Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Síða 39
Magnús Einarsson:
Hugleiðing um Bach
og hinn brákaða reyr
egar ég hiusta á Bach má e.t.v.
segja að mjög þrungin verk með
mystískum áherslum sem höfða beint
til hugsunarinnar séu erfiðust og ég
þarf að hlusta á þau verk oft til að
skilja og sættast við seiðmagn þeirra
og nefni ég þar Tónafórnina, kröftugt
orgelverk og Goldberg-varíasjónimar
sem dæmi. Margræðni verka Bachs
getur gripið mann ofboðslega sterkt.
Verk Bachs vekja vissar vonir, sér-
staklega með tilliti til biblíunnar. Tón-
list Bachs er mjög sérstök og ekki
hægt að tala um venjulega barokktón-
list þó hún sé samin á því tónlistar-
skeiði og taki sinn svip af því. Hún er
miklu dýpri og flóknari en t.a.m.
tónlist Telemans. Konsertar Bachs em
allir með fjórum laglínum hvert stef.
Þar spila fiðla, selló, bassi og sembal
sitt hverja laglínu þótt eitt hljóðfærið
sé ráðandi hverju sinni. Stundum em
konsertar útfærðir fyrir þverflautu eða
óbó og þá eru þessi blásturshljóðfæri
ráðandi. Niðurstaðan er stórbrotin
verk sem skilja mikið eftir sig við
hverja hlustun. Það þarf að venjast
verkum Bachs til að kunna að meta
þau. Einleiksverk eru mörg fyrir orgel
eða sembal og þau krefjast mikillar
hlustunar til að þau grípi. Þar fara
fremstar Goldberg-variasjónimar fyr-
ir sembal og tokkata og fúga fyrir
orgel. Margir eru andagtugir undir
þessum verkum og velta fyrir sér hvað
fór fram í kolli Bachs þegar hann
samdi þau. Þessi verk sem hér er
minnst á krefjast fóma, ef hlustandinn
vill nálgast Bach, þá meina ég aðal-
lega tíma. Stærri kórverk Bachs ásamt
kantötum eru mörg og má þar nefna
H-mollmessu, Jóhannesarpassíu og
fleira og fleira. Það er vissulega ein-
faldara tónform en konsertarnir en
raddirnar taka þar við fjórradda hlut-
verkinu og útkoman er stórbrotin. Oft
verða verkin seiðmögnuð á sérkenni-
legan hátt og hvetja til íhugunar.
Flest verka Bachs eru samkvæmt
sögunni tileinkuð þeim mönnum
Magnús Einarsson.
sem hann var hirðskáld hjá. Það eru
líka til skrýtnar sögur um Bach. Það
ber ekki öllum heimildum saman,
flestar greina frá kristnu þjóðskáldi
sem var giftur og heiðvirður og átti
átján börn. En sem dæmi má nefna
að ein sagan segir frá manni í svörtum
kufli sem labbaði inn í kirkju nokkra
á messutíma og fór hamförum við
orgelið. Jes.42.1-7: I þessum texta
biblíunnar er fjallað um þann sem
brýtur ekki brákaðan reyr, þetta er
spádómur sem kannski er með öllu
óskyldur þessu tema en hver veit. Eg
leit á safnið mitt og hugsaði stíft:
Hvað getur stærðfræðitónlist Bachs
gert fyrir brákaðan reyr. Flautukon-
sertar Bachs voru með mynd af kaleik
Jesú og þar lá svarið, tónlist Bachs er
eins og biblían, full af sögunr um
kraftaverk og spádóma um betri tíð
fyrir hina voluðu. Jesús Kristur er það
sem Bach kennir og hann læknar
brákaðan reyr. Form Bachs er mjög
agað og kennir leiðina að bata hins
brákaða reyrs. Heilagur andi mætir
hinum brákaða reyr og í adagio mætir
Bach brákaða reyrnum og huggar þar
til sigurinn í lokin er lækning.
Guð verður að hafa brákaðan reyr
til að lækna, kennir Jesús. “I
upphafi var orðið og orðið var Guð”.
Bach kennir að Guð sé höfundur sem
Bach sjálfur í öllu sínu veldi.
hefur skapað þar til fullkomnun er
náð. Verk Bachs lýsa glímu Guðs við
að lækna brákaðan reyr. “Orðið varð
hold”. Það er kominn lífandi í holdið!
Jesús Kristur gekk um, læknaði og
spáði fyrir um náðarár Drottins. Bach
er sennilega einn besti fulltrúi heilags
anda, túlkun hans er um formið sem
vill taka að sér brákaðan reyr og
lækna. Grundvallaratriðið er að form-
ið tekur við brákuðum reyr og vinnur
með hann þar til lækningin er komin,
heilagur andi er huggarinn og vinnur
á þennan hátt. Bach fer ekki endilega
mildum höndum um þennan brákaða
reyr, en vinnur stöðugt við hann og
tónlist hans (Tónafórnin) lýsir gjöfum
almættisins, brákuðum reyr, og felur
Guði til þess að sköpunarverkið megi
fullkomnast. Tónlist Bach má líkja við
verkfæri snriðs sem síðan birtist í
lækningu hins brákaða reyrs fyrir
kraft Jesús Krists: Jesús var negldur
á kross, kross hefur fjórar áttir og er
miðpunktur hins mikla denrants Guðs.
Tónlist Bachs er því hreint meðal fyrir
brákaðan reyr. Heimspeki má lesa úr
verkum Bachs og jafnvel stærðfræði.
Oft er eins og Bach setji fram fullyrð-
ingu í fyrsta kafla verks og vinni síðan
úr henni þar til lausnin blasir við í sig-
urhljómi síðasta tóns. Það er umdeil-
anlegt hvort hann er þarna með bók-
staf, tölu eða bara hljóm. Flestir
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
39