Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Síða 25
Endurhæfing
í Neskaupstað
Sem Austfirðingur af hug og
hjarta hlaut ég að staldra við
pistil í síðasta tölublaði Velferðar,
málgagns Landssamtaka hjarta-
sjúklinga, frá Birni Magnússyni
yfirlækni í Neskaupstað.
Þar greinir Björn frá endur-
hæfingu eða HL-þjálfun á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í Neskaupstað,
en hún hófst árið 1995. Björn
segir að síðan hafi tveir til þrír
hópar sjúklinga komið þangað
meðreglubundnumhætti. Mest-
megnis eru það hjartasjúklingar
en einnig lungnasjúklingar. Hóp-
urinn telur yfirleitt átta til tíu
manns og dvalartími á sjúkrahús-
inu er fimm til sex vikur. Hann
segir að þar sem Austurland sé
svo víðfeðmt verði að leggja
sjúklingana inn, þ.e. þeir fara þó
heim um helgar og þeir sem styst
eiga fara heim eftir þjálfun á degi
hverjum.
Markmiðið segir Björn vera
það að byggja skjólstæðingana
upp, þannig að þeir haldi áfram
þjálfun heima. Megináhersla er
lögð á þjálfun, slökun og félags-
lega afþreyingu. Varðandi það
Björn Magnússon
síðastnefnda nefnir Bjöm æfingar
í línudansi og iðkun listmálunar.
Ahersla er einnig lögð á fræðslu
um matargerð og mataræði.
Bjöm Magnússon segir að fyr-
irhugað sé að kaupa nýjan og
fullkominn búnað til þolprófana.
Undirtektir við það í fjórðungn-
um hafa ágætar verið. Hann segir
að endurhæfingin hafi notið mik-
illa vinsælda og færri komist að
en vildu og það veit ritstjóri að
eru orð að sönnu.
H.S.
Fjárhagsáætlun
Öryrkjabandalagsins
Astjómarfundi 18. mars sl. var
tekin fyrir og samþykkt fjár-
hagsáætlun bandalagsins fyrir árið í
ár. Heildartekjur frá Islenskri getspá
eru áætlaðar 132 millj. og þær skiptast
milli Öryrkjabandalagsins og
Hússjóðs í hlutföllunum 47.5% og
52.5%.
f tölum er hlutur bandalagsins því
62.7 millj.kr. Hæsti einstaki liðurinn
eru laun og launatengd gjöld eða
14.750 millj.kr. Styrkveitingar fylgja
þar fast eftir eða 14.7 millj.kr.
Atvinnumál fatlaðra - Glitskuldin -
tekur til sín 8.9 millj.kr. Fréttabréfið
kostar 6.8 millj.kr. enda fer það orðið
út í yfir 17 þús eintaka. Þá kemur
liðurinn: Auglýsingar og kynningar
með 3.7 millj.kr. VinnustaðirÖBÍ fá
3.3 millj.kr. Erlend samskipti taka til
sín 1.450 millj.kr. og aðkeypt þjónusta
og þá einkum lögfræðiþjónusta er
áætluð 1.3 millj.kr. Aðrar upphæðir
eru snöggtum lægri. Fjárhagsáætlun
er vissulega alfarið háð tekjunum frá
íslenskri getspá þar sem óvissuþáttur
um útkomu er auðvitað alltaf til staðar.
Fjárhagsáætlunin svo samþykkt á að
skila sínum rúmu þrem milljónum í
rekstrarafgang og þar litið ekki síst til
óvissunnar um íslenska getspá sem
áður er nefnd.
Áætlunin var samþykkt samhljóða
og á öðrum stað í blaðinu er getið um
skiptingu styrkupphæða.
H.S.
Hlerað í hornum
Rifjuð er upp lítil, Ijúf saga sem
Kristín okkar Jóns sagði ritstjóra einu
sinni, en hún á tvíburasystur sem
Þórhildur heitir. Hún var þá tveggja
ára að æfa sig við gang og vandaði
sig vel. Fyrir enda gönguleiðarinnar
var stór spegill. Sem nú Kristín lítur
upp og fram fyrir sig segir hún við
móður sína: “Nei, sjáðu mamma, hún
Þórhildur er komin.” Ekki þarf að
taka fram að á þeim tíma voru þær
tvíburasystur mjög líkar.
* * *
í blaðinu Degi má finna gnótt góðra
sagna. Þar sagði frá íslenskri stúlku
sem fór til Jerúsalem og fékk
hótelherbergi með góðu útsýni til
Grátmúrsins fræga.
Henni varð löngum starsýnt á
aldraðan mann sem kom þangað
þrisvar á dag og baðst fyrir. Hún fór
að Grátmúrnum og hitti þann aldraða
og spurði um þennan sið hans. Hann
sagðist hafa beðist þarna fyrir í 25 ár,
beðið fyrir friði í heiminum, að allir
sjúkdómar hyrfu, að allt yrði til
blessunar o.s.frv. “Og hvernig hefur
þetta svo reynstþér?”, spurði stúlkan.
Þá sagði sá aldraði: “Biddu fyrir þér.
Þetta er eins og að tala við stein”.
* * *
Öldruð kona beið og beið við gang-
stéttarbrún andspænis gönguljósum.
Kaupmaðurinn í búðinni rétt hjá
fylgdist með en gat svo ekki stillt sig
um að fara á vettvang og spyrja kon-
una hvers vegna hún færi ekki yfir.
Þá sagði sú aldraða: “Ja, græni karl-
inn er búinn að koma og ég veit ekki
hvað oft en það bólar ekkert á grænu
konunni svo ég komist yfir.”
+++
Æskuvinirnir hittust og voru að rilja
upp og reyna að muna og annar sagði
við hinn: “Heyrðu, manstu eftir henni
Siggu Ijóshærðu, sem allir strákarnir
voru svo skotnir í og nú segir
almannarómur að hún sé bara hrein
mey. Heyrðu, Gunni varst þú ekki
með henni Siggu í gamla daga?” “Jú,
en það var löngu áður en hún varð
hrein mey.”
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
25