Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Blaðsíða 50

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Blaðsíða 50
Stúdentagarðar Draumljóð Ein lítil leiðrétting - og viðbót Ekki er það einleikið hversu oft fer á verri veg í vinnslu míns ágæta blaðs. Auðvitað á ritstjóri að uppgötva þetta við yfirlestur þegar rétt fer þó frá honum, svo hans er ævinlega ábyrgðin sem hann engan veginn vill undan skorast. I litlu, fallegu ljóði saknaðarhreims sem hún María Skagan lét mér í té féll niður eitt orð í ljóðinu Örlög - orðið þar í fjórðu línu sem mikla þýðingu hefur þó. Og hér kemur það kórrétt: Örlög Forðum ég átti mér frækinn jó er fór á kostum yfir grund og mó á heimsenda sá hófagaldur dró þar undrið söng í ævintýraskóg. Þá laust mig högg og lífið dó. Ég á mér ei framar ungan glæstan jó. En fyrst við erum nú í ljóðum Maríu Skagan á annað borð þá er ekki amalegt að bæta einu ljóði við. Sveitungi minn Líkt og samanbarinn úr særeknum rekadrumbum áratuga erfiðismaður settist hann við orgelið heima og laðaði kræklóttum fingrum til flugs allt það sem mönnum liggur þyngst á hjarta. Alskyggnum organtónum. María Skagan. Hlerað f hornum Ung stúlka sem taldi sig afar fallega kom til skriftaföðurins og sagðist þurfaaðjátaásigsynd: “Éggetekki slitið mig frá speglinum við að skoða hina miklu fegurð mína og glæsileika. Er þetta ekki alvarleg synd?” Þá svaraði skriftafaðirinn: “Nei, stúlka mín, þetta er engin synd, þetta er bara misskilningur.” +++ Heyrtíútvarpi: “Það er búið að ganga svo um hnúta”, “Og úr söngtexta: “Ég fer með hálfan huga.” +++ Prestur einn, afar klaufskur í orðavali sagði í líkræðu um látinn sómamann: “Síðast þegar ég sá hann Jón á lífi var hann á leið upp stiga. Nú er hann á niðurleið.” +++ Sagt er að prestur einn fyrr á öldinni hafi ekki verið beint tilhaldsmaður í klæðaburði. Einu sinni komu til hans menn að sunnan og prestur fór með þeim til bónda nokkurs sem var með mikið æðarvarp til þess að skoða varpið. Prestur var í einstaklega snjáðum og rifnum jakka og annar búnaður eftir því. Nú fer bóndi með þeim í varpið og hverfur prestur frá þeim en kemur til baka von bráðar og undrast menn þá í hversu góðum Ritstjóra ÖBÍ blaðsins barst snemma vors ábending frá félaga sínum þess efnis að það væru þrjár aðgengilegar íbúðir fyrir hjólastólafólk í Stúdentagörðunum við Suðurgötu í Reykjavík. Og fannst honum tilvalið að birta upplýsing- amar. Það sem um er að ræða eru tvær 29 fermetra einstaklingsíbúðir á Skerjagarði, Suðurgötu 121 og ein 58 fermetra einstaklings- eða paraíbúð á Asgarði, Eggertsgötu 32. Ibúðirnar eru allar á fyrstu hæð og mjög aðgengilegar. Aðkoma að bflastæðum og gangstéttir sem liggja að tilteknum görðum eru upphituð. Svo eru tvö bílastæði við Vetrargarða merkt fötl- uðum og þau eru einnig upphituð. Rétt til Garðvistar hafa þeir einir sem stunda reglulegt nám við Háskóla Islands og sýna eðlilega námsfram- vindu. Umsóknarfrestur fyrir Garð- vist á haust- og vormisseri er til 20. júní ár hvert. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem liggja frammi á Skrifstofu Stúdentagarð- anna. Leigutíminn er eitt ár eða frá 1. september til 31. ágúst og skulu eft- irfarandi gögn fylgja með: skráning- arvottorð við HÍ, afrit af skattaskýrslu síðasta árs og sé sótt um fjölskyldu- íbúð, skal skila inn þungunarvottorði ef þess þarf með. Allar frekari upp- lýsingar eru veittar í síma 5 700 700. Þessar ágætu upplýsingar voru gefnar ritstjóra af þeim vísa manni, Ingólfi Erni Birgissyni ritstjóra Klifurs og honum vel þakkaðar ábendingamar. jakka hann var miðað við hinn snjáða og spyrja hann hvaðan honum hafi komiðjakkinn. Prestur var skjótur til svars: “Ég hafði jakkaskipti við fuglahræðuna í varpinu”. +++ Prestur einn fyrir vestan var orðhvatur vel og eitt sinn er hann var að reka fé í rétt, ásamt öldruðum föður sínum, tóku tveir hrútar sig út úr hjörðinni. Þá kallaði prestur: “Pabbi, nú fara hrútarnir til helvítis. Hlauptu á eftir þeim.” +++ Annar prestur, einnig vestra, var að segja frá samtali sínu við aldraða konu sem hann vissi að hafði í meira en 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.