Bændablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 49

Bændablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 49 Litrík og skemmtileg peysa úr smiðju Drops, prjónuð úr hinu vinsæla Air garni. Ekki skemmir fyrir að garnið í hana fer á 30% afslátt hjá okkur 14. október nk. Peysan er prjónuð ofan frá og niður með hringlaga berustykki og laskalínu. Stærðir: (12/18 mánaða) 2 (3/4) 5/6 (7/8) 9/10 ára. Garn: Drops Air (einnig hægt að nota Drops Nepal) • Bleikur nr 20: (50) 50 (50) 50 (50) 100 g • Ljósbleikur nr 08: (50) 50 (50) 50 (50) 100 g • Gulur nr 22: (50) 50 (50) 100 (100) 100 g • Sægrænn nr 27: (50) 100 (100) 100 (100) 100 Prjónar: Sokka- og hringprjónar 60-80 cm, nr 4 og 5 eða sú stærð sem þarf til að 17 lykkjur x 22 umferðir í sléttu prjóni = 10x10 cm. Rendur: Rendur eru prjónaðar í öllu stykkinu þannig: Prjónið (10½) 11 (12) 13 (14) 15 cm með bleikur, (8½) 9 (10) 11 (12) 13 cm með gulu og (8½) 9 (10) 11 (12) 13 cm með sægrænum. Prjónið síðan stykkið til loka með ljósbleikum. Garðaprjón (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*. Útaukning (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 46 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 40) = 1,15. Í þessu dæmi er aukið út næstum því á eftir hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Laskalína: Aukið er út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll útaukning er gerð frá réttu. Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja) og sláið uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn svo að ekki myndist gat. Peysa: Berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Berustykki: Fitjið upp (46) (52) 54 (56) 60 (60) lykkjur á hringprjón 4 allt stykkið er prjónað í RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og setjið 1 prjónamerki í stykkið hér, HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Í næstu umferð er aukið út um (40) 42 (42) 44 (48) 50 lykkjur jafnt yfir – sjá útaukning í útskýringu að ofan = (86) 94 (96) 100 (108) 110 lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (3) 3 (3) 3 (3) 3 cm. Í næstu umferð er aukið út jafnt yfir (36) (38) 38 40 (46) 48 lykkjur = (122) 132 (134) 140 (154) 158 lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (7) 7 (7) 7 (7) 7 cm. Í næstu umferð er aukið út um (30) 32 (38) 40 (42) 42 lykkjur jafnt yfir = (152) 164 (172) 180 (196) 200 lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (11) 11 (12) 12 (13) 13 cm – munið eftir röndunum. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki eftir (45) 47 (49) 51 (55)-57 lykkjur (= bakstykki), setjið næsta prjónamerki eftir (31) 35 (37) 39 (43) 43 lykkjur (= ermi), setjið næsta prjónamerki eftir (45) 47 (49) 51 (55) 57 lykkjur (= framstykki) og setjið síðasta prjónamerki eftir (31) 35 (37) 39 (43) 43 lykkjur (= ermi). Prjónið síðan í slétt og í fyrstu umferð á að auka út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri í hverri útaukningu). Aukið út í annarri hverri umferð alls (2) 3 (3) 4 (4) 5 sinnum = (168) 188 (196) 212 (228) 240 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist (13) 14 (15) 16 (17) 18 cm frá prjónamerki. Skipting bols og erma: Prjónið (49) 53 (55) 59 (63) 67 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu (35) 41 (43) 47 (51) 53 lykkjur á band fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið ((49) 53 (55) 59 (63) 67 lykkjur (= framstykki), setjið næstu (35) 41 (43) 47 (51) 53 lykkjur á band fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvort fyrir sig. Héðan er nú mælt Fram- og bakstykki = (110) 118 (122) 130 (138) 146 lykkjur. Prjónið áfram slétt og rendur eins og áður þar til stykkið mælist (12) 14 (16) 19 (22) 25 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm til loka). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 slétt og 1 brugðið) þar til stroffið mælist ca 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermar: Setjið (35) 41 (43) 47 (51) 53 lykkjur af bandi á sokkaprjóna 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (41) 47 (49) 53 (57) 59 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í 6 lykkjurnar undir ermi = upphaf umferðar. Prjónið slétt í hring og rendur þar til stykkið mælist ca (12) 16 (21) 24 (27) 31 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca (4) 4 (4) 4 (5) 5 cm til loka). Í næstu umferð er fækkað um (14) 18 (18) 22 (24) 26 lykkjur jafnt yfir í umferð = (27) 29 (31) 31 (33) 33 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið stroff (1 slétt, 1 brugðið) þar til stykkið mælist (4) 4 (4) 4 (5) 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina alveg eins. Gangið frá endum, þvoið flíkina og leggið til þerris. Prjónakveðja, mæðgurnar í Handverkskúnst www.garn.is Candy Bar barnapeysa HANNYRÐAHORNIÐ Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 7 1 8 9 1 8 5 3 4 3 6 2 1 3 6 6 5 2 7 9 3 8 9 4 3 6 2 5 9 2 8 7 4 5 7 1 Þyngst 7 4 2 1 8 9 5 4 6 7 5 9 2 1 5 6 2 1 8 3 4 1 2 6 2 7 8 9 7 8 9 8 4 9 6 5 4 1 5 3 6 1 6 1 8 9 2 3 8 7 4 6 2 9 3 9 5 9 2 4 6 5 8 1 9 1 7 2 9 5 3 6 5 6 9 8 1 7 5 4 8 Man fyrst eftir að hafa snýtt mömmu FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Karólína Orradóttir er hress og skemmtileg 8 ára stelpa á Akureyri. Hún hefur gaman af söng, dansi og leiklist. Karólína fer sínar eigin leiðir í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur og er ekki hrædd við að prófa nýja hluti. Nafn: Karólína Orradóttir. Aldur: 8 ára. Stjörnumerki: Hrútur. Búseta: Akureyri. Skóli: Brekkuskóli á Akureyri. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Smíðar. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Ég get ekki valið á milli þriggja; kettlingar, kanínur og blettatígrar. Uppáhaldsmatur: Sumar núðlur og grjónagrauturinn hjá Júlla kokki. Uppáhaldshljómsveit: ABBA og Amabadama. Uppáhaldskvikmynd: Matthilda og Dúmbó. Fyrsta minning þín? Þegar pabbi hélt á mér og ég var að snýta mömmu. En man líka þegar ég gaf Birgittu systur minni Dipsí-bangsann. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Já, ég kann smá á ukulele og spila á blokkflautu. Svo er ég þrisvar í viku í dansi. Svo er ég oft í fótbolta í skólanum. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Atvinnumaður í handbolta. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Ég hélt náttfatapartí þar sem allt varð klikkað. Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Ó, það er svo margt, t.d. flutti ég í nýtt hús. Næst » . Ég skora á Nóa Marteinsson, frænda minn, að svara næst.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.