Bændablaðið - 10.10.2019, Side 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 41
tjatjatja og ólíkt öllu öðru
sem heyrist dags daglega
og verður áhugaverðara og
skemmtilegra við hverja
hlustun.
Gaui segir að ástæðan fyrir
því að gefa lögin út á vínyl sé
sú að þeir sem gangi svo langt
að eiga plötuspilara og kaupa
vínylplötur gefi sér yfirleitt tíma
til að setjast niður og hlusta.
„Það er ritúal að taka vínylplötu
úr albúmi og setja hana á fóninn
og hlusta í rólegheitunum. Mig
langaði einfaldlega að gefa út
safnplötu fyrir þetta fólk.“
Dekstrað við sig í Danmörku
„Ástæðan fyrir því að ég og
eiginkona mín, Vigdís Sveins
dóttir, fluttum út var að okkur
bauðst að vera í Danmörku í
tvö ár í framleigðu húsnæði
vinafólks okkar sem var á
leiðinni til Grænlands að vinna.
Okkur þótti upplagt að breyta til og
tókum boðinu og síðan eru liðin rúm
tuttugu ár.
Fljótlega eftir komuna út vorum
við bæði komin í góða vinnu og
komin heim klukkan þrjú á daginn
og það sem meira var að við gátum
lifað góðu lífi á 37 tíma vinnuviku
sem er ekki hægt á Íslandi. Það
vandist vel og við dekstruðumst til
að vera lengur og líður ágætlega. Ég
efast þó um að ég vilji láta jarða mig
í dönskum leir og býst við að flytja
heim áður en að því kemur.“
Krauka og víkingasiður
Smám saman aðlöguðust Gaui og
Vigga lífinu í Danmörku og kynntust
nýju fólki. Gaui komst í samband
við danska tónlistarmenn sem höfðu
áhuga á gömlum hljóðfærum og
tónlistararfi víkinga og víkingasið.
Úr varð tríó sem lék á hljóðfæri sem
smíðuð voru eftir lýsingum á fornum
norrænum hljóðfærum og tónlist í
anda þess sem hljómsveitin taldi að
víkingar hefðu spilað.
Fyrstu tónleikar tríósins voru
á Grænlandi í tilefni af 1000 ára
afmæli Eiríks rauða í Brattahlíð
þar sem hljómsveitarmeðlimir voru
klæddir í víkingaklæði. Í það
skiptið kallaðist hljómsveitin Sögu
fuglarnir.
Síðar fékk tríóið heitið Krauka og
í dag er hljómsveitin skipuð fimm
hljóðfæraleikurum og hljóðfærin
orðin rafmagnaðri og nútímalegri
þrátt fyrir að eldri hljóðfærin skipi
enn stórt hlutverk. Vinsældir Krauku
hafa aukist með hverju árinu og
hljómsveitin gefið út sjö geisladiska
og von er á þeim áttunda í haust.
Hljómsveitin hefur haldið tónleika
víða um heim, bæði í Evrópu og
í Bandaríkjunum, og er vinsæl á
víkingahátíðum.
„Þessar hátíðir geta verið mjög
skemmtilegar og gaman að sjá
fólk klætt upp í víkingabúninga og
leika víkinga en satt best að segja
er enginn munur á þessu og þegar
aðdáendur Star Trek koma saman í
geimverubúningum og tala framandi
tungumál og skemmtir sér.“
Ótrúlegt ævintýri
Meðlimir Krauku tóku upp nokkur
lög fljótlega eftir að þeir fóru að
spila saman og þá kom Þorkell
aftur til sögunnar og sagði að það
vantaði ekki mikið
uppá að hægt væri að gefa út disk.
„Við tókum því upp nokkur lög til
viðbótar og kláruðum fyrsta diskinn
og síðan hefur Krauka og stússið í
kringum hljómsveitina verið ótrúlegt
ævintýri sem hefur staðið í tuttugu
ár og sér ekki enn fyrir endann á,“
segir Guðjón Rúdolf og strýkur á sér
skeggið og brosir með augunum.
/ VH
Hljómsveitin Krauka.
kranar &
talíur
STAHL kranar og talíur frá
Þýskalandi eru áreiðanlegir
vinnuþjarkar sem auðvelda
alla vinnu. Kranarnir og
talíurnar
eru í hæsta gæðaflokki þar
sem öryggi og góð ending
eru höfð að leiðarljósi.
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Bænda
Smáauglýsingar
56-30-300
Hafa áhrif
KH Vinnuföt • Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is
• Hringspunnin tvöfaldur kragi.
• Forþvegið og burstað.
• 100% bómull, 160 g/m².
• XS-4XL svartir upp í 6XL.
Verð: kr. 1.200,-
T-Bolir
Bleikur október
Við styðjum karabbameinsfélagið
með 10% af sölu
Getum merkt bolina með
slaufunni verð kr. 500,-.
Sú upphæð rennur óskipt
til karabbameinsfélagsins
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Bændablaðið
Næsta blað kemur út 24. október