Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Blaðsíða 34
Greiningar- og ráðgjafarstöð rrkisins,
Fötlunarsvið 4; Einhverfa og málhamlanir
STARFSNÁM Á ÍSLANDI
OG í NOREGI
Ráðgjöf vegna barna með einhverfu - Heildræn atferlismeðferð
byggð á kenningum Dr. Ivars Lovaas.
/
Aíslandi fæðast rúmlega 4000
böm á ári hverju. Niðurstöður
rannsókna á algengi einhverfu
á íslandi 1984 - 1992 sýna að 7 af
hverjum 10.000 greinast með ein-
hverfu og 10,4:10.000 ef ódæmigerð
einhverfa er talin
með. Þetta eru
hærri tölur en áður
hafa þekkst á
Islandi. Börn með
ódæmigerða ein-
hverfu þurfa að
öllu jöfnu á sömu
meðferð að halda
og börn með ein-
hverfu. Orsakir
einhverfu eru að
mestu óþekktar og
horfur hafa verið
taldar frekar slæm-
ar, það er að segja
aðeins örfáir ná að
lifa sjálfstæðu lífi.
Þó hafa rannsóknir
Lovaas (1987)
orðið til þess að
ekki erkveðiðjafn
fast að orði og
horfur taldar betri með öflugri atferl-
ismeðferð.
Þegar grunur um einhverfu eða
skyldar fatlanir vaknar, er börnum
vísað á Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins, fötlunarsvið 4; Einhverfa og
málhamlanir en þar starfa greinar-
höfundar. Auk þeirrar greiningarþjón-
ustu og fyrstu ráðgjafar sem stofnunin
hefur veitt hingað til mun hún nú einnig
veita ráðgjöf um meðferð, fræðslu og
sinna rannsóknum vegna barna með
einhverfu og skyldar fatlanir. Ráð-
gjafarþjónustu þessari var um áraraðir
sinnt af Barna- og unglingageðdeild
Landspítalans en er nú á ábyrgð Grein-
ingar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.
Agnes Elídóttir,
þroskaþjálfi
Guðný
Stefánsdóttir,
yfi rþ roskaþjálfi
Vegna nýfengis hlutverks Grein-
ingarstöðvar og þörf fyrir þekkingu
á ráðgjöf í atferlismeðferð á Fötl-
unarsviði 4, ákváðum við að leggja
áherslu á þann þátt í starfi okkar.
Með góðum stuðningi sviðs-
stjóra sviðs 4, forstöðumanns
Greiningarstöðvar og Sigríðar Lóu
Jónsdóttur, sálfræðings, gerðum við
ráðgjafanám í atferlismeðferð að
veruleika.
Alþjóðlegt rannsóknarverk-
efni (The Multi - site Young Au-
tism Project): Með rannsóknum
sem birtust 1987, sýndi Dr. Ivar
Lovaas fram á að börn með ein-
hverfu tóku verulegum framförum
eftir að hafa fengið einstaklings-
bundna heildstæða atferlismeðferð
í 40 stundir á viku í tvö ár eða leng-
ur. Árangur meðferðarinnar reynd-
ist viðvarandi. Niðurstöður rann-
sóknarinnar vöktu mikla athygli, en
einnig kom fram ábending um þörf
á endurtekningu.
Ákveðið var að endurtaka rann-
sóknina þar sem fleiri aðilar kæmu
að. Dr. Lovaas fékk meðal annars
styrk frá National Institutes of Men-
tal Health til að skipuleggja hlið-
stæða rannsókn, The Multi-site
Young Autism Project, sem hófst
árið 1994. Rannsóknin er nú fram-
kvæmd með þátttöku fjölmargra
rannsóknaraðila á ýmsum stöðum í
Bandaríkjunum og í Evrópu, meðal
annars á Islandi og í Noregi.
Yfirstjórnendur rannsóknarinnar
eru þeir Dr. Ivar Lovaas,við Kalifomíu-
háskóla í Los Angeles (UCLA) og Dr.
Tristram Smith, Washington State Uni-
versity.
Við UCLA hefur Dr. Lovaas og
samstarfsfólk hans þróað yfirgrips-
mikla og heildstæða atferlismeðferð
fyrir börn með einhverfu og skyldar
þroskaraskanir.
Rannsóknin á Islandi (Iceland
Young Autism Project-IYAP):
Árið 1995 hóf Sigríður Lóa Jóns-
dóttir, sálfræðingur rannsókn hér á
landi (Iceland Young Autism Project -
IYAP) ) sem tengist alþjóðlegu rann-
sókninni. Hafði Sigríður Lóa þá lokið
sérhæfingu hjá Dr. Lovaas.
Fram að þessu hafa 6 börn hafið
þátttöku í rannsókninni hér á landi og
hafa þau öll tekið hraðari framförum
eftir að meðferð hófst. Meðferð barn-
anna fer frarn á leikskólum og á heim-
ilum þeirra, með þátttöku foreldra.
Þjálfarar bamanna hafa einkum ver-
ið þroskaþjálfar og B.A. sálfræði-
nemar.
Ráðgjafanám á Islandi og í Noregi:
I byrjun árs 1998 hófum við undir-
ritaðar nám sem gerir okkur kleift að
sinna ráðgjöf vegna atferlismeðferðar
fyrir börn með einhverfu, skipuleggja
meðferð ásamt því að veita foreldmm
og fagfólki fræðslu og þjálfun til að
sinna meðferð af þessu tagi.
Leiðbeinendur okkar í náminu eru
Sigríður Lóa Jónsdóttir og Dr. Svein
Eikeseth, sálfræðingur og stjórnandi
Multi - site rannsóknar í Vestfold í
Noregi.
Náminu er skipt í þrjú stig, þjálfari
Agnes
Elídóttir
Guðný
Stefánsdóttir
34