Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Síða 17

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Síða 17
Jolee Margaret Crane: Fyrir tíma Mig langar í þessari grein að segja frá því hvernig það var fyrir alblinda stúlku að fara í háskóla í Bandaríkjunum árið 1960. Það er töluvert öðruvísi en nú er, auk þess sem bandaríska skólakerfið er öðruvísi en hér. Ég er fædd í New Jer- sey en uppalin í New-Yorkríki og gekk þar í háskóla. Ég sótti um skólavist og fékk jákvætt svar í mars árið 1960. í framhaldi af því varð ég að hafa samband við þá sem sáu um skólamál blindra í New-Yorkríki. New-Yorkríki greiddi skólagjöldin og síðar bækurnar. Það var þó ekki sjálfgefið og þurfti ég að uppfylla ýmsar kröfur áður en greiðslan var samþykkt. Foreldrar mínir urðu að skila inn efnahagsskýrslu og síðan var metið hvað þau gætu greitt af þeim kostnaði sem fylgir því að fara í háskóla, t.d. heimavistargjöld og máltíðir. Einnig þurfti ég að stunda hagnýtt nám, þ.e. læra eitthvað sem ég gæti síðar unnið við. Ég hafði t.d. áhuga á að fara í tungumálanám til þess að vinna síðar við þýðingar en það fékkst ekki samþykkt. Þá var mér bent á að félagsfræði væri hagnýt grein fyrir blinda og ég féllst á það. Ég fékk í hendur spurningalista sem ég átti að leggja fyrir einn sjáandi og einn blindan félagsráðgjafa. Þama var m.a. að finna spurningar eins og hvemig líkarþér starfið o.s.frv.? Þetta var gert til þess að ég áttaði mig betur á því hvað ég væri að fara út í. Ein af þeim kröfum sem gerðar voru til mín var sú að ég færi um sumarið í endurhæfingu í Blindra- félaginu í New-York (Lighthouse). Þarna var ég látin læra og gera ýmsa hluti sem ég hef aldrei gert, hvorki fyrr né síðar, eins og t.d. að byggja turna úr kubbum og laga hurðarhúna. Þarna lærði ég líka að ganga úti með hvíta stafinn og það hefur vissulega komið mér að miklu gagni. Þá var sú krafa gerð að ég sendi New-Yorkríki mánaðarlega skýrslu um það hvernig mér gengi í skólanum. Þeir fylgdust mjög vel með og fengu m.a. einkunn- imar sendar beint frá skólanum. Aður tölvunnar en skólinn byrjaði á haustin þurfti ég sjálf að hafa upp á kennurunum og komast að því hvaða bækur yrðu notaðar í hverju fagi, og sjá sjálf urn að verða mér úti um þær á aðgengi- legu formi fyrir mig. Ef ég fékk bækumar nógu fljótt var hægt að lesa þær inn á þunnar plötur áður en skól- inn byrjaði, en annars tók innlestur hverrar bókar um 6 vikur og oft fékk ég þær sendar í pörtum (tvær til þrjár plötur í einu). Á þeim tíma fékk ég engar bækur á blindraletri nema þá helst skáldsögur, þær voru allar á plötum eða lesnar jafnóðum fyrir mig. New-Yorkríki veitti mér 500 dollara fjárveitingu árlega til þess að borga samnemendum mínum fyrir að lesa námsbækurnar fyrir mig. Sam- nemendumir fengu eyðublöð þar sem þeir áttu að skrifa inn túnafjöldann og dagana og síðan fengu þeir greitt eftir hverja önn. Seinna var farið að greiða þeim mánaðarlega. egar skólinn byrjaði hafði ég ekki lært að rata um skólalóðina þannig að samnemendur mínir hjálp- uðu mér á milli húsa t.d. yfir grasflatir og opin bílaplön. Síðar útbjó vinur föður míns fyrir mig kort af svæðinu og ég lærði að rata eftir því. Seinna um veturinn kom svo mikill snjór að nemendur gátu ekki lengur stytt sér leið yfir grasið og bílaplönin. New-Yorkríki skyldaði þá nem- endur sem fengu skólagjöldin greidd til þess að finna sér sumarvinnu. Ég vann í þrjú surnur á meðan ég var í háskólanum. Fyrsta sumarið útvegaði New-Yorkríki mér sjálfboðastarf í Blindrafélagi í New-York við að merkja möppur félagsmanna með blindraletri. Ég átti einungis að skrifa nafn hvers félagsmanns á möppuna hans. Annað sumarið vann ég á síma- skiptiborði og þriðja sumarið vann ég við að vélrita eftir segulbandi. Tvö síðarnefndu störfin útvegaði ég mér sjálf og þau voru að sjálfsögðu laun- uð. Ég hef svo margt að segja um há- skólagöngu rnína að það gæti fyllt heila bók. Ég gæti t.d. sagt frá því þegar deildarstjóri félagsmáladeildar háskólans treysti mér ekki til þess að hafa einhvern til að lesa fyrir mig prófin. Flann hélt að ég hefði meiri möguleika á því að svindla. Ég átti í miklum samstarfserfiðleikum við þennan deildarstjóra, en sem betur fer var hann rekinn frá störfum við deild- ina síðasta árið sem ég var í skólanum. En ég átti líka mínar gleðistundir í skólanum og þetta var alls ekki ein- tómt puð. Ég fékk strax inngöngu í háskólakórinn og þar söng ég eftir eyranu. Ég söng m.a. með kórnum Sálumessu Mozarts. Einnig fór ég með kórfélögum og nemendum í ýmis ferðalög. Með þessu vil ég leggja áherslu á að ég þurfti að hafa töluvert meira fyrir hlutunum en nú er. Þó þetta hafi oft verið erfitt þá öðlaðist ég líka reynslu sem hefur nýst mér gegnum tíðina. Kassettutækið kom t.d. ekki á almennan markað fyrr en síðasta árið mitt í skólanum, og auðvitað voru engar tölvur til fyrir almenna notendur. Ég vélritaði allar mínar ritgerðir á svartletur og þegar ég hafði lokið þeim var ég búin að fá mig fullsadda af efni þeirra. Þrátt fyrir þetta útskrifaðist ég úr skólanum á tilsettum tíma, eða á fjórum árum. Einkunnir mínar voru ekkert sérstaklega háar en ég náði öll- um prófunum og útskrifaðist athuga- semdalaust úr Adelphi University með BA-gráðu í félagsfræði og félags- ráðgjöf. I dag bý ég í húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17 og vinn á vinnustofu þess. Ég kom til Islands árið 1967, giftist og eignaðist eina dóttur. Við skildum að vísu árið 1975 og ég hef unnið á Blindravinnustofunni frá haustinu 1985. Þá hef ég einnig starfað töluvert að félagsmálum í Blindra- félaginu og í kaþólska söfnuðinum. Jolee Margaret Crane Ágústa Gunnarsd. aðstoðaði. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 17

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.