Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Qupperneq 15
Fréttabréf
Heyrnarhjálpar
Ég heyri ekki vel
® Horfðu á mig
HEYRNARHJÁLP |
© Talaðu hægt og skýrt
Félagið Hcyrnarhjálp
Klapparslio«i 28 * 101 Reyiijavik * lceland
Sími / Tel (354) 551 5895 * Fax: (354) 551 5835
® Fálagið Heyrnarhjálp ersamlök hcyrnarskertra.
® Hlutvcrk þcss cr að gæta hagsmuna fclagsmanna
sinna og cfla skilning samfélagsins á fötluninni.
® Það lætur nærri að heyrnarskertir séu um 10%
af íslensku þjúdinni.
Nafn mitl er: --------------------------------------
Heimilisfang:---------------------------------------
Sími:_____________________
"Vísakort heyrnarskertra".
✓
Iágætu og Ijómandi skýru frétta-
bréfi Heyrnarhjálpar er glögglega
greint frá því helzta í fjölbreyttu starfi
félagsins svo og því sem tengist
starfseminni á ýmsan hátt. Þar er m.a.
greint frá merki félagsins, sem prýðir
forsíðu fréttabréfs þess og fylgir hér
með þessari frásögn en aðeins ekki í
sínum réttu grænu og dökkbláu litum.
Sagt er frá aðalfundi félagsins sem
haldinn var 30. maí sl. þar sem m.a.
kemur fram að félagaaukning í
Heyrnarhjálp hafi verið um 50 %
milli áranna 1994 og 1995 og skýrt
frá hinu almenna starfi félagsins, þar
sem víða er komið við í verkum
góðum. Formaður félagsins er Friðrik
Rúnar Guðmundsson og aðrir í stjórn
eru: Anna Guðlaug Gunnarsdóttir,
Bryndís Guðmundsdóttir, Guðjón
Yngvi Stefánsson og Helga Krist-
insdóttir.
í sérstökum kafla um Samskipta-
miðstöð heyrnarlausra og heyrnar-
skertra er sagt frá tilraunanámskeiði
á liðnum vetri fyrir heyrnarskerta og
í því sambandi minnt á þörf fyrir
þróun námsefnis fyrir kennslu sem
þessa. Einnig er þar sagt að þjálfa
þurfi hæfni heyrnarskertra í varalestri
og kenna þeim táknmál sem nýta má
með tali: tákn með tali. Reiknað er
með að Samskiptamiðstöð bjóði upp
á námskeið fyrir heyrnarskerta á vetri
komanda. Þá er sagt frá nefnd um
túlkunarþjónustu fyrir heyrnarskerta,
heyrnarlausa og daufblinda, sem
félagsmálaráðuneytið setti á laggirnar
og finna á framtíðarlausn þessara
mála. í nefndinni eiga sæti fulltrúar
Heymarhjálpar, Félags heyrnarlausra,
Samskiptamiðstöðvar og ráðuneyta
félags-, mennta- og heilbrigðismála.
á er að lokum greint frá erlendu
samstarfi, en Heyrnarhjálp á að-
ild að NHS, Nordiska Hörselskadades
samarbetskommitte, en það eru heild-
arsamtök heyrnarskertra á Norður-
löndum. Stjórnarfundur þeirra sam-
taka var haldinn hér í Reykjavík í
febrúar sl., en félagið Heyrnarhjálp
skipulagði þann fund og stóð auk þess
að mjög vel heppnaðri menningar- og
landkynningu fyrir hina norrænu
gesti.
Ótalið er svo það atriði fréttabréfs-
ins sem fjallar um “vísakort heyrn-
arskertra”, en framkvæmdastjóri
félagsins, Jóhanna S. Einarsdóttir,
hefur tekið saman fróðleik um þetta
ágæta kort og um tónmöskva í leik-
húsunum, sem birtist hér með. Aðeins
það svo í lokin að fréttabréf sem þetta
er fagnaðarefni okkur hér á bæ, því í
ljósu máli má þar finna þann fróðleik
um farsælt starf félaga okkar sem full
þörf er á að við kunnum glögg skil á.
Góð tengsl félaga og bandalags eru
báðum mikilvæg og vonandi dýrmæt.
H.S.
*
Fréttamaður í útvarpi var að spyrja
klósettvörð á Akureyri: „Er mikil ört-
röð hérna á morgnana eða hefirðu
einhverja fastagesti?" Sami frétta-
maður spurði safnvörðinn í Nonna-
húsi: „Er safnið mikið sótt af Akur-
eyringum og Islendingum?“
HLERAÐI
HORNUM
Stórkaupmaðurinn þurfti að ráða til
sín bókhaldara og fjölmargir sóttu.
Hann spurði alla afar einfaldrar spum-
ingar sem sé hvað tveir plús tveir væm
mikið. Menn voru að vonum fljótir að
svara rétt utan einn sem hugsaði málið
vel og sagði svo: „Það fer nú eftir
ýmsu“. Hann var vitanlega ráðinn.
*
Maður einn mætti bónda með fjárhóp
á undan sér og með honum var fjár-
hundurinn. Maðurinn bauð bónda
veðmál, hvort hann mætti fá eina kind
úr hjörðinni, ef hann segði að bragði
hversu margar þær væru. Bóndi hélt
nú það og maðurinn sagði nákvæm-
lega réttu töluna, svo bóndi sagði
honum að taka verkalaun sín sem
hann gerði. En þá bauð bóndi tvöföld-
un veðmáls ef hann gæti sagt hinum
ókunna hver hann væri og gekk mað-
urinn að því. „Þú ert hagfræðingur og
láttu fjárhundinn svo niður“, sagði
bóndi.
*
Sjónhverfingamaður var að lýsa því,
hve listir hans væru í hávegum hafðar
um gjörvallar Bretlandseyjar. „Eg hefi
fengið bréf með viðurkenningu og
þakklæti frá Englandi, írlandi og
Wales og póstkort frá Skotlandi“.
*
Skoti einn ákvað að safna fé til
sumarferðalags þeirra hjóna á þann
hátt að stinga tíeyring í sparibaukinn
í hvert skipti, sem hann kyssti kerlu
sína. Þegar sumarleyfið kom, opnaði
hann baukinn og varð heldur en ekki
hissa þegar hann fann þar ekki aðeins
tíeyringa, heldur einnig 25 eyringa,
krónu- og tveggjakrónupeninga. Hann
spurði konu sína hvaða skýringu hún
gæfi á þessum undrum. „Nú, ekki aðra
en þá, gamli minn, „svaraði hún, „að
það eru ekki allir eins svívirðilega
smásálarlegir og þú“.
*
Skoti nokkur heimtaði að leiksýningu
lokinni peningana, sem hann hafði
greitt sem skemmtanaskatt, þegar
hann keypti aðgöngumiðann að
sýningunni. „Vegna hvers viljið þér
fá þá aftur?“ var spurt. „Nú vegna þess
að ég skemmti mér ekkert“, svaraði
hann.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJAB ANDALAGSINS
15