Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Blaðsíða 40
konsertar hans eru þrískiftir. Tesa-anti
tesa-syntesa. Margir spádómar biblí-
unnar eru túlkaðir af Bach þannig að
það felur í sér von (Jóhannesarpassía),
og trú. Sérstaklega hans sterka áhersla
á að formið eigi eftir að ríkja sem sigur
Guðs yfir djöflinum.
Upprisa Krists er hápunkturinn.
Hugsanlega eru fjórrödduð verk
Bachs táknræn fyrir hinn eilífa dem-
ant, (þ.e. þríhyrningur með þríhyrn-
ings undirstöðu (tesa-anti - tesa-
syntesa - tesa eða antisyntesaj.Hið
mikla form Guðs sem flestir spekingar
grufla í. Getur verið að á botni pýra-
mídans sé tesa en ekki anti syntesa eða
öllu heldur hvíthol handan svarthols-
ins. Samkvæmt tímatali Gyðinga eru
liðin rúmlega 6000 ár frá sköpun og
fyrir Guði er einn dagur 1000 ár og
sjöundi dagurinn er hvíldardagurinn.
Jesús dó fyrir tæplega 2000 árum en
sagðist rísa upp á þriðja degi. Geyma
verk Bachs lykil að lausninni? Oft læt
ég mér detta í hug málfræðikenningar
Wittgensteins og Chomskis þegar ég
hlusta og sé tölustafi verða að full-
steyptum orðum, orð að setningum.
Textar við verk Bachs eru samdir af
vini hans og eru flestir kristilegir.
Þama nær snilld Bachs e.t.v. hámarki,
því samspil lags og texta er stórbrotið.
Það er til sú hugmynd að verk Bachs
séu meira og minna unnin sem stef
eða tónlistarleg túlkun á biblíunni.
Inniheldur heildarsafn verka Bachs
tónlistarútgáfu af biblíunni? Eg
byrjaði að hlusta á Bach í rólegheit-
um. Mér finnst ég oft brákaður reyr.
Þetta fasta form fór hægt og rólega
að hjálpa mér að hugsa skipulega og
eftir vissan tíma fór ég að upplifa
öryggi í forminu og ég vona að sú
þróun verði áfram mér til stuðnings
og lækningar.
Magnús Einarsson.
Eftirmáli ritstjóra: Þessi hugleiðing
Magnúsar, sem er íbúi hér í Hátúni,
er allrar athygli verð og greinir frá
hughrifum og hugsunum hans og
um leið ályktunum í framhaldi þar
af. Okkur er hollt að mega skyggn-
ast inn í hugarheim sem er örlítið
öðruvísi, ögrandi á vissan hátt í
ályktunum, allt að því alhæfingum,
en umfram allt íhugunar virði.
Hugsað á hausti
Fuglarnir syngja burt sumarsins yndi
söknuð kvak þeirra ber.
Gnauðar og hvín í haustsins vindi
hrímið að grösum fer.
Litafegurð mun skógurinn skarta
skærastri nokkra hríð.
Ennþá finn ég angur í hjarta
er eftir vetri ég bíð.
Sumarsins tíð hefur sungið mér Ijóðin
um sólskin, birtu og yl.
Borið í fang mér fegurstu Ijóðin
við fagnandi undirspil.
Borið mig aftur til æskunnar daga
með unaðarkennd í sál.
Minnt á það dýrmæti að halda til haga
og hugleiða barnsins mál.
Haustbleik og köld yfir foldina færist
fölvans blæja á ný.
Vetrarins kvíði í brjóstinu bærist
bólstra sig kólguský.
Angurvært jarmið frá hlíðunum hljómar
hlýði ég klökkur á.
Syngja í huga mér saknaðarómar
sumarsins veröld frá.
*
Harma skal ei þó skipti um tóna
og skerpist um veðurlag.
Löngum mun hollast að herða klóna
og hefja svo annan brag.
Vetrarins tíð er oft töfrum slungin
með tindrandi fannarlín.
Myrkursins geigur er magni þrunginn
og máninn á himni skín.
Áfram skal haldið á ævinnar vegi
eigandi vongleði og þrótt.
Taka í sátt móti sérhverjum degi
sækja þar verkefnagnótt.
Veturinn hressandi hrekur burt dofa
hristir oss værðinni frá.
Árstíðaskiptanna lögmál skal lofa
þar lífsfylling sækja má.
H.S.
Hlerað í hornum
Þegar kötturinn hans Jóns klifraði upp í hátt tré og þorði ekki niður, var Jóni
sagt að hafa engar áhyggjur. Kisi myndi korna niður, þegar hann væri orðinn
nógu svangur. En þegar kisi var enn uppi í trénu að þrem dögum liðnum, leist
Jóni ekki á blikuna. Hann brá sér í strigaskó og lagði af stað upp í tréð að
bjarga kettinum. Þegar hann var kominn svo sem tuttugu metra upp, sá kisi sitt
óvænna og stökk niður. „Allt í lagi, Jón“, hrópaði aðstoðarliðið á jörðinni.
„Kötturinn stökk. Þú getur snúið við“. Fyrst var grafarþögn, en síðan kom
skjálfandi rödd Jóns: „Ég kem þegar ég er orðinn nógu svangur“.
40