Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Síða 13
setustofa, notaleg mjög með sjónvarpi
og myndbandstæki, þar sem fólk gæti
einnig spilað og teflt yfir kaffibolla.
s
Ihinni sameiginlegu aðstöðu yrðu
veittar allar helstu og mikilvæg-
ustu upplýsingarnar um öll félögin,
þar yrðu til staðar handbækur þeirra
og fræðslurit, en svo yrði auðvitað
hvert félag með sína sérþjónustu. Enn
vantaði á um húsgögn þó margt hefði
fengist og það á vægast sagt afar góð-
um kjörum m.a. frá opinberum aðil-
um.
Jón S. kvað sérfjárveitingu mundu
verða til þjónustusetursins en einnig
hefðu félögin hrint af stað fjársöfnun
meðal fyrirtækja og einstaklinga og
hún gengið afar vel. Það ríkti einlæg
bjartsýni um betri tíð hjá öllum og á
meðan við vorum þarna glumdi sím-
inn í ýmsum áttum svo greinilega er
full þörf þeirrar þjónustu sem þarna
er veitt.
Jón Jóhannsson frá Parkinsonsam-
tökunum greindi okkur frá því að
norræna Parkinsonráðið héldi hér
ársfund sinn dagana 7. og 8. maí þ.e.
rétt í beinu framhaldi af heimsókn
okkar Guðríðar sem var 4. maí. Af
dagskrá þessa ársfundar, sem var svo
haldinn austur á Hótel Geysi, mátti
ráða að vel væri að verki staðið hjá
Parkinsonsamtökunum hér.
Við látum svo fylgja hér opnunar-
tíma hjá félögunum en hann er þessi:
Félag nýrnasjúkra:
Miðvikudaga kl. 17-19.
LAUF:
Alla virka daga kl. 9-15.
Parkinsonsamtökin:
Miðvikudaga kl. 17-19.
Samtök sykursjúkra:
Alla virka daga kl. 9-13.
Tourette samtökin:
Þriðjudaga kl. 9-12
Umsjónarfélag einhverfra:
Þriðjudaga kl. 9-15.
Hér hefur verið að öllu staðið af
framsýni og fyrirhyggju og ljóst
að mikið hagræði er hér að þessari
sameiginlegu aðstöðu. Og þegar
símsvörun öll hefur í horf komist þá
er um að ræða stóraukna þjónustu
félaganna sem einungis hafa ráð á
opnun einu sinni í viku.
Við Guðríður færum öllu þessu
góða fólki alúðarþakkir fyrir mætar
móttökur og ykkur fylgja til framtíðar
hlýjar farsældaróskir frá okkur hjá
Öryrkjabandalagi Islands.
Megið þið heil njóta húsakynna
góðra.
H.S.
Ritstjóri fékk á sitt borð afar
áhugaverða og í raun yndislega
bók til aflestrar sem ber þetta heiti:
“Hvers vegna svararðu ekki afi?”.
Það er FAAS - Félag áhugafólks
og aðstandenda Alzheimersjúklinga
og annarra minnissjúkra s.s. félagið
heitir nú sem gefur út þessa bók,
þýdda úr dönsku.
I umsögn um bókina ábaksíðu seg-
irm.a.:
“Stjóm FAAS ákvað
að huga að bamaböm-
um minnissjúkra og
réðst því í útgáfu þess-
arar bókar, en efni
hennar er æskilegt
innlegg til fræðslu í
leik- og grunnskólum.
A skýran og næman
hátt lýsir hún því hvað
gerist þegar einstakl-
ingur fær Alzheimer-
sjúkdóm eða annan
minnissjúkdóm,
hvemig reynsla sjúkl-
ingsins er og jafnframt
hvernig aðstandandi
upplifir sjúkdóms-
ástandið”.
Og einnig þetta:
“Höfundi bókarinnar tekst að færa
í letur á myndrænan hátt hvemig böm-
in á einlægan og kærleiksríkan hátt
skilja og nálgast eldra fólk, sem farið
er að tapa minni”.
Ritstjóri fullyrðir að þetta séu
Bókarfregn
“Hvers vegna
svararðu ekki afi?”
vissulega innistæðurík orð, því hann
las bókina á dönsku einn bjartan
aprílmorgun og hreifst af.
Bókin er sögð í fyrstu persónu, í
orðastað ungs drengs í og með
og ein reynslusagan af annarri líta
dagsins ljós, ljúfsárar og sannar,
einlægni barnsins skín í gegn, en svo
er fléttað inn gagnlegum fróðleik um
minnissjúkdóma og þá einkum
Alzheimersjúkdóminn.
Allt er þetta gert eins ljóslifandi
og á eins einfaldan máta og unnt er.
Lausleg þýðing ritstjóra á nokkrum
línum bókarinnar munu staðfesta
þetta:
“Frændi minn hét Ottó.
Einu sinni þegar frænka mín var
úti að versla, borðuðum við frændi
minn heil ósköp af kökum sem nýbúið
var að baka. Hann borðaði enn fleiri
en ég. Þegar frænka
kom heim, skammaði
hún okkur hressilega,
því kökurnar áttu að
vera handa gestum um
kvöldið.
Ottó frændi sagði
að það hefði hann
hreinlega ekki vitað.
Þó hafði hann sjálfur
verið með í að bjóða
gestunum”.
Bókin er gefin út af
Prentsmiðjunni Odda,
mörgum góðum ljós-
myndum og teikning-
um prýdd. Þýðandi
bókarinnar er Matthías
Kristiansen.
Framtak þetta er afar gott og langt
síðan ég hefi lesið bók um svo alvar-
legt efni mér til eins mikils fróðleiks
og skilningsauka um leið, að
ógleymdum einstaklega hrífandi
efnistökum.
Til hamingju - FAAS fólk með
ágæta bók. Helgi Seljan.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
13