Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Blaðsíða 15
félagsmálaráðuneytis með spurninga-
lista um almennt aðgengi, sent hinum
ýmsum aðilum m.a. prestum landsins
og svo hins vegar frá bréfi þeirra
Helga Hróðmarssonar og hennar til
aðildarfélaga bandalagsins vegna
nefndarstarfs í félagsmálaráðuneyti
um tómstundir, listir og menningarlíf
fatlaðra.
4. Fjárhagsáætlun bandalagsins
fyrir árið 1999
Garðar varaformaður gerði grein
fyrir tillögu framkvæmdastjórnar að
fjárhagsáætlun fyrir þetta ár og skýrði
hina ýmsu liði hennar í fjarveru gjald-
kera, Hafliða Hjartarsonar, sem var
veikur. Prósentuskipting milli Hús-
sjóðs og Öryrkjabandalags af áætluð-
um tekjum frá Islenskri getspá var 55
ámóti45. Rekstrarafgangur var upp
á rúmar 3 millj. kr.
Miklar umræður urðu um fjárhags-
áætlunina og m.a. var gagnrýnt of lágt
framlag til Vinnustaða Öryrkjabanda-
lagsins og enn þyrfti aukið fé í kjara-
og kynningarmál. Upplýst var þó að
auglýsingaátakið í febrúar upp á nær
1,5 millj. kr. hefði verið greitt af
afgangi fyrra árs.
Gísli Helgason flutti tillögu um
jafna skiptingu 50% til Hússjóðs og
ÖBI. Mikil umræða fór fram um vægi
húsnæðis í þörfum öryrkja og vinnu
hins vegar og sýndist sitt hverjum.
Margir töldu að opinberir aðilar ættu
alfarið að sjá um mál eins og húsnæð-
ismál, en á það bent á móti hvert
neyðarástand þá mundi ríkja miðað
við biðlista hjá Hússjóði nú upp á á
fjórða hundrað manns. Ábending
kom fram um að fjárhagsáætlun ætti
að afgreiðast miklu fyrr, helst fyrir
áramót ár hvert.
Hafdís Gísladóttir kom síðan með
tillögu um skiptingu upp á 47,5% til
ÖBÍ og 52,5% til Hússjóðs og við-
bótin færi til Vinnustaða ÖBÍ 1,3
millj. kr., til kynningarmála 1 millj.
kr. og 1 millj. kr. í hækkun á styrkja-
upphæð. Sami rekstrarafgangur. Til-
lagan var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum.
5. Kjaramál. Garðar kynnti
nokkur helstu atriði úr skýrslu for-
sætisráðherra um stöðu öryrkja sem
dreift var rétt fyrir þinglok og all-
nokkur umræða var um á Alþingi.
Hann rakti ýmsar meinlegar mis-
sagnir í skýrslunni og villandi álykt-
anir sem þar væru dregnar, þó margt
væri þar upplýsandi. M.a. væri reikn-
að út frá dæmigerðu tilviki, öryrkja
um fimmtugt með meðallaun frá
tvítugu og þar með áunninn drjúgan
rétt í lífeyrissjóði. Ut frá þessu dæmi-
gerða tilviki væri svo samanburður
tekinn við kjör öryrkja á Norðurlönd-
um og þannig fengin hagstæðari
útkoma.
Hækkun heimilisuppbótar væri
annað dæmi, þar sem ekki væri til þess
tekið tillit, að inn í hana hefðu verið
fengin áður áunnin fríðindi varðandi
útvarp og síma. Garðarminnti einnig
á ummæli forsætisráðherrra um þessi
mál sem bentu til annars en vitneskju
um veruleikann. Svohljóðandi tillaga
var svo samþykkt samhljóða í lokin:
Öryrkjabandalag Islands Iýsir
yfir vonbrigðum vegna þeirrar
myndar sem forsætisráðherra hef-
ur kosið að draga upp af kjörum
öryrkja. Sérstaka undrun vekur að
hann skuli í skýrslu sinni til
Alþingis um stöðu, aðbúnað og kjör
öryrkja leggja til grundvallar, að
hinn dæmigerði öryrki fái 87
þúsund krónur á mánuði í greiðslur
úr lífeyrissjóði (sjá bls. 15) og fyrir
bragðið séu kjör öryrkja almennt
betri hér en á hinum Norðurlönd-
unum. Staðhæfingar þessar eru
ekki aðeins fjarri öllum sanni
heldur nægir að vísa í sömu skýrslu
til að sjá hve fráleitur málflutn-
ingur hér er á ferð (sjá m.a. svar
við spurningu 7 á bls. 8).
Öryrkjabandalag Islands fer
þess vinsamlegast á leit við for-
sætisráðherra að hann opni augun
fyrir þeirri neyð sem við blasir og
bregðist við með uppbyggilegri
málflutningi en viðhafður var gagn-
vart þingi og þjóð þann 11. mars sl.
Öryrkjabandalagið mun innan
skamms gera nánari grein fyrir
afstöðu sinni til skýrslu forsætis-
ráðherra.
Ályktun þessi var send forsætis-
ráðherra og fjölmiðlum. Fleira var
ekki á dagskrá. Fundi var slitið um
kl. 19.30.
Fundur var haldinn í stjórn
Öryrkjabandalags fslands 11.
maí sl. í fundarsal að Hátúni 10 og
hófst kl. 16.40. Formaður, Haukur
Þórðarson, bauð fólk velkomið og þá
sérstaklega þau þrjú sem nú sátu sinn
fyrsta stjórnarfund, en þau voru:
Friðgerður Guðmundsdóttir frá MND
félaginu, Jón Sveinsson frá Félagi
nýrnasjúkra og Sigurrós M. Sigur-
jónsdóttir frá Sjálfsbjörg.
Hann færði Félagi heyrnarlausra
sérstakar hamingjuóskir í tilefni af
hinum markverða dómi Hæstaréttar
um táknmálstúlkun sem frá er greint
annars staðar.
Hafdís Gísladóttir fagnaði þessum
dómi, sem eftir væri tekið víða í
Evrópu í heimi heyrnarlausra. Tákn-
málstúlkun sjálfsögð mannréttindi
skv. dómnum.
1. Yfirlit formanns.
Formaður flutti því næst yfirlit sitt
og gat þess að frá síðasta stjórnarfundi
hefðu verið haldnir 3 framkvæmda-
stjómarfundir.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
15