Bændablaðið - 10.10.2019, Side 54

Bændablaðið - 10.10.2019, Side 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201954 Terex HR 3.2 7,5 tonn, 2006 árg. 7.900 vst. 3 skóflur þar af ein tilt. Verð: 3.300.000 +vsk. Yanmar SV18 smágröfur 1,95 tonn. Til á lager. Yanmar SV26 smágrafa 2,7 tonn. Árg. 2017. 195 vst. Smurkerfi, rótortilt og 4 skóflur. Verð: 5.270.000 + vsk umboðs- sala. Yanmar V8 4,3 tonn. Árg. 2016. 340 vst. Vökvahraðtengi, opnanleg skófla og gaflar. Verð: 5.000.000 + vsk. Komatsu PC130 Árg. 2005. 12.000 vst. Rótortilt og tvær skóflur. Ný vökvadæla. Verð: 5.000.000 + vsk. Liebherr A918 Compact 17,5 tonn. 2015 árg. 5.500 vst. Rótortilt með gripfingrum og þrjár skóflur. GPS kerfi getur fylgt. Vel útbúin vél. Verð: 16.500.000 + vsk. Tsurumi dælur í miklu úrvali. Liebherr L538 Árg. 2007. Vökvahraðtengi, skófla og gafflar. Verð: 6.000.000 + vsk. Weber jarðveggsþjöppur og hopparar til á lager. www.merkur.is Uppl. í síma 660-6051 Sauðburður í október á Syðra-Velli LÍF&STARF Margréti Jónsdóttur sauðfjár­ bónda og fjölskyldu hennar á Syðra­Velli í Flóahreppi brá í brún þegar þau komu út að morgni 4. október og sáu þá að sauðburður var hafinn því ærin Skessa hafði þá borið tveimur lömbum. Um var að ræða dökkgráa gimbur og botnóttan hrút. Skessa átti að fara í sláturhúsið daginn eftir en bjargaði sér með því að bera lömbunum. „Skessa er undan Guma frá Borgarfelli og er 6 vetra. Þetta er í sjötta sinn sem hún ber. Hún átti eitt lamb veturgömul, þetta er í þriðja sinn sem hún er tvílembd og tvisvar átti hún þrjú lömb og mörg þeirra hafa verið mjög vel gerð. – Þannig að þetta er mjög góð ær og afurðasöm,“ segir Margrét. Á Syðra-Velli eru um 100 fjár á vetrarfóðrum. /MHH Skessa bjargaði sér frá sláturhúsinu með því að bera tveimur myndarlegum lömbum daginn áður en sláturbíllinn átti að sækja hana og fleira fé á Syðra- Velli. Mynd / Margrét Jónsdóttir Kýrin Skjóla á bænum Reykjum í Skeiða­ og Gnúpverjahreppi var heldur heppin nýlega að skemma ekki í sér auga þegar hún var úti á túni. „Hún hefur verið að klóra sér utan í staur þar sem þessi einangrari var festur í og hann kræktist í augnlokið en augað virðist hafa sloppið alveg. Hún er komin á penesillín og bógueyðandi og hefur það bara gott í dag“, segir Birna Þorsteinsdóttir, kúabóndi á Reykjum. /MHH Hætturnar leynast víða Skjóla með einangrarann í augnlokinu en augað slapp samt alveg. Valgerður og Guðjón á Húsatóftum: Um 100 manns mættu til að skoða hænurnar Eigenda­ og ræktendafélag landnáms hænsna (ERL) stóð fyrir opnu húsi á Húsatóftum á Skeiðum laugardaginn 29. september hjá þeim Valgerði Guðjónsdóttur og Guðjóni Vigfússyni. Um 100 manns mættu til að skoða hænurnar þeirra, ungana og flottu hanana, sem þau eru með. Valgerður og Guðjón hafa um árabil verið stærsta ræktunarbú landnámshænsna á Íslandi. Þau segja starfið fyrst og fremst skemmtilegt hugsjónastarf. „Maður verður ekki ríkur af hænsnarækt en þetta er óskapleg skemmtilegt og gefur okkur mikið,“ segir Valgerður. /MHH Það höfðu margir gaman af því að láta taka myndir af sér með hænu frá Húsatóftum og skella á samfélagsmiðla. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson Magnús Ingimarsson, ritari ERL, var einn af þeim fjölmörgu sem mættu í opna húsið og hafði gaman af eins og aðrir gestir dagsins. Nýklaktir ungar voru til sýnis á opna húsinu og vöktu mikla athygli gesta, ekki síst hjá ungu kynslóðinni.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.