Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Side 29
útvarpslögumnr. 68/1985. íútvarps-
lögum er kveðið á um skyldur Ríkis-
útvarpsins til að halda í heiðri lýð-
ræðislegar grundvallarreglur mann-
réttinda og frelsi til orðs og skoðana.
Jafnframt er Ríkisútvarpinu gert með
lögum að miða útvarpsefni við fjöl-
breytni íslensks þjóðlífs og veita þá
þjónustu sem unnt er með tækni og
þjóðinni má að gagni koma. I dómi
Hæstaréttar kemur fram að þar sem
Ríkisútvarpinu er falið með lögum að
vera vettvangur frjálsra skoðanaskipta
geti þeim verið rétt að kynna þá kosti
sem eru í boði fyrir alþingiskosningar
og verði því að gæta jafnræðis ekki
aðeins milli þeirra stjómmálaafla sem
bjóða sig fram heldur einnig að þeim
sem útsendingunni er beint til. Þannig
beri Ríkissjónvarpinu að sjá til þess
að útsending framboðsumræðna sé
einnig aðgengileg heymarlausum. Er
hér einnig vitnað í 7 gr. laga um mál-
efni fatlaðra um að fatlaðir skuli eiga
rétt á almennri þjónustu ríkis og sveit-
arfélaga.
Það sem vekur mikla athygli í
dómi Hæstaréttar er hversu Mann-
réttindasáttmála Evrópu er gert hátt
undir höfði.
✓
Idómsorði segir m.a.: “Það er
óaðskiljanlegur þáttur kosninga-
réttar að sá, sem réttarins nýtur hafi
tœkifœri til að kynna sér framboð og
málefni, sem kosið er um, enda myndi
sá réttur einstaklinganna, sem vernd-
aður er í 3. gr.l. viðauka mannrétt-
indasáttmála Evrópu, missa efiiislegt
inntak ef frambjóðendum væru ekki
tœkar leiðir til kynningar á stefnu-
málum sínum eða kjósendum gert
ókleift eða torvelt að nálgast slíkar
upplýsingar”. Hér eru mörkuð þátta-
skil í málefnum heyrnarlausra í
Evrópu og hefur þessi dómur mik-
ilvægt fordæmisgildi fyrir félaga okk-
ar víðsvegar um Evrópu sem standa í
sömu baráttu og heyrnarlausir á
Islandi.
Evrópuþingið hefur nýlega í
ályktun sinni frá 18. nóvember 1998
farið fram á að framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins kanni möguleik-
ann á að rikisreknum sjónvarpsstöðv-
um innan aðildarríkja Evrópusam-
bandsins verði gert skylt með laga-
ákvæði að túlka sjónvarpsefni yfir á
táknmál. Er lögð áhersla á að tákn-
málstúlka fréttatengt efni, sjónvarps-
efni tengt stjómmálum og sér í lagi
sjónvarpsefni tengt kosningum.
Dómur Hæstaréttar kemur því á afar
mikilvægum tíma í réttindabaráttu
heyrnarlausra í Evrópu og kemur
Félagi heymarlausra á Islandi á lista
sem brautryðjendum í þessu mikil-
væga réttindamáli.
Með dómi Hæstaréttar er stigið
mikilvægt skref í réttinda-
baráttu heyrnarlausra á Islandi. I
fyrsta sinn á Islandi gafst heyrnar-
lausum tækifæri til að fylgjast með
umræðuþætti leiðtoga stjórnmála-
flokkanna í sjónvarpinu 7. maí sl.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa og
hefur fjöldi fólks lýst yflr ánægju sinni
með þetta mikilvæga skref.
í alltof langan tíma hafa heyrnar-
lausir verið útilokaðir frá þjóðmála-
umræðum og umfjöllun um málefni
líðandi stundar. Með dómi Hæsta-
réttar er það viðurkennt að heymar-
lausir eigi að njóta sömu lýðræðis-
réttinda og aðrir Islendingar þ.e. að
geta fylgst með stjómmálaumræðu og
þannig myndað sér skoðun á lýðræð-
islegan hátt líkt og aðrir landsmenn.
Dómur Hæstaréttar markar tímamót í
sögu heyrnarlausra og er upphafið að
betra aðgengi heyrnarlausra í íslensku
upplýsingasamfélagi.
Hafdís Gísladóttir
framkvæmdastjóri
Félags heyrnarlausra
6 félög ÖBÍ á sama stað
Iframhaldi af ágætri heimsókn okkar Guðríðar Ólafsdóttur í þjón-
ustusetrið væna að Tryggvagötu 26 þá þykir einnig rétt að minna
sérstaklega hér á til glöggvunar fyrir það fólk sem þangað þarf að leita og
það munu ugglaust margir.
Félögin sem í þjónustusetrinu eiga samastað eru:
Félag nýrnasjúkra
LAUF - Landssamtök áhugafólks um flogaveiki
Parkinson samtökin
Samtök sykursjúkra
Tourette samtökin
Umsjónarfélag einhverfra
í frásögn af heimsókn okkar hér í blaðinu er glögglega greint frá því
hvenær opið er hjá hverju félagi fyrir sig og ekki ástæða til að endurtaka
það hér. Enn og aftur eru félögunum sendar hamingjuóskir með sitt
vistlega setur.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJAB ANDALAGSINS
29