Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Side 4

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Side 4
tengjast vinnunni beint sem oft á tíðum eru mjög styttar og einfaldaðar fyrir okkur þannig að við fáum bara brot af þeim upplýsingum sem hinir fá. Nú er verið að vinna að reglum um það hvenær heymarlaus einstakl- ingur eigi rétt á túlkun og hver greiði fyrir þá túlkun hverju sinni og munu þessar reglur verða lagðar fyrir Alþingi í vetur og bindum við miklar vonir við að margt muni breytast í kjölfar þeirra. Við höfum fengið ýmsu áorkað þó margt vanti upp á ennþá og til þess að orð mín í upphafi greinarinnar verði sönn, að við séum í engu frábrugðin öðrum, að undanskildu því að við tölum táknmál , þurfum við að fá sömu menntun, uppeldi og aðgengi að upplýsingum og aðrir einstaklingar í þjóðfélaginu, því það er það sem mótar okkur í nútímaþjóðfélagi. Reykjavík í ágúst 1995 Anna Jóna Lárusdóttir HLERAÐI HORNUM Frægur mótorhjólakappi, erlendur, lenti í miklu slysi og brenndist það illa m.a. að af voru bæði eyrun. Hann stofnaði svo flugfélag og auglýsti eftir flugstjórum. Hann spurði umsækj- endur alla sömu spumingar hvort þeir sæju eitthvað athugavert við útlit sitt. Sá fyrsti sagði: „Það vantar á þig eyrun“. Sá var umsvifalaust rekinn út. Sá næsti hugsaði sig um og sagði: „Getur það hugsast að eitthvað sé athugavert við eyrun á þér?“ Honum var vísað á dyr. Sá þriðji var íslend- ingur og hann horfði lengi á kappann og sagði svo: „Getur verið að þú notir linsur?“ Sá var ráðinn og allt gekk vel. Tveim árum síðar bauð kappinn til kvöldverðar og íslendingurinn sat í heiðurssæti. Þá fór hann að inna íslendinginn eftir hvemig hann hefði uppgötvað linsurnar. „Ja, ég sá að þú gazt ekki notað gleraugu, af því að eyrun á þig vantaði“. Styrkhafar með heiðurskonunni Halldóru. Frá Námssjóði Sigríðar Jónsdóttur s Aliðnu vori voru í fyrsta sinn veittir styrkir úr Námssjóði Sigríðar Jónsdóttur. Eins og lesendur Fréttabréfsins munu vita þá arfleiddi hin látna heiðurskona, frú Sigríður Jónsdóttir, Öryrkjabandalag Islands að húseign sinni í Vesturbænum í Reykjavík. Hún mælti svo fyrir í erfðaskrá sinni hversu ráðstafa skyldi fé því sem fengizt fyrir húseignina, rnynda skyldi námssjóð og úthluta vöxtunum á ári hverju til öryrkja til hagnýts náms og hins vegar til þeirra sem önnuðust þroskahefta á einhvem veg til frekara náms eða þjálfunar. Með skipulagsskrá staðfestri af dómsmálaráðuneyti var svo gengið frá Námssjóði Sigríðar Jónsdóttur og honum þar sett hlutverk í samræmi við erfða- skrána. Ákveðið var að höfuðstóll stæði ávallt óhreyfður, einungis vöxtum skyldi veitt til styrkja. Sjóðsstjórn skipa tveir fulltrúar Öryrkjabandalags Islands og einn tilnefndur af félagmálaráðuneyti. Styrkveiting fór fram við ágæta athöfn í kaffisal ÖBI Hátúni 10 11. júní sl. Matthildur Valgeirsdóttir hafði endurgjaldslaust umsjón með kaffiveitingum veglegum og fórst það vel úr hendi sem annað. Styrkþegar voru alls 20 að þessu sinni og upphæðir styrkja á bilinu 20 - 50 þús. kr. Við athöfnina mættu þó aðeins 9 styrkþegar, formaður og framkvæmdastjóri ÖBÍ auk sjóðsstjórnar, svo og var þama mætt okkur til mikillar gleði frú Halldóra Guðmundsdóttir, svilkona og urn leið bezta vinkona frú Sigríðar heitinnar. Hafliði Hjartarson er formaður sjóðsstjórnar og flutti hann ágætt ávarp við athöfnina. Hann kvað 11. júní valinn þar sem þetta væri fæðingardagur frú Sigríðar og vel við hæfi að afhenda styrki árlega á þeim degi, en Sigríður var fædd 1907 og lézt 11. nóv. 1991. Hafliði rakti tilurð og tilgang sjóðsins og minntist höfðingsskapar hinnar látnu heiðurskonu nokkrum vel völdum orðum. Hann kvað margar umsóknir hafa borist og niðurstaðan orðið sú að í fyrsta sinn skyldu sem flestir njóta þó það þýddi að einstakar upphæðir yrðu lægri. Hafliði kvað viðfangsefni styrkþega afar áhugaverð og lét þá einlægu von í ljósi að allir fengju lokið ætlunarverkum sínum sem allra bezt. Ósk sjóðsstjórnar væri enda sú að styrkupphæðin rnætti sem bezt nýtast til farsælla verka. Hann bað svo frú Halldóru Guðmundsdóttur að afhenda styrkina þeim sem viðstaddir voru og gerði hún svo af mikilli hlýju og bar fram heillaóskir góðar öllum til handa. Öll var athöfnin látlaus og ánægjuleg um leið. Öðrum styrkþegum var svo sendur styrkurinn og vonandi að öllum megi nýtast sem bezt, en mikil og skemmtileg fjölbreytni var í verkefnum þeirra sem hlutu styrk. Auk Hafliða eru í sjóðsstjórninni Margrét Margeirsdóttir deildarstjóri í félagsmálaráðuneyti og undirritaður. Helgi Seljan. 4

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.