Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Blaðsíða 42

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Blaðsíða 42
Skýrsla um einhverfu Hingað hefur á borð borist hin ágætasta skýrsla frá Greiningar- og ráðgjaf- arstöð ríkisins sem heitir: Þjónusta við börn og ungmenni með ein- hverfu. Ekki eru tök á því hér að gjöra þessari skýru skýrslu skil, að- eins getið um kaflaheiti og lít- ið meira. Fyrsti kafl- inn er um gagn- tækar þroska- raskanir en helstu flokkar þeirraeru: Ein- hverfa. Ódæmi- gerð einhverfa. Ofvirknirösk- un ásamt þroskahömlun og stegldum hreyfingum. Asperg- erheilkenni. Upplausnarþroska- röskun. Rettsheilkenni. Síðan er fjallað um faralds- fræði þessara þroskaraskana. Þar kemur m.a. fram að algengi á einhverfurófinu s.s. það er nú kallað sé áætlað 5-6 af hverju þúsundi. Þá er fjallað um þátt Greiningar- og ráðgjafarstöðvar- innar í greiningu á einhverfu 1986- 1996 m.a. dagdeildarþjónustu, sem nú hefur verið lögð niður. Varðandi svo aukið hlutverk vegna einhverfu 1996-1998 kemurfram að vettvangur fagteymis í þjónustu við einhverfu er nú á Greiningar- og ráðgjafarstöð. Síðan er fjallað um breytt skipulag og fjölgun stöðugilda hjá stöðinni. Fjallað er um greiningarkerfið með tilliti til yngstu barna sem fróðlegt er um að lesa. á er næst kaflinn: Ný verkefni - Hvað er framundan? - þar sem m.a. kemur fram að mark- miðið sé heildstæð þjónusta alla ævi. Uppbygging samstarfs, fræðsla, rannsóknir er svo efnið í þessum kafla og nefnd forgangs- verkefni í rannsóknum: Greining, flokkun og faraldsfræði. Klíniskar rannsóknir. Önnur forgangsverk- efni í líf- og læknisfræði. Árangur með- ferðar. Næst er svo rætt um for- gangsröðun og takmörkun þjónustu þar sem sagt er að “á meðan ekki hafa verið ráðnir fleiri starfsmenn til að þjóna ein- staklingum með einhverfu sé ljóst að ekki verður hægt að bregðast við öllum óskum um greiningu, ráðgjöf eða eftirfylgd”, en öll spjót standi á stöðinni að veita umbeðna þjónustu. Síðan er bent á í kaflanum um þjónustu sveitarfélaga að hin lagalega ábyrgð sé þeirra við að byggja upp faglega þjónustu við böm í leik- og grunnskólum. I lokin eru svo dregnar saman ákveðnar niðurstöður af því sem að framan hefur verið sagt þar sem brýn þörf Greiningar- og ráð- gjafarstöðvar fyrir a.m.k. þrem viðbótarstöðugildum er vel rök- studd. Ábyrgðarmenn þessarar skýrslu eru Evald Sæmundsen sem er sviðsstjóri fyrir einhverfu og mál- hamlanir hjá G.R. og svo for- stöðumaðurinn Stefán Hreiðarsson læknir. Án efa fræddist ritstjóri um margt af lestri hennar. Hún er sannarlega góðra þakka verð. H.S. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins Merki stöðvarinnar. Steinunn Gísladóttir Sönn sumarást s Eg er svo ástfangin. Eg elska vin minn. Mér finnst hann svo fallegur. Eg er svo ung, bara 17 ára. Núna er kvöld, það er komið miðnætti. Eg er í sveit fyrir austan fjall, ég var 16 ára þegar ég kom hingað til þess að vinna við garðyrkjustörf, það heitir víst að vera kaupakona, ég átti afmæli í sumar og varð 17 ára. Fólkið sem ég bý hjá hefur verið mjög gott við mig. Mér finnst allir góðir héma í sveitinni. Sumarið hefur verið mjög skemmti- legt, nú er það liðið. Þetta kvöld er síðasta kvöldið, á morgun fer ég suður á mölina eins og sagt er, sem sagt til Reykjavíkur. Égeraðkveðjavin minn, ég elska hann svo heitt, við áttum saman yndislegt kvöld. Vinur minn hefur svart hár, það er svo góður ilmur úr því, hann er mjög sterklega byggður og vöðvastæltur, mér finnst svo gott að faðma hann að mér og finna hitann frá líkama hans. Hann er sveitt-ur núna, það er ekkert skrítið, þvflíkur kraftur sem hann hefur í líkamanum. Ég horfi í þessi fallegu dökkbrúnu augu og um mig fer sælustraumur. Okkur líður svo vel saman. Vinur minn er alltaf góður við mig, hann er rólegur en samt svolítið móður eftir ævintýrið. Golan er volg og strýkur mér um vangann. Vinur minn stendur fyrir aftan mig og ég finn heitan andardrátt hans á hálsi mínum. Það er svo sárt að kveðja, ég veit að vinur minn og ég munum ekki hittast aftur. Ég ætla að fá mér vinnu þegar ég kem til Reykjavíkur, kannski hitti ég einhvern strák sem ég verð skotin í, hver veit. Ég faðma vin minn að mér og það renna nokkur tár niður kinnar mínar, “saknaðartár”. Vinur minn horfir á mig sínum blíðu, dökku augum og segir ekki neitt. Ég mun seint gleyma honum. Svona er nú lífið. Hann lítur á mig stórum augum í kveðjuskyni. Sörli hneggjar og töltir út í hagann. Steinunn Gísladóttir. 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.