Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Side 20
FRÁ SJÓÐI
ODDS ÓLAFSSONAR
Hinn 26. apríl sl. fór fram
við hátíðlega en látlausa
athöfn hér í Hátúni 10
afhending styrkja úr Sjóði Odds
Ólafssonar, en dagurinn einmitt
valinn til þessa sem fæðingardagur
Odds.
Þama vora mættir 14 styrkþegar
eða fulltrúar þeirra svo og fulltrúi
barna Odds, formaður og fram-
kvæmdastjóri
Öryrkjabandalagsins
og að sjálfsögðu stjórn
sjóðsins en hana skipa
nú: Ólafur Hergill
Oddsson, Anna Ingv-
arsdóttir og Asgerður
Ingimarsdóttir.
Ólafur Hergill,
formaður sjóðsstjórn-
ar, bauð fólk velkomið
og bað það njóta góðra
veitinga er á borð
höfðu verið bornar.
Hann ávarpaði svo
samkvæmið, gat um þá
breytingu á sjóðsstjórn
að Ásgerður Ingimarsdóttir hefði
komið í stað Helga Seljan, bauð
Ásgerði velkomna og þakkaði
Helga farsæla formennsku.
Hann fór yfir tildrög og tilgang
sjóðsins. Heiðruð væri minning
frumherja og forystumanns af
stofnaðilum: Hússjóði Öryrkja-
bandalagsins, Sambandi íslenskra
berkla- og brjóstholssjúklinga og
Öryrkjabandalagi íslands. Rakti
tilganginn, styrki til rannsókna,
fræðslu og náms s.s. áður hefur hér
verið vel tíundað í blaðinu Hann
gat um höfðinglega gjöf Sigurgeirs
Steinssonar, sem sagt var frá í
síðasta blaði, gjöf sem Ólafur
Hergill sagði efla sjóðinn mjög til
athafna góðra. Færði Sigurgeiri
alúðarþakkir fyrir rausn sína.
/
Olafur Hergill rakti svo stutt-
lega náms- og starfssögu
föður síns, Odds Ólafssonar, en
Oddur fékk berkla, yfirvann þá,
lærði til læknis, varð 1945 fyrsti
yfirlæknir Reykjalundar og gegndi
því starfi þar til hann settist á þing,
en þar sat hann í 9 ár og beitti sér
fyrir mörgum baráttumálum
öryrkja þar. Oddur var fyrsti for-
maður Öryrkjabandalagsins, fyrsti
formaður Hússjóðs og gegndi
fjölmörgum trúnaðarstörfum hjá
SÍBS, ÖBÍ, Reykjalundi og víðar.
Ólafur Hergill þakkaði fyrir hönd
afkomenda Odds þá virðingu og
þökk sem minningu hans væri með
sjóðnum sýnd. Fór með ljóð móð-
urbróður síns Jakobs Jóhann-
essonar Smára: Þú ert; hrífandi fall-
egt og umhugsunarvert í einlægni
sinni. Hann tilkynnti þessu næst
um styrkhafa og Anna Ingvarsdóttir
afhenti svo styrkina. Styrkupp-
hæðin nú var 1.5 millj. kr. og fór til
18 styrkhafa. Þau voru: Anna
Bergþórsdóttir til náms í fram-
haldsskóla, Arndís Hauksdóttir til
guðfræðináms, Birkir Rúnar Gunn-
arsson til náms í tölvufræði í
Bandaríkjunum, Björg Guðjóns-
dóttir, Ingveldur K. Friðriksdóttir
og Unnur Árnadóttir vegna þýð-
ingar á prófi vegna heilakönnunar,
Eyþór Bjömsson o.fl.v. rannsóknar
á símhúðarbreytingum á sjúkl-
ingum með nýgreindan astma,
Félag heyrnarlausra vegna fullorð-
insfræðslu, Friðrik Guðmundsson
vegna náms í Kennaraháskóla
Islands, Gunnar Guðmundsson
o.fl.v. könnunar á faraldsfræði
bandvefsmyndandi lungnasjúk-
dóma, Hanna Björg Sigurjónsdóttir
v. mastersnáms í uppeldis- og
kennslufræðum, sérgr. þroskaheftir
foreldrar, Heiðdís Jónsdóttir v.
háskólanáms í ítölsku
og íslensku, Hólm-
fríður Benediktsdóttir
v. tölvunáms, tengt
grafískri hönnun,
Hulda Guðmunds-
dóttir v. rannsókna á
högum fjölskyldna
langveikra bama, Ingi-
björg Auðunsdóttir
o.fl. v. rannsókna á
blöndun í skólastarfi,
Karl Marinósson v.
náms í fjölskyldumeð-
ferð v. endurhæfingar
barna með geðræn
vandamál, Kristbjörn
Guðmundsson v. náms í Tækni-
skóla Islands, Námsráðgjöf H.Í.,
Mikael M. Karlsson v. námsgagna-
kerfis fyrir fólk með dyslexíu,
Sigurlaug Sveinbjömsdóttir o.fl.v.
útgáfu fræðslubæklings um heila-
blóðfall og Systkinasmiðjan v.
námskeiða fyrir systkini fatlaðra.
s
Aeftir lýstu allir viðstaddir
styrkþegar verkefnum sínum
og/eða námi á ljósan og glöggan
hátt og tókst sú kynning einkar vel.
Að lokum voru allir kallaðir til
myndatöku og afrakstur hennar
m.a. sýndur hér með. Þetta var
einkar ánægjuleg athöfn, enn ein
staðfestingin á dýrmæti þessa sjóðs
fyrir svo marga fatlaða til náms svo
og til þeirra sem vinna í þeirra þágu
á svo margan veg, enda kom það
skýrt fram í þakkarræðum styrk-
hafa. Verðugri minningu er vel á
lofti haldið. H.S.
20