Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Side 38

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Side 38
Foreldrar Perthes - barna undirbúa félagsstofnun Mannanna mein eru margvísleg og ærið margt getur amað að á lífsleiðinni. Misalvarlegir eru sjúk- dómarnir og afleiðingar þeirra ólíkar, sumum hægt að halda í skefjum, aðra unnt að lækna, en við aðra ráða menn illa, þrátt fyrir víðtæka þekkingu vís- indanna og öll tól og tæki tæknialdar. Baráttan við mannleg mein mun þó ugglaust eilíf, en vissulega hafa hinar stórstígu framfarir í læknisfræði auð- veldað og létt stórum þá baráttu, enn fleirum er líknað, enn fleiri fá lækn- ingu. Sumir sjúkdómar fá alltaf athygli, aðrir eru meira huldir sjónum almennings og um þá því furðu lítið fjallað. A dögunum kom saman nokkur hópur fólks, sem átti það sammerkt að eiga börn sem greinzt hafa með sjúkdóm þann sem kallaður er Perthes. Upphafið að þessum fundi má rekja til Morgunblaðsviðtals í ágústbyrjun um ýmislegt varðandi sjúkdóm þennan m.a. voru tvær mæður í viðtali við blaðið, en önnur þeirra, Halldóra Björk Oskarsdóttir, hafði haft forgöngu um að fá þennan fróðleik fram í dagsljósið svo og var hún frumkvöðull þessa fundar sem hér verður sagt lítillega frá. En fyrst staðnæmzt við sjúkdóm- inn, en um hann segir Gunnar Þór Jónsson prófessor og sérfræð- ingur í bæklunarlækningum í Morg- unblaðinu: “Sjúkdómurinn lýsir sér þannig að það verður drep í mjaðm- arliðnum þegar blóðflæði til hans stöðvast eða minnkar á mismunandi stóru svæði. Þegar blóðflæðið stöðv- ast verður enginn var við það strax, ekki fyrr en barnið fer að haltra.” Gunnar Þór segir að u.þ.b. 10 börn greinist árlega hér á landi með sjúk- dóminn. Hann lýsir svo þeirri meðferð sem við sjúkdómnum er, en sé ástand- ið mjög slæmt verður að grípa til skurðaðgerða. Hann segir einnig að mjög nauðsynlegt sé að Perthessjúk- dómurinn verði viðurkenndur sem fötlun. Hér er aðeins á því stærsta stiklað en trúlega mun þessu efni síðar Halldóra Björk Óskarsdóttir. gerð hér skil af þeim sem kunna. Það var svo ágætur og ákveðinn hópur sem kom saman að Sléttuvegi 7 - Oddshúsi - síðla í ágúst að boðun Halldóru Bjarkar, þar sem fólk bar saman bækur sínar og kom þar margt býsna athyglisvert fram. Reynslu- sögur voru allólíkar, enda hagar sjúk- dómurinn sér misjafnlega, uppgötvast missnemma og hefur misalvarlegar afleiðingar. Grunntónn þessara um- ræðna var hins vegar sá að fólk hefði hvergi nærri fengið nægar upplýs- ingar um sjúkdóminn, eðli hans, orsakir og afleiðingar, þegar verst léti. Betri fræðslu væri þörf, heilbrigðis- þjónustan í heild þyrfti að vera opnari og móttækilegri, þegar börn og unglingar á viðkvæmum þroskaaldri ættu í hlut. Spurning hvort læknar al- mennt vissu nægilega mikið um þenn- an sjúkdóm og nauðsynlegt væri að fræða kennara um sjúkdóminn og sjálfsögð viðbrögð við honum s.s. ákveðna tillitssemi við þá nemendur sem fengju sjúkdóminn og sem væri mjög mikilvæg. Miklar umræður urðu og um þá reglu Tryggingastofnunar ríkisins að heimila ekki endurgreiðslu varðandi upphækkun eða sérsmíðun skóa nema lengdarmunur fóta væri 2 cm eða meira og þótti fólki í ljósi reynslu sinnar og orða Gunnars Þórs og fleiri sérfræðinga sem brýnt væri að fá breytingu hér á. Einnig var rætt um framkvæmd umönnunarbóta til foreldra barna með Perthes-sjúkdóm en réttur til þeirra ætti ótvíræður að vera. ✓ Ilok fundarins var einróma sam- þykkt að fara út í félagsstofnun þar sem allir sem áhuga hefðu á mál- inu yrðu þátttakendur, en áherzla yrði lögð á aðild foreldra sem allra flestra, einnig þeirra sem nú væru fullorðnir, en hefðu fengið sjúkdóminn sem böm svo og vildu menn þátttöku eða þá góða samvinnu við lækna og aðrar heibrigðisstéttir sem og aðila úr fé- lagslega- sem menntunargeiranum. í nefnd til undirbúnings stofnfundar em þær: Halldóra Björk Oskarsdóttir, Heiðrún Davíðsdóttir og Jórunn Guðmundsdóttir. Nánar verður sagt frá í næsta blaði, enda fullvíst að af félagsstofnun muni verða áður en þetta blað birtist lesendum. H.S. Unaður Líkamar okkar mætast eins og lækurinn og steinninn. Hvorugt getur án hins verið. Líkamar okkar mætast eins og vindurinn og hafið. Hvorugt getur án hins verið. Líkamar okkar mætast eins og girndin og lostinn. Hvorugt getur án hins verið. Margrét Guðmundsdóttir 38

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.