.
Við góðar aðstæður ála fræ sem
tekin hafa verið beint úr aldininu
á tveimur til þremur vikum en
geymslutími fræjanna utan aldinsins
er stuttur og þau þola illa beina
sól. Gott er að skola fræin áður en
þau eru sett niður vegna þess að
í aldinkjötinu er efni sem hamlar
spírun. Fræplöntur blómstra yfirleitt
á fimmta til sjötta aldursári. Að öllu
jöfnu koma upp fleiri karl- en kven-
eða tvíkynjaplöntur og einungis
um 5% plantnanna eru nothæfar til
aldinframleiðslu.
Græðlingar ræta sig vel og
eru þeir notaðir til að framleiða
ræktunarplöntur og viðhalda góðum
yrkjum. Auk þess sem ígulberjatrjám
er fjölgað með ágræðslu þar sem
greinar af ákveðnum yrkjum eru
græddar á rætur fræplantna.
Í ræktun er algengt að hafðir
séu 10 til 12 metrar á milli plantna
og að trjánum sé skýlt fyrir vindi á
meðan þau eru í blóma. Við góðar
aðstæður geta trén gefið af sér hátt
í sjö tonn af aldinum á hektara.
Einstaka tré eru dyntótt þegar kemur
að uppskerumagni og eitt árið geta
þau gefið af sér 200 kíló en það næsta
ekki nema 40 kíló.
Aldinklasarnir, sem eru uppskornir
í júní og stundum aftur í desember,
eru viðkvæmir í með höndlun. Aldinin
eru einnig vandmeðfarin í geymslu
og hafa þau stuttan geymslu- og
hillutíma.
Plantan er að mestu leyti laus við
sjúkdóma og meindýr þrátt fyrir að
skordýr eigi það til að éta laufið og
blómin.
Nytjar og neysla
Aldinið er ríkt af magnesíum og í því
finnst fjöldi annarra næringarefna en
yfirleitt í litlu magni. Það inniheldur
lítið af kolvetnum, trefjum, fitu og
próteinum.
Ígulber eru yfirleitt seld fersk en
þau eru líka fáanleg niðursoðin og
sem sulta. Til að komast að safaríku
aldinkjötinu þarf að skræla húðina af.
Aldinkjötið er ljúffengt en skemmist
fljótt.
Á Filippseyjum eru fræin ristuð
og neytt þannig þrátt fyrir að hafa
orð á sér fyrir að vera eitruð. Úr
fræjunum er unnin ígulberjaolía sem
gefur af sér sérstakan ilm þegar hún
er hituð og úr olíunni má vinna sápu
og kerti. Þrátt fyrir að viður trjánna
sé litríkur og fallegur, í rauðhvítum
og brúnum litatónum, er hann lítið
notaður sökum þess hversu stökkur
hann er eftir að hann hefur verið
þurrkaður.
Aldinið er sagt lystaukandi, hita-
stillandi og gott gegn iðraormum,
magaþembu og niðurgangi. Úr
aldin hýðinu er unninn svartur litur.
Einnig er sagt að gott sé að leggja
laufið við ennið til að draga úr
höfuðverk og að gott sé að tyggja
börkinn við sveppasýkingu í munni.
Úr rótunum er soðið seyði til að
lækka sótthita.
Trén eru notuð sem skrautplöntur
í almennings- og einkagörðum víða
í hitabeltinu.
Ígulber á Íslandi
Í umfjöllun í DV þar sem fjallað er
um jólaávextina annó 1987 er minnst
á rambutan með eftirfarandi orðum:
„Og loks smökkuðum við á rambutan
sem lítur sannarlega ekki út fyrir að
vera bragðgóður ávöxtur. Hýðið, sem
er líkt og skurn, er alsett „hárum“, en
innihaldið er glært, hlaupkennt og
hefur frekar lítið bragð. Rambutan
kostaði 19 kr. stykkið.“
Fyrst er getið um ígulber í
íslensku dagblaði árið 1996 en
þar segir Kristín Gestsdóttir í
þætti sínum Matur og matargerð
í Morgunblaðinu. „… ígulber sem
líkist smáu ígulkeri í útliti og er alls
ekki fallegt á ytra borðinu. Þetta
er stórt ber sem umlukið er skel
með úfnum, grófum rauðbrúnum
hárum. Heldur ófrýnilegt ásýndum,
en þegar búið er að fletta skelinni af
kemur í ljós hvítblátt hálfgegnsætt
aldin með stórum steini sem ekki
er borðaður. [. . . ] Fyrst þegar ég
fletti húðinni af ígulberi fannst
mér berið einna helst líkjast soðnu
kríueggi og eins og kríuegg er það
afar ljúffengt.“
Árið 1998 auglýsir veitingahúsið
Sjanghæ við Laugaveg rétt á nýárs-
matseðli sínum fyrir tvo eða fleiri
á 1.590 krónur á mann. Fordrykk,
súpu og forrétt, fjórir litlir réttir
og eftirrétt. Kínverskt ávaxtastél,
maískornasúpu með kjúklingakjöti
og val á milli steikts won ton sem er
nýársnautasteik með vorlauk, satay
kjúklings á spjóti eða heilsteikts
nýársfisks. Í eftirrétt er boðið upp
á rjómaís með rambutan.
Sé tekið mið af umfjöllunum
og auglýsingum í blöðum var ígul-
ber mest í umræðunni á síðasta
áratug síðustu aldar. Þar kann að
ráða að aldinið var nýtt á markaði
og forvitnilegt í útliti. Í dag sést
aldinið ekki oft í ávaxtaborðum
verslana og helst að finna það í
verslunum sem sérhæfa sig með
matvöru frá Asíu.
Ýmis litaafbrigði.
Vel á fjórða hundrað ólíkra yrkja, afbrigða og landssorta af ígulberjum eru í ræktun og eru þau hvert öðru ólíkt
þegar kemur að stærð, lit og bragði.
Ígulber eru yfirleitt seld fersk en þau eru líka fáanleg niðursoðin og sultuð. Ígulberjum er aðallega fjölgað með
ágræðslu.
Aldinið hnattlaga 3 til 8 sentímetrar að lengd eftir afbrigðum. Að utan er það gult eða appelsínugult í fyrstu en
verður rautt með auknum þroska. Leðurkennt og alsett stífum og kræklóttum öngum sem geta verið hálfur til tveir
sentímetrar að lengd eftir afbrigðum.