Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Síða 33
HEILBRIGÐISÞING 1999
Hinn 25. mars sl. var heilbrigðisþing 1999
haldið í Tónlistarhúsinu í Kópavogi. Yfir-
skriftin var: Framtíðarsýn í heilbrigðis-
málum. Heilbrigðisáætlun til ársins 2000. Ekki verður
hér grein gjörð fyrir efni þeirra fjölmörgu fyrirlestra
sem fluttir voru, en óhætt að segja að mjög vel hafði
til þeirra verið vandað og á hinum ýmsu þáttum tekið.
Heilbrigðisáætlunin sjálf er býsna þykk bók, full
af fyrirheitum góðum en á þeim grunni sem sannarlega
er ágætur á að byggja.
Rétt skal veita lesendum innsýn í heiti fyrirlestra
og fyrirlesara en þess getið að útdráttur erindanna er
hér á skrifstofu Öryrkjabandalagsins ef einhver vildi
kynna sér efnið frekar.
Þingið hófst með ávörpum heilbrigðisráðherra,
Ingibjargar Pálmadóttur og Davíðs A. Gunnarssonar
ráðuneytisstjóra sem svaraði spurningunni: Hvers
vegna heilbrigðisáætlun?
Þá voru forsendur nánar kynntar af Vilborgu
Ingólfsdóttur yfirhjúkrunarfræðingi: Heilbrigði allra
á 21. öldinni og Evrópuáætlun WHO: Heilsa 21- og
IngimarEinarssyni skrifstofustjóra: Islenskheilbrigð-
isáætlun til 2005.
Þá voru flutt erindi undir yfirskriftinni: Meginþættir
heilbrigðisáætlana.
A. Samábyrgð og jafnræði til heilsu þar sem Ólafur
Hergill Oddsson héraðslæknir fjallaði um:
Aðgengi, jöfnuð og þörf fyrir þjónustu og Þórður
Helgason verkfræðingur um: Heilbrigðistækni,
stuðning við uppbyggingu heilbrigðisþjónustu í
nútíð og framtíð.
B. Bætt heilsufar þar sem Matthías Halldórsson
aðstoðarlandlæknir var með erindi er hann nefndi:
Börn, heilbrigði og þjóðfélag og Pálmi V. Jónsson
öldrunarlæknir með erindið: Góð heilsa á efri
árum.
C. Forvamirog heilsuvernd. ÞartalaðiTómasZoéga
geðlæknir um: Stefnumörkun í geðheilbrigðis-
málum og Ragnheiður Haraldsdóttir skrifstofustjóri
um: Samhæfingu forvama.
D. Þverfaglegar aðgerðir. Afengis - fíkniefna- og
tóbaksvarnir hét erindi Þorgerðar Ragnarsdóttur
framkvæmdastjóra og Heilsuefling nefndist erindi
Önnu Bjargar Aradóttur hjúkrunarfræðings.
E. Arangursrík heilbrigðisþjónusta. Guðrún Högna-
dóttir rekstrarráðgjafi fjallaði um: Gæði og fram-
þróun, Magnús Pétursson forstjóri um: Starfs-
mannastefnu og Margrét Oddsdóttir skurðlæknir
um: Menntun heilbrigðisstétta, en hún var reyndar
úti í Texas en birtist okkur og talaði við okkur á
skjá enda tækninni fátt ómáttugt.
F. Rannsóknir, samstarf og verkáætlanir. Þar talaði
Guðmundur Þorgeirsson læknir um: Rannsóknir
ÁÆtlait*- og þrótuunkrihmla
vinjtu/isadrít ia wk
Drög' að
heilbrigðisAætlun
til ársins 2005
Lingtinunurkmul I hBÍlhrljfrtUmilum
HeUbrigói&> og; rryg-giingdrniil.iriðuneytíð
Reykjavík 1999
Forsíða heilbrigðisáætlunar. Drög.
og vísindastarfsemi og Baldur Johnsen tölvun-
arfræðingur um: Upplýsingavæðingu.
Síðasti hluti þingsins var svo með yfirskriftina:
Framtíðarskipulag. Þar fluttu erindi: Sigríður Snæ-
björnsdóttir hjúkrunarforstjóri: Þjónusta sjúkrahúsa;
Stefán Þórarinsson héraðslæknir: Heilsugæsla og heil-
brigðisþjónusta á landsbyggðinni og Lúðvík Ólafsson
héraðslæknir: Heilsugæsla og sérgreinaþjónusta í
þéttbýli.
Allnokkrar almennar umræður urðu og inn í þá
umræðu kom kjaraþátturinn, hversu miklu skipti
varðandi heilsufar og öryggi fólks að fá búið við unandi
kjör. Við hér í Öryrkjabandalaginu höfum oftlega í
kjarabaráttu öryrkja lagt áherslu á það hversu viðvar-
andi bágur efnahagur og óvissa um afkomuna dag
hvem hefði hræðileg áhrif oft og tíðum á heilsufar fólks
með tilheyrandi heilsu- og hamingjuleysi svo alltof
margra og um leið viðbótarkostnaði fyrir samfélagið.
Mér þótti vænt um að heyra það fólk sem helst kem-
ur hér að og besta hefur yfirsýnina nefna bág kjör og
aðstöðu alla í framhaldi af því sem hrein heilbrigðis-
vandamál með ófyrirsjáanlegum ömurlegum afleiðing-
um og þá vonandi að því unnið að úr verði bætt.
Mikill fjöldi fólks sótti þing þetta m.a. margt af fólki
frá félögum Öryrkjabandalagsins. Var gott að njóta
yfirgripsmikils fróðleiks sem eins og áður er sagt er
hér til staðar í útdrætti ef einhver skyldi vilja fá frekari
fróðleiks notið.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
33