Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Blaðsíða 5
Tómas Helgason form. stjórnar Hússjóðs:
AFMÆLIS K VEÐ J A TIL
HÚSNÆÐISSTOFNUNAR
Fjörutíu ár eru liðin frá því lög
um húsnæðismálastjóm, veð-
lán til íbúðabygginga og útrýmingu
heilsuspillandi húsnæðis voru sett.
A þeim tíma var nauðsynlegt að
leggja áherslu á síðasta lið fyrir-
sagnarinnar, útrýmingu heilsuspill-
andi húsnæðis, ekki hvað síst í
Reykjavík. Hingað hafði flykkst
fólk síðan á stríðsárunum, þrátt
fyrir skort á húsnæði. Til þess að
hafa þak yfir höfuðið urðu margir
að búa í kjöllurum, háaloftum,
bröggum og öðru bráðabirgðahús-
næði, sem var með öllu ófull-
nægjandiogoftskaðlegtheilsu. A
árunum 1952 og 1953 var ég
aðstoðarlæknir borgarlæknisins í
Reykjavík og skoðaði þá ásamt
öðrum starfsmönnum embættisins
hundruð slíkra íbúða fyrir fólk, sem
þurfti læknisvottorð unt ástand
íbúða sinna til að geta fengið svo-
kölluð smáíbúðalán. Astand
margra þessara íbúða var með
slíkum ólíkindum að fæstir geta nú
gert sér grein fyrir því. Þó að mikið
af framförum síðustu áratuga megi
þakka aukinni velmegun og hag-
vexti, er ekki vafi á því að lögin um
húsnæðismálastjórn og Húsnæðis-
stofnun ríkisins skiptu sköpum fyrir
þá sem bjuggu í heilsuspillandi
húsnæði.
• •
Oryrkjar voru þó verst settir.
Til þess að mæta þörfum
þeirra fékk stofnunin heimild á ár-
inu 1965 til að veita Öryrkjabanda-
lagi íslands lán til að byggja leigu-
húsnæði. Arið eftir var Hússjóður
Öryrkjabandalagsins settur á lagg-
irnar sem sjálfseignarstofnun.
Nokkur félaga Öryrkjabanda-
lagsins lögðu fram 100.000,- kr.
framlag samtals sem stofnfé. Undir
forystu Odds heitins Ólafssonar
yfirlæknis og síðar alþingismanns
Tómas Helgason.
var þegar hafist handa um hönnun
bygginga Hússjóðsins að Hátúni 10
í Reykjavík. Á árinu 1968 veitti
Húsnæðisstofnun Hússjóðnum
fyrstu lánin vegna íbúða í Hátúni
10.
Þá hófst farsælt samstarf sem
staðið hefur allar götur síðan og
aldrei borið skugga á. Stjórn og
framkvæmdastjóri Húsnæðisstofn-
unar ríkisins ásamt öðrum starfs-
mönnum hennar hafajafnan lagt sig
í framkróka um að greiða fyrir
lánsumsóknum Hússjóðsins hvar á
landinu sem sjóðurinn hefur þurft
að kaupa íbúðir. Með hagstæðum
lánum frá Húsnæðisstofnun og á
síðustu árum með hlutdeild
Öryrkjabandalagsins í Iottóhagnaði
hefur Hússjóðurinn nú eignast um
500 íbúðir sem leigðar eru öryrkj-
um gegn viðráðanlegri leigu. For-
senda slíkra leigukjara er auðvitað
sérstök vaxtakjör, sem Húsnæð-
isstofnunin getur veitt vegna íbúða
fyrir öryrkja.
rátt fyrir þetta vantar enn
íbúðir fyrir mikinntjöldafatl-
aðra, sérstaklega þá sem þurfa
umönnun eða liðveislu við heim-
ilishald sitt til að geta búið sjálf-
stætt. Kostnað vegna slíkrar um-
önnunar eða liðveislu verða sveit-
arfélög eða svæðisskrifstofur fatl-
aðra að greiða. Því miður vantar
verulega á að nægjanlegt fé sé áætl-
að til þessarar starfsemi.
Stefna Hússjóðsins í íbúða-
byggingum og kaupum er fyrst og
fremst að afla húsnæðis sem hægt
er að leigja fötluðum á hagstæðum
kjörum og stuðla þannig að jafnrétti
íþjóðfélaginu. Til þess að ná þessu
markmiði þarf annars vegar að
dreifa íbúðum öryrkja sem víðast
svo að samgangur verði eðlilegur
milli allra þegna þjóðfélagsins.
Hins vegar þarf að veita fötluðum
og fjölskyldum þeirra valfrelsi,
þannig að þeir sem finna til öryggis
af að búa nálægt öðrum sem eiga
við svipaðan vanda að etja geti átt
kost á því og þá átt greiðari aðgang
að skyndihjálp húsvarðar eða
umsjónarmanns. Þrátt fyrir þann
íbúðafjölda, sem Hússjóður
Öryrkjabandalagsins á nú þegar,
þarf hann enn að eignast nokkur
hundruð íbúðir um allt land á næstu
árum svo að hægt sé að bjóða fötl-
uðum sem nú þegar eru á biðlista
mannsæmandi húsnæði. Til þess að
það megi takast þarf frekari fyrir-
greiðslu Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins um ókomin ár.
Af nærri 30 ára reynslu horfi ég
bjartsýnn til áframhaldandi sam-
starfs Hússjóðs Öryrkjabanda-
lagsins og Húsnæðisstofnunar
ríkisins og flyt stjórn hennar, fram-
kvæmdastjóra og öðru starfsfólki
bestu ámaðaróskir á þessum tíma-
mótum og þakkir fyrir samstarfið
á liðnum árum.
Tómas Helgason.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
5