Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Qupperneq 26

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Qupperneq 26
Benedikt E. Benediktsson, formaður Málbjargar: s Iþessari grein verður fjallað í stuttu máli um Málbjörg, félag um stam. Ekki verður farið inn á skýringar á því hvað stam er og hvers vegna fólk stamar. Það bíður betri tíma. Aðdragandi Það var árið 1991 að undirritaður fór að velta fyrir sér möguleikanum á því að setja saman einhvers konar félagsskap þeirra sem stama. Það kom reyndar í ljós aðaðrir höfðulíka gengið með þessa hugmynd. Með blaða- og útvarps- viðtölum, ásamt því að hafa sam- “"“ band við fólk, tókst að ná saman nokkrum hópi sem fór að huga að stofnun félags. Þegar hópurinn fór að hittast til að undirbúa stofnfund kom í ljós að það var mikil þörf fyrir einmitt svona fundi, því að fólk þurfti mikið að tala. Margir þurftu að tala um sína reynslu og var mætt með skilningi þeirra sem sjálfir hafa upplifað það sama. Benedikt E. Benediktsson Stofnun Stofnfundurinn var haldinn þann 10. október 1991. Samþykkt voru lög fyrir félagið sem drög höfðu verið gerð að, aðallega með hjálp Arnþórs Helgasonar, þáverandi formanns Öryrkjabandalagsins, sem mætti á fundinn og miðlaði af sinni reynslu. Arnþór átti hugmyndina að nafni félagsins. 1 lögunum sem samþykkt voru á stofnfundinum eru m.a mark- mið félagsins, sem eru: Að gefa þeim sem stama mögu- leikaáað hjálpa hveröðrum með því að ræða saman í góðu um- hverfi og skiptast á skoðunum og reynslu. Að standa vörð um hagsmuni þeirra sem stama gagnvart yfir- völdum, skólum og atvinnulífi. Að auka þekkingu þeirra sem stama og annarra á stami, vanda- Málbjörg, félag um stam málum þeirra sem stama og með- ferðum við stami. Stofnfundurinn tókst vel, þar mættu um 30 manns og var góð byrjun á starfi félagsins. Starf félagsins Að loknum stofnfundi var nánast sjálfgefið að aðalatriðið í starfsemi þess væru fundir þar sem fólk sem stamar kæmi saman og ræddi sín mál, s.k. sjálfshjálparhópur. A þetta var aðaláherslan lögð fyrsta veturinn. Þá var tekið að huga að fræðslumálum og það fyrsta sem gert var í þá veru var námskeið í framsögn í samvinnu við JC Reykjavík. Þetta námskeið heppnaðist mjög vel og var mjög skemmtilegt og gefandi fyrir þá sem það sóttu. Fljótlega var farið að huga að útgáfu fréttabréfs. Málpípan heitir fréttabréfið og hefur komið út nokkr- um sinnum á ári eftir þörfum. Þar er sagt frá því helsta sem er að gerast á vegum félagsins og sagt frá þeim fundum og öðru sem er á döfinni. Annan veturinn var lögð áhersla á opna fræðslufundi fyrir almenning um stam barna, um stam og fælni, um öndun, framsögn og fleira. Fundimir voru vel sóttir. Einn veturinn vann hópur að verk- efni sem kallaðist „Stutter free speech”, þar sem unnið var eftir sænskum hugmyndum um meðhöndl- un á stami og svo mætti lengi telja. Eftir þessi fyrstu ár hefur starfið þróast meira í þá átt að unnið er að ákveðnum verkefnum. Almennum félagsfundum hefur fækkað, því erfitt hefur reynst að fá fólk til að koma á slíka fundi. í félagsstarfi er oft erfitt að virkja fólk og það á við um þá sem stama í enn frekari mæli. Þegar fólk hefur alla tíð lagt sig fram um að fela þá staðreynd að það stamar, er skilj- anlegt að fundir með stam sem aðal- málefnið séu e.t.v. ekki mjög freistandi. Félagið gerði átak í útgáfumálum og gaf út tvo bæklinga um stam, annan fyrir foreldra bama sem stama og hinn fyrir kennara og aðra þá sem vinna með börn sem stama. Þessum bæklingum var dreift í alla gmnnskóla landsins, leikskóla á höfuðborgar- svæðinu og til flestra heilsugæslu- stöðva á landinu. Við leggjum áherslu á börnin, því á síðustu árum hefur verið sýnt fram á að því fyrr sem tekið er á stami hjá barni, þeim mun meiri líkur eru á því að hægt sé að koma í veg fyrir að stamið verði það vanda- mál sem það hefði annars orðið. Eins Frá aðalfundi ÖBÍ þar sem Málbjörg fékk inngöngu. 26

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.