Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Blaðsíða 37
Margeirsdóttir, Ólafur H. Sigurjónsson og Ólöf
Ríkarðsdóttir.
Og þá er það ljóðið góða hennar Helgu:
Draumur og veruleiki
Mig dreymdi draum þar sem lítil falleg stúlka
elti mig á röndum, en ég vildi ekkert með hana hafa.
Hún brosti, dansaði og gerði sér dælt
en ég hörfaði alltaf frá henni
en leið samt ekki vel með það.
í draumnum skildi ég ekki af hverju
ég kom svona illa fram við þessa stúlku,
sem var svo kát og skemmtileg.
Og er ég vaknaði fann ég fyrir sorg þess vegna.
Nokkrum vikum síðar rann upp fyrir mér Ijós
að þessi litla stúlka sem ég vildi ekkert með hafa
var ég sjálf.
Síðan þá hefi ég faðmað hana og verið góð við hana
því hún á það skilið.
Helga Aðalsteinsdóttir.
Héðan eru færðar hlýjar heillaóskir til Hringsjár og allra
þeirra er þar fræða og nema fyrr og síðar.
H.S.
Ásgeir Árnason
kennari:
Ásta
Þótt hún horfðist í augu við fjandafjöld
henni féllust ei hendur, vék ekki um spönn.
Jafnvel er ævinnar komið var kvöld
og kraftarnir þurru var óslitin önn
allt hennar líf.
Hún var öðrum hlíf,
einstök, heilsteypt og sönn.
Sá er hugsar án afláts um annarra hag,
hvert andartak, hann er bestur.
Sá er ann sér ei hvíldar einn einasta dag
sem er hann á jörðinni gestur
en skilyrðislaust
með skipandi raust
heimtar skerf þeirra smæstu, - er mestur.
Því var ekki öllum svo auðvelt að tjá
sinn einlægan harm er hún lést,
þessi einstaka kona er allir þeir dá
sem örlögin léku verst,
þeirra sorg er svo sár.
Þeirra saknaðartár
sýna að þeir þekktu hana best.
Asgeir Arnason
Ljóðið birtist áður í Lesbók Mbl.
Davíð Art Sigurðsson:
Þegar Ijóð eru
Formálsorð: Á liðnu ári gaf þrítugur Reykvík-
ingur, kvæntur þriggja barna faðir í Breiðholtinu,
út ljóðabók sem hann nefndi: Þegar ljóð eru.
Listataug Davíðs Arts er drjúg, því hann er einnig
menntaður í klassískum söng.
Við formlega vígslu félagsmiðstöðvar Geðhjálpar
að Túngötu 7 flutti Davíð Art, en Art er lista-
mannsnafn hans, tvö ljóða sinna úr ljóðabókinni
og var gjörður að góður rómur. Hér á eftir fara
þrjú önnur ljóð Davíðs Arts sem hann leyfði
ritstjóra vinsamlegast að birta.
Kveðja
líkt og blóm
skaltu næra sjálf þitt
svo andinn megi dafna
og færa þér
fegurð lífsins
Kvöldganga
spegilmyndin í tjörninni
stekkur Ijóta andarunganum á flótta
vinur minn vindurinn gárar vatnið
og losar mig við ímynd sem ég óttast
inni í mér hefur svanurinn sig til flugs
Leiðsögn
röddin sem aldrei talar til mín
upphátt
röddin mín
hún leiðir mig hverja stund
í allan sannleikann
um sjálf mitt
og ég hlusta
og trúi
og treysti
og þakka fyrir lífið
og Ijósið í hringnum
Davíð Art Sigurðsson
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
37