Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Page 29
Sveinn Már Gunnarsson
• • /
Kveðja frá Oryrkjabandalagi Islands
Skjótt hefur sól brugðið sumri.
Sveinn Már Gunnarsson læknir
andaðist 13. júlí sl. eftir alvarleg
veikindi, aðeins 48 ára gamall. Við
horfum á eftir manni á besta aldri,
lækni, sem átti til að bera þá gleði og
hlýleik, sem gerði það að verkum að
fólki leið vel í návist hans, hvort sem
það leitaði til hans sem læknis eða
félaga. Sveinn lauk námi í læknis-
fræði frá Háskóla íslands árið 1974
og kynntist endurhæfingu snemma á
starfsferli sínum er hann réðst aðstoð-
arlækniráReykjalundárið 1976. Hélt
hann síðan til Svíþjóðar í sérnám og
valdi þá barnalækningar og lagði sér-
staklega fyrir sig þá grein sem lýtur
að málefnum fatlaðra barna og ung-
menna. Er heim kom réðst hann á
Reykjalund sem sérfræðingur þess
sviðs. Hann gerði hæfingu barna og
unglinga að meginþætti í starfi sínu
og var fyrsti íslenski læknirinn, sem
lagði þessi fræði sérstaklega fyrir sig.
Auk starfa sinna á Reykjalundi
starfaði hann sem sérfræðingur og
ráðgjafi á Greiningar- og ráðgjafar-
Sveinn Már Gunnarsson.
stöð ríkisins og hafði auk þess mót-
tökuaðstöðu á Æfingastöð Styrktar-
félags lamaðra og fatlaðra fyrir börn
og unglinga, sem leitað var til hans
með. Sveinn starfaði einkum á tveim-
ur sviðum meðal fatlaðra barna og
ungmenna: annars vegar á meðal
barna og unglinga með líkamlegar
fatlanir og hinsvegar meðal bama með
einkenni um misþroska sem svo er
kallaður þegar barn nær að þroskast á
vissum sviðum en öðrum ekki. A báð-
um þessum sviðum lagði hann mikið
af mörkum. Það er ekki bara sorglegt
þegar hæfileikamenn með mikla
reynslu falla frá á besta aldri það er
líka mikill skaði. Okkar fámenna
íslenska samfélag má ekki við að
missa mann með þá þekkingu og
reynslu sem Sveinn bjó yfir. Hann
skilur eftir sig stórt og vandfyllt skarð.
Það er sagt að maður komi í manns
stað og vissulega er það rétt. En sami
maðurinn kemur aldrei aftur. Það eru
tiltölulega fáir læknar starfandi, sem
hafa sérhæft sig í umönnun fatlaðra
barna og ungmenna. Vonandi fjölgar
þeim með tímanum.
Við yljum okkur við minningamar
sem við eigum um góðan dreng og
frábæran lækni. Öryrkjabandalag
Islands þakkar honum allt það mikla
starf sem hann vann fyrir fötluð börn
og ungmenni á íslandi og sendir
fjölskyldu Sveins innilegar samúðar-
kveðjur.
Á.I.
Minnzt tveggj a mætra kvenna
✓
Aliðnu vori létust með skömmu
millibili tvær merkiskonursem
lögðu þessu riti góða og þakkarverða
liðsemd sína.
Örfá kveðjuorð skulu þeim því
helguð hér.
Eiríka A. Friðriksdóttir hagfræð-
ingur lézt í maí sl. og var þá orð-
in 84ra ára.
Eiríka hafði af mörgu mæt afskipti
um dagana m.a. neytendamálum
hvers konar enda lengi í forystusveit
Neytendasamtakanna. Öryggis- og
slysavarnarmál voru henni hugleikin
mjög, enda vann hún mjög mikið að
athugun á þeim og úrbótum í þeim
efnum. Alveg sérstaklega var öryggi
barna henni hugstætt og hún var
óþreytandi að benda á þær hættur sem
þeim gætu að heilsu- eða fjörtjóni
orðið.
Eiríka hafði oft samband við rit-
Eiríka A. Ingibjörg
Friðriksdóttir. Jóhannsdóttir.
stjóra og bað hann vekja athygli á
ýmsu bráðþörfu eða fjalla um tiltekin
mál, sem ég gerði gjarnan þar sem
athugasemdir hennar voru vel ígrund-
aðar og rækilega rökstuddar.
Fyrir þær ábendingar og vökula
varðstöðu um öryggismál - ekki sízt
barna, aldraðra og öryrkja - er hennar
minnzt hér á bæ þakklátum huga.
Ingibjörg Jóhannsdóttir fv. skóla-
stjóri lézt í júní sl. rétt eftir 90 ára
afmæli sitt.
Ingibjörg átti einmitt hina ágætustu
grein í síðasta blaði og hafði ýmsa
eldri pistla sína í huga handa ritstjóra
að ntega moða úr. Ingibjörg var mikil
mannræktarkona. Hún var merk
skólamanneskja, uppeldismál í víð-
ustu merkingu voru hennar áhugamál,
“uppeldi til aukins þroska á guðs-
ríkisbraut”, eins og hún sjálf orðaði
það.
Forstaða skólanna að Staðarfelli og
Löngumýri mun lengi halda minningu
hennar á lofti að miklum verðleikum,
þar sem unnið var af óeigingirni og
eldlegum áhuga að sannri mannrækt.
Starf hennar allt byggðist á ósér-
hlífnu starfi og mikilli fórnfýsi í þágu
mannbóta og mannheilla, hún var
mjög ritfær og fagurt mál og meitlað
tungutak einkenni hennar.
I virðingu og hlýrri þökk er hennar
minnzt.
Blessuðsébeggjaminning. H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
29