Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Page 2
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
3. TÖLUBLAÐ
8. ÁRGANGUR 1995
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Helgi Seljan
Umbrot:
K. Fjóla Guðmundsdóttir
Prentun:
Steindórsprent/
Gutenberg h.f.
Ljósmynd á forsíðu:
Gerður Arnórsdóttir:
FRÁ MÚLADAL í
ÁLFTAFIRÐI EYSTRA
Frá ritstjóra
Það húmar að á haustsins tíð og hrímið á hélugráum stráum
minnir okkur á það að senn gengur vetur í garð. Sumarsins
gæði munu hafa mannfólkinu misjöfn verið, suma vermdi sólin
daglangt á meðan öðrum var að mestu hulin úrgum skýjum öll
sólarsýn. Minnir okkur raunar á það hversu
misskipt er mannanna láni þar sem einum er
léð ærin gifta á meðan annar fetar ólánsstigu
og von þess að þeim þönkum sé varpað fram
hér á vettvangi, svo mörg örlagasagan sem þar
er upp borin án þeirrar vonar að úr muni rætast.
En ekki síður skyldi hér hugað að því sem fram
horfir á farsældarvegi, vasklega unnum verkum
svo víða eða þá ævintýrum hreinum sem endi góðan fá.
Veturinn er oft verkadrjúgur á félagslega sviðinu, þar sem menn
taka til hendi og huga að þörfum málum, finna þeim farveg góðan
og oft fylgja svo framkvæmdir beinar í kjölfarið.
Framundan blasir við blómlegt starf okkar fjölmörgu félaga
og fróm ósk mín sú að bærilegt bergmál þeirra athafna allra megi
berast inn á blaðsíður þessa rits. Væn vitneskja sem flestra um
átök sem aðgerðir er dýrmæt mjög, því hún örvar og hvetur til
enn meiri dáða, að djarft sé merkið reist til réttlætissóknar.
Ut í hausthúmið er haldið til fundar við þann fjölda sem fær
þetta rit. Því fylgja öðru fremur óskir um innri velfarnað sem
allra beztan um leið og vonað skal að komandi vetur fari sem
mildustunr höndurn um mannfólk allt.
Helgi Seljan.
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra 2 Svolítið um samhengið í tilverunni ....24
Sérstaða heyrnarlausra 3 Ný reglugerð um öryrkjavinnu ....26
Frá Námssjóði Sigríðar 4 Gátuvísur Magnúsar ....28
Hlerað 4, 7. 13, 14, 15, 21,33, 34, 37, 40, 45 Kveðja frá Öryrkjabandalaginu ....29
Afmæliskveðja til Húsnæðisstofnunar 5 Minnst tveggja mætra kvenna ....29
Norrænt þróunarverkefni 6 Frá Gigtarfélagi Islands ....30
Kynning á ráðstefnu ÖBÍ 7 Litið í landsáætlun ....31
FEPEDA 8 Endir allra funda ....33
Fallaskil 9 Fulltrúaráðsfundur ....34
Frá Félagi heilablóðsskaðaðra 10 Minningabrot frá formannstíð ....35
Ný-ung ungliðahreyfing 11 Nýtt MS-heimili vígt ....36
Tengsl örorku og áfengis 12 Baráttutæki öryrkja ....37
Frá félaginu Heyrnarhjálp 14 Mynd í örorkuskírteini? Því ekki? ....37
Fréttabréf Heyrnarhjálpar 15 Foreldrar Perthes-barna ....38
Hússjóður á ísafirði 16 Unaður ....38
Fyrir tíma tölvunnar 17 Hugleiðing um Bach ....39
Molar til meltingar 18 Hugsað á hausti ....40
Ferð um Snæfellsnes 19 Skammtímavistun í Sjálfsbjargarhúsinu... ....41
Viðtal við Sigurbjörgu Ármannsdóttur 20 Bréf frá Braga Halldórssyni ....43
Frá Bréfaskólanum 22 I brennidepli ....46
Fréttir í fáum orðum 23
2