Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Blaðsíða 20
Svipmynd af samferðamanni:
Yiðtal við Sigurbjörgu
/
Armannsdóttur forystukonu
í MS félaginu til fjölda ára
Nú á dögunum var nýtt og glæsi-
legt hús MS félagsins tekið í
notkun við Sléttuveg nr 5.
Með tilkomu þessa húss rýmkast
heldur betur um starfsemi MS fé-
lagsins og öll aðstaða fyrir MS sjúkl-
inga batnar mikið. Þetta hús er einnig
merki þess að margir hafa unnið sam-
an ötult starf og margir lagt hönd á
plóginn. Ekki alls fyrir löngu hitti ég
unga konu sem talsvert hefur komið
nálægt starfsemi MS félagsins. Það
er Sigurbjörg Ármannsdóttir, Aust-
firðingur í húð og hár en alin upp í
Hafnarfirði.
Sigurbjörg gekk í Barnaskóla
Hafnarfjarðar og síðan í Flensborg.
Þegar hún var komin í 4. bekk í
Flensborg og búin að ákveða að fara í
Kennaraskólann veiktist hún.
Eg spurði Sigurbjörgu hvernig
þessi veikindi hefði borið að?
“Ég byrjaði að dofna í fótum,
úthald fór minnkandi og samhæfing
hugar og handa fór þverrandi, sömu-
leiðis átti ég erfitt með gang.”
Segðu mér Sigurbjörg, hvað gerir
16 ára stúlka sem veikist svona?
“Hún gerir það sem henni er ráð-
lagt af læknum og heldur kyrru fyrir í
rúminu. Það var slæmt að geta ekki
lesið, því ég varð að hvíla augun, en
aldrei efaðist ég eina stund um að mér
mundi batna. Þetta fyrsta kast sem
ég fékk var 3 mánuði að ganga yfir,
ég var nokkuð fljót að jafna mig og
fór í Kennaraskólann”
Hvernig gekk svo
skólagangan?
“Hún gekk vel í nokkra mánuði,
en þá fór ég að fá einkenni sem ég
þekkti og uppúr því veiktist ég aftur.
Þetta annað kast kostaði mig 8 mánuði
í rúminu. Og aftur efaðist ég aldrei
um að mér mundi batna,”, segir Sigur-
Sigurbjörg Ármannsdóttir.
björg. Sigurbjörg fór ekki aftur í
Kennaraskólann eftir þetta, en lærði
snyrtingu.
Á þessum tíma var ekki búið
að greina Sigurbjörgu með
MS sjúkdóm
“Ég er fegin að þá vissi ég ekki að
ég var með ólæknandi sjúkdóm,”segir
hún. Svo liðu 5 ár án einkenna eða
veikinda. Sigurbjörg vann í Apóteki
Hafnarfjarðar um árabil. Hætti því og
setti þá upp eigin snyrtivöruverslun.
Rak hana sjálf og sá um hana að öllu
leyti.
“Dag einn þegar ég var í búðinni
hringdi síminn, það var Kjartan R.
Guðmundsson læknir sem fyrstur
rannsakaði MS sjúkdóminn á Islandi.
Hann spurði mig bara sí svona hvort
hann mætti skoða mig. Og þar sem
ég vissi ekki í fyrstu hver þetta var,
hélt ég nú ekki. En eftir að málin
höfðu verið útskýrð féllst ég á að hitta
hann.” Sigurbjörg sagði að Kjartan
hefði verið mjög ánægður hversu vel
hún hefði náð sér eftir þessi veikindi
sem þá voru kölluð vírus.
Sigurbjörg segir mér að það hafi
verið Sverrir Bergmann læknir sem
árið 1974 segir henni að hún sé með
MS sjúkdóm. Þar sem ég sit á móti
þessari konu við eldhúsborðið hennar,
fullfrísk og kenni mér hvergi meins,
ímynda ég mér að á því augnabliki
hljóti að hafa hrikt í öryggisstoðunum
í lífi hennar og að hún hafi jafnvel átt
erfitt með að greina ljós framundan.
Svo ég spyr, hvernig hafi verið að
fá þær fréttir að vera með ólæknandi
sjúkdóm?
Hún svarar: “Þetta breytti lífi mínu,
en skemmdi það ekki.” Þetta svar
kom algerlega óhikað og blátt áfram
og sagði mér meira um þessa konu en
hægt er að segja frá í einu svona
viðtali.
Árið 1973 kynnist Sigurbjörg eig-
inmanni sínum. Og rúmu ári eftir það
fóru einkenni að koma í ljós sem
Sigurbjörg þekkti vel. Og veikindin
koma aftur hægt og sígandi. Hún
dvaldi um þetta leyti nokkra mánuði
á Reykjalundi. En aldrei lét Sigur-
björg hugfallast, var full bjartsýni og
þau hjónin stofnuðu sitt eigið heimili
1974. Og 1977 fæddistþeim lítill sól-
argeisli, sonur sem skírður var
Ármann.
Sverrir Bergmann, læknir sagði
Sigurbjörgu frá MS félaginu og
1977 er hún orðin virkur félagi.
“Ég var í skemmtinefndum og
varamaður í stjórn, og frá 1984 þar til
í maí sl. var ég ritari félagsins. Sem
stjórnarmaður tók ég þátt í að koma á
laggirnar fræðslu- og stuðningshóp
fyrir nýgreinda MS sjúkhnga. Og til
að byrja með höfðum við Hafdís
Hannesdóttir, félagsráðgjafi urnsjón
með því starfi. En Hafdís er einnig
aðalfulltrúi félagsins í stjóm Öryrkja-
bandalags íslands. Ég er einnig vara-
fulltrúi félagsins í stjórn Öryrkja-
20