Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Síða 14
Af stjórnarvettvangi
Fundur var haldinn í stjórn
Öryrkjabandalags íslands
fimmtudaginn 18. mars sl. og
hófst kl. 16.40 í sal á 9. hæð Hátúni
10. Formaður bauð fulltrúa velkomna
og þá sér í lagi þau Benedikt E.
Benediktsson frá Málbjörgu og Lilju
Þórhallsdóttur frá Daufblindrafélagi
Islands sem ekki höfðu áður setið
stjórnarfund. Mættir voru 20 stjórn-
armenn.
1. Yfirlit formanns:
a) Formaður Haukur Þórðarson,
gat þess fyrst að framkvæmdastjóm
hefði haldið 6 fundi frá síðasta stjórn-
arfundi í desember.
Hann gat þessu næst um tilnefn-
ingar í svæðisráð um málefni fatlaðra
af hálfu Öryrkjabandalags íslands, en
hinir sömu voru tilnefndir og áður áttu
þar sæti. Skrá yfir fulltrúana er birt
hér í blaðinu.
Hann kvað Guðríði Ólafsdóttur
hafa verið tilnefnda í Umferðarráð af
hálfu ÖBI og til vara væri Hafliði
Hjartarson.
Þá hefði Málfríður Gunnarsdóttir
verið tilnefnd sem fulltrúi í NHPR -
Norræna ráðinu um málefni fatlaðra
- fyrir Öryrkjabandalagið í stað
Þóreyjar V. Ólafsdóttur.
Að lokum hefði María Jónsdóttir
frá Styrktarfélagi vangefinna verið
tilnefnd í starfshóp á vegum félags-
málaráðuneytis um húsaleigukostnað
á sambýlum.
b) Haukur vakti athygli á hinni
löngu bið sem væri eftir heymartækj-
um hjá Heyrnar- og talmeinastöð
Islands vegna ónógra tjárveitinga.
Heymartæki orðin fullkomnari og um
leið dýrari. Öryrkjabandalagið hefði
sent ráðherra einarða áskorun um
úrbætur.
c) Formaður greindi frá umleitan
Guðrúnar K. Þórsdóttur djákna um
djáknastarf í þágu öryrkja, en Guðrún
er framkvæmdastjóri FAAS og unr
leið í djáknastarfi þar.
Framkvæmdastjórn hefði sam-
þykkt tilraunaverkefni mánuðina
ágúst - desember á þessu ári í 10%
vinnuhlutfalli þ.e. 4 stundir vikulega
þann tíma.
d) Þá sagði formaður frá því að
ráðgerð væri hjálpartækjasýning með
aðild fjölmargra aðila og hefði
Öryrkjabandalagið samþykkt að taka
þátt í því verkefni en ýmis aðildar-
félög einnig þátttakendur. Upplýst var
að stefnt væri að því að sýningin yrði
ífebrúar á næsta ári. Helgi Hróðmars-
son fulltrúi ÖBÍ.
e) Erindi frá menntamálaráðuneyti
vegna Fullorðinsfræðslu fatlaðra, sem
væri mjög umfangsmikið verkefni
sem fengi á fjárlögum um 85 millj.
kr. og 35 stöðugildi væru henni
reiknuð. Fullorðinsfræðslan ferfram
í Reykjavík, á Selfossi og á Akureyri.
Ráðuneytið hefði borið fram þá ósk
að Öryrkjabandalag íslands tæki að
sér þetta verkefni með þjónustusamn-
ingi, helst nú á þessu ári. Guðrún
Hannesdóttir og Hafliði Hjartarson
hefðu verið tilnefnd til nánari við-
ræðna við ráðuneytið um málið en að
þeim loknum yrði þá ákvörðun tekin
um svar.
f) Haukur upplýsti að kannað
hefði verið um nýtingu orlofshúsa
launþegasamtakanna fyrir öryrkja til
dvalar sem ekki ættu kost slíkra
orlofsdvala.
Tilraun væri ákveðin með eitt hús
í sumar í Munaðarnesi í 12 vikur og
yrði Öryrkjabandalagið að greiða
mismun leigunnar hjá BSRB annars
vegar og á vægu gjaldi til þeirra sem
leigja hins vegar. Utan orlofstímans
gætu öryrkjar svo fengið orlofsdvöl á
sama verði og félagar BSRB. Helgi
Hróðmarsson mun annast þetta mál
og mun þegar hafa skrifað aðildar-
félögum okkar bréf hér um.
2. Helgi Seljan greindi frá undir-
búningi iðnaðardaga s.s. síðasti stjóm-
arfundur hefði samþykkt. Samband
vemdaðra vinnustaða yrði samstarfs-
aðili bandalagsins varðandi þessa
daga sem fyrirhugaðir eru á hausti
komanda.
Helgi greindi einnig frá allmörgum
umsögnum um lagafrumvörp og önn-
ur þingmál. Þeirra merkast væri fmm-
varp um örorkumat og úrskurðamefnd
sem bæði hefðu orðið að lögum.
Athugasemdir bandalagsins teknar
mjög til greina, en umsögn að öðru
leyti mjög jákvæð af hálfu banda-
lagsins. Nánarummálþessiíbrenni-
depli blaðsins.
3. Gísli Helgason gat um lagfær-
ingar sem gerðar hefðu verið á
Islenska talgervlinum, en hann til-
nefndur af hálfu Öryrkjabandalagsins
til þess verks. Nú værinýútgáfakom-
in út og væri Blindrafélagið umboðs-
aðili og sæi um úthlutun.
Upplýst var hveijir tilnefndir hefðu
verið í svæðisráð og Guðríður Ólafs-
dóttir sagði frá annars vegar bréfi
14