Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Blaðsíða 41

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Blaðsíða 41
Uppbætur og einstæðir foreldrar ✓ Imars sl. var kveðinn upp afar athyglisverður úrskurður í tryggingaráði varðandi rétt ein- stæðra foreldra til heimilisupp- bótar og sérstakrar heimilisupp- bótar, réttur sem við höfum í raun talið sjálfgefinn í samræmi við lagagreinina hér um og ótvíræð- an anda hennar. Túlkunin áður í Trygginga- stofnun sem í raun hefur hlotið ákveðna blessun bæði trygginga- ráðs og ráðuneytis tryggingamála hefur hins vegar verið sú að skilyrði til þess að hljóta slíkar uppbætur félagslegrar aðstoðar væri það að viðkomandi byggi einn og auðvitað býr og er enginn einn sem er með böm sín hjá sér. En af því að lagagreinin gengur nú út á, að viðkomandi sé synjað vegna fjárhagslegs hagræðis af sambúð við annan aðila þá hefur okkur þótt túlkunin með miklum endemum og fátt eins mikið út í hött, þó enginn dragi gæfuaukann í efa að eiga börn og hafa þau hjá sér. Hver ráðherrann af öðrum hefur talið þetta með öllu ófært, en aldrei verið hreyft við fyrr en nú að loks er tekið af skarið. Vit- að er að þessi úrskurður trygg- ingaráðs um að einstætt foreldri skyldi njóta beggja þessara upp- bóta, heimilisuppbótar og sérstakrar heimilisuppbótar, frá og með 1. mars sl. ef annað aftr- aði ekki í tekjutengingu, þessi úrskurður var upp kveðinn í samráði við eða að tilhlutan ráðu- neytis tryggingamála eða í raun heilbrigðis- og tryggingaráð- herra. Vissulega er þetta mikilvægur sigur þó ugglaust þyki ýmsum sem afturvirkni hefði átt að koma til samkvæmt eðli málsins og því að í raun er verið að fallast á að túlkunin sé rétt nú en hafi áður kolröng verið s.s. við höfum ætíð haldið fram. Sjálf- sagt munu menn til í að láta á það reyna og það er þá vel. En meg- inatriðið sem nú snýr að okkur og enn frekar þá að öllum þeim einstæðu foreldrum sem rétt eiga og hafa átt, að þeir sæki þennan rétt sinn nú þegar ákvörðun um rétta túlkun hefur loks verið tekin. Við höfum leitað eftir því hjá forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins, Karli Steinari Guðna- syni, að einstæðir foreldrar fái frá stofnuninni vitneskju beint um þennan möguleika, því sjálfkrafa er hann ekki, umsókn þarf til að koma. Forstjóri og lögfræðingur lífeyristrygg- ingadeildar sem við Guðríður Ólafsdóttir ræddum við um þessi mál tóku mjög vel í það að öllum þeim einstæðu foreldrum, sem ekki hefðu fengið þessar uppbætur vegna fyrri túlkunar, yrði tilkynnt það að nú yrði umsókn þeirra um uppbætur þessar afgreiddar og samþykktar og því yrði um þær í snatri að sækja. Við vonum svo sannarlega að við þetta verði staðið svo allir fái sitt refjalaust. Itrekuð skal sú meining okkar að um afturvirkni hefði átt að vera að ræða og við ekki búin að afsala okkar fólki einu eða neinu í því sambandi. Hitt er jafnsjálfsagt að fagna því að loks skuli réttlætið að fullu ná fram að ganga frá og með 1 .mars sl. og þar með eitt af brýnum baráttumálum okkar komið þannig í heila höfn til framtíðar horft. H.S. Öfugmælavísur Elínar Hér kemur seinni hluti hinna ágætu öfugmælavísna frá Elínu Þorbjarnar- dóttur fengnar. Krumma sá í krambúð ég kaupa varning nýjan, út á borðið elskuleg að honum rétti krían. Prúðbúinn ég piltinn sá prjóna í lýsistunnu. Friðarsinnar flugust á og fuglar garnið spunnu. Prestar syngja í púnsglasi, púkum hrinda úr nágrenni, smíða tinda úr tóbaki, tæta úr syndum bandreipi. Séð hef ég flóna flóa mjólk, fallega músin hey upp bar, kýrnar steypa kerti úr tólk, kjötið sjóða rjúpurnar. Séð hef ég hanann hörpur slá, hestinn organ troða, fílinn smíða fínan Ijá, flærnar brauðið hnoða. Séð hef ég kapalinn eiga egg, álftina folaldssjúka, úr reyknum hlaðinn vænan vegg, úr vatninu yst er kjúka. Séð hef ég kýrnar vinda voð, veiðibjöllu steikja roð, lóminn þamba sjóðheitt soð, selinn éta úr básum moð. Séð hef ég köttinn syngja á bók, selinn spinna hör á rokk, skötuna elta skinn í brók, skúminn prjóna smábandssokk. Séð hef ég páska setta um jól, sveinbarn fætt í elli, myrkur bjart, en svarta sól synda á hörðum velli. Tíkin las á tölvuna, tjóðrið vindinn hefti, vitið sprengdi völvuna, vatnið húsið refti. Tíndi ég ber á tærum ís, tók mér far með kletti. í heitum loga helst allt frýs. Hani varð að ketti. Kærar þakkir lesenda. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.