Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Side 27
Hugað að hannyrðum góðum því mörg er iðjan mætagóð.
eftirspurn. Einnig eru margir á skrá
hjá Atvinnudeildinni núna sem óska
eindregið eftir að komast á almennan
vinnumarkað og eru taldir ráða við
störf þar. Vil ég eindregið hvetja
fyrirtæki til að hafa samband við
okkur svo og aðrar stofnanir sem
sinna atvinnumálum fatlaðra svo sem
svæðisskrifstofur málefna fatlaðra
utan höfuðborgarinnar.
Hvaða fyrirtæki geta gert
samning við
Try ggingastofnun ?
í reglugerðinni segir að Trygg-
ingastofnun sé heimilt að semja við
atvinnurekendur á almennum vinnu-
markaði um ráðningu fatlaðra í störf.
Hér er t.d. um að ræða fyrirtæki í
einkarekstri, hlutafélög og opinber
fyrirtæki svo sem stofnanir ríkis og
sveitarfélaga. Þeimfyrirtækjum, sem
hafa áhuga á að gera samning við
Tryggingastofnun um ráðningu fatl-
aðra í störf, er bent á að hafa samband
beint við hana eða snúa sér til þeirra
stofnana sem sinna atvinnumiðlun
fyrir fatlaða sérstaklega. I Reykjavík
er það Atvinnudeild fatlaðra hjá
Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar, en
utan höfuðborgarinnar eru það í flest-
um tilvikum svæðisskrifstofur mál-
efna fatlaðra.
Fyrir hvaða fatlaða
einstaklinga er reglugerðin?
Til þess að fatlaður maður geti
farið á samning þarf hann að njóta
örorkulífeyris, örorkustyrks, endur-
hæfingarlífeyris eða slysaörorkubóta
undir 50%. Þeim öryrkjum, sem hafa
áhuga á að fá vinnu hjá fyrirtækjum
skv. reglugerðinni, er bent á að snúa
sér til stofnana sem sjá um
vinnumiðlun svo sem Atvinnudeildar
fatlaðra hjá Vinnumiðlun Reykjavík-
urborgar og svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra utan höfuðborgarinnar.
Samráð vegna undirbúnings
vinnusamnings
Stofnanir sem sinna atvinnumiðlun
og endurhæfingu fatlaðra og samtök
öryrkja eru þeir aðilar sem geta unnið
að undirbúningi skriflegs vinnusamn-
ings. Þessar stofnanir og samtök eru
þannig tengiliður milli hins fatlaða,
fyrirtækisins og Tryggingastofnunar.
Starfsmenn þessara stofnana eða
samtaka eru í sambandi við hinn fatl-
aða einstakling og senda bréf til
Tryggingastofnunar þar sem farið er
fram á að samningur sé gerður við
viðkomandi fyrirtæki. I þessu bréfi er
t.d. vinnusaga hins fatlaða rakin og
starfmu lýst svo og vinnutíma og laun-
um og hvert samningstímabilið er.
Allmikil vinna hefur farið fram
áður en bréfið er sent til Trygginga-
stofnunar. Heimsækja þarf fyrirtækið
til að leggja mat á það starf sem þar
er í boði og hvort það hentar viðkom-
andi einstaklingi. Sá sem útvegar
starfið þarf að þekkja vel hinn fatlaða
og vinnusögu hans, sterkar og veikar
hliðar. Mikilvægt er að samráðs-
aðilinn vandi vel til þessarar und-
irbúningsvinnu og reyni að ná bráða-
birgðasamkomulagi um helstu atriðin
áður en farið er fram á að Trygginga-
stofnun geri skriflegan samning. Því
betur sem vandað er til þessarar
undirbúningsvinnu þeim mun meiri
líkur eru á því að hinum fatlaða famist
vel hjá fyrirtækinu.
Vinnusamningurinn
Ef Tryggingastofnun fellst á það
samkomulag, sem fyrirtækið og hinn
fatlaði hafa gert, útbýr hún vinnu-
samning sem skal síðan undirritaður
af vinnuveitanda, hinum fatlaða og
fulltrúa lífeyrisdeildarinnar. I vinnu-
samningnum koma t.d. fram eftirtalin
atriði:
Samningsaðilar: Nafn fyrirtækis-
ins, heimilisfang og kennitala.
Nafn starfsmanns, heimilisfang og
kennitala.
Lýsing starfs: Starfsheiti.
Vinnutími: Hvaða tíma dagsins er
unnið og hvort um er að ræða hálfan
dag eða heilan. Vinnusamning má
gera um hluta úr heilsdagsstarfi en
gera má ráð fyrir að miðað verði við
hálft starf hið minnsta að loknum
reynslutíma.
Laun: Gerður skal samningur um
kaup og kjör sem skal vera sá sami
og er gildandi á hverjum tíma milli
launþega og atvinnurekanda.
Hlutfall endurgreiðslu launa og launa-
tengdra gjalda: Hlutfall endur-
greiðslu skal aldrei vera hærra en 75%
og aldrei lægra en 25%. Gera má ráð
fyrir því að hlutfall endurgreiðslu fari
lækkandi eftir því sem starfsmaður
nær betri tökum á starfinu. Hlutfall
endurgreiðslu er endurskoðað um leið
og samningur er endurnýjaður.
Réttindi í sjúkdóms- og slysafor-
föllum: Með launagreiðslur í sjúk-
dóms- og slysaforföllum skal fara skv.
5 gr. laga nr. 19/1979, lög um rétt
verkafólks til uppsagnarfrests frá
störfum og til launa vegna sjúkdóms-
og slysaforfalla.
Uppsagnarfrestur: Vinnusamn-
ingurinn er uppsegjanlegur af beggja
hálfu og skulu ákvæði uppsagnar vera
í samræmi við almenna kjarasamn-
inga í þeirri starfsgrein. Uppsögn skal
vera skrifleg og miðast við mán-
aðamót. Uppsögn skal jafnframt til-
Sjá næstu síðu
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
27