Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Síða 35
(therapist), umsjónarþjálfari (senior
therapist) og ráðgjafi (clinic supervi-
sor).
Námsferlið hófst á því að við
tengdumst þjálfun barna sem njóta
atferlismeðferðar í íslensku rannsókn-
inni, sem var undirbúningur fyrir dvöl
í Noregi. Þegar þangað kom tók við
þjálfun barna sem njóta þjálfunar í
norsku rannsókninni. Þar fengum við
ráðgjöf frá norskum ráðgjöfum sem
allir eru þroskaþjálfar og starfa við
Glenne Senter í Vestfold. Glenne
Senter er hluti af Habiliteringstjen-
esten í Vestfold og sinnir fólki með
einhverfu og alvarlegar atferlistrufl-
anir. Þessi hluti tók fimm og hálfan
mánuð, þar af þrír mánuðir í Noregi.
Eftir þennan áfanga höfðurn við
það verkefni að þjálfa börn hér heima,
taka þátt í námskeiðum með Sigríði
Lóu sem haldin eru við upphaf þjálf-
unar hjá börnum sem hefja þátttöku í
rannsókninni, ásamt því að koma að
þjálfun nýrra þjálfara, samtals þrír
mánuðir.
Síðasti hluti námsins hófst í Nor-
egi þar sem við fengum þjálfun, ráð-
gjöf og fræðslu frá kollegum okkar á
Glenne Senter, samtals tveir mánuðir.
Nú um áramótin byrjuðum við að
starfa sem ráðgjafar í IYAP og sinnir
hvor um sig ráðgjöf vegna meðferðar
tveggja bama.
A námstímanum er gerð krafa um
lestur bóka og fræðigreina tengda við-
fangsefninu. Náminu lýkur með
gæðamati og prófi í fræðilegri þekk-
ingu. Gerterráðfyrirþvíaðnámslok
verði 1. júlí næst komandi en tengsl-
um okkar við IYAP lýkur formlega
árið 2000.
Lokaorð:
Markmið með námi sem þessu er
að byggja upp þekkingu sem nýtist í
ráðgjafarþjónustu fyrir börn með
einhverfu og fjölskyldur þeirra.
Þekking sem mun ótvírætt styrkja
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
til að rækja hið aukna þjónustuhlut-
verk sem stofnuninni hefur verið falið,
ásamt því að styrkja okkur sem fag-
menn. Áhugi á atferlismeðferð hefur
verið vaxandi að undanfömu sem birt-
ist meðal annars í áhuga foreldra og
hagsmunasamtaka.
Lykill að bættri þjónustu fyrir böm
með einhverfu og fjölskyldur þeirra
er fræðsla og þekking.
Þakkir:
Umsjónarfélag einhverfra, Grein-
ingar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Sjóð-
ur Odds Olafssonar, Námssjóður
Sigríðar Jónsdóttur, Minningarsjóður
Guðnýjar Ellu Sigurðardóttur, For-
eldra og styrktarfélag Greiningar-
stöðvar, Sigríður Lóa Jónsdóttir, sál-
fræðingur, Evald Sæmundsen, sviðs-
stjóri sviðs 4, Stefán J. Hreiðarsson,
forstöðumaður GRR, Ásgeir Sig-
urgestsson, framkvæmdastjóri GRR,
Ástrós Sverrisdóttir, formaður UE,
börn, foreldrar og þjálfarar sem eru
þátttakendur í IYAP.
Heimildir:
Evald Sæmundsen (1997), Far-
aldsfræði og algengi einhverfu á
íslandi. Umsjón, bls 15-17,
Reykjavík ; Umsjónarfélag ein-
hverfra.
Sigríður Lóa Jónsdóttir(1997),
Atferlismeðferð barna með ein-
hverfu - Hagnýt atriði. Umsjón,
bls 34-37, Reykjavík; Umsjónar-
félag einhverfra.
Lovaas,0. 1(1987) Behavioral
treatment and normal educational
and intellectual functioning in
young autistic children. Journal of
Consulting and Clinical Psychol-
ogy-
Agnes Elídóttir
Guðný Stefánsdóttir
Urskurðarnefnd
í ágreiningsmálum
hjáTR
Rétt í lok þessa síðasta þings á kjörtímabilinu fór í gegn breyting á
lögum um almannatryggingar sem til ýmissa þátta tók en megin-
atriðið fólst þó í því að kvartana- og kærumál vegna afgreiðslu
Tryggingastofnunar ríkisins fara nú fyrir sérstaka, óháða úrskurðamefnd.
Áður hefur það verið tryggingaráð sem tekið hefur slík mál til
afgreiðslu og úrskurðar og það þekkir ritstjóri af eigin raun, að þar var
reynt að meta mál og vega af sanngirni, en vissulega má það til sanns
vegar færa að ráð sem fara á með stjórn stofnunar sé ekki nógu vel bært
að úrskurða í málurn þeirrar sömu stofnunar og viðskiptavina hennar.
Alla vega fer ekki á milli mála að réttaröryggi ætti að vera býsna vel
tryggt með slíkri sjálfstæðri úrskurðarnefnd. I frumvarpinu eins og
það var lagt fyrir Alþingi var gjört ráð fyrir því að nefndarmenn yrðu
skipaðir af ráðherra án tilnefninga. Öryrkjabandalagið lagði til að
ákveðnir aðilar s.s. Hæstiréttur tilnefndi nefndarmenn og niðurstaðan
sú að Alþingi kom myndarlega til móts við okkar sjónarmið í þessu
efni og ber að fagna því. Þannig skal Hæstiréttur nú tilnefna bæði
formann og varaformann. Skal formaður vera með réttindi
héraðsdómara en varaformaður læknir. Þriðja manninn tilnefnir svo
ráðherra og er vonandi að þar komi að góður fulltrúi þess fólks sem til
nefndarinnar þarf að sækja, svo fólk fái enn meiri trú á því sem nefndin
fæst við, enda trú mín að þarna verði valinn maður í hverju rúmi.
Þessi nýsamþykkta skipan gengur í gildi 1. júlí nk. og von okkar sú
að til heilla verði og nokkurra hagsbóta fyrir það fólk sem þykir það
órétti beitt á einhvern veg af hálfu þessarar viðamiklu og víðfeðmu
stofnunar.
Okkar sannfæring hins vegar sú að í yfirgnæfandi fjölda mála er af
starfsfólki haldið af sanngirni, lipurð og réttsýni, en minnast skulu menn
þess að þessu ágæta starfsfólki eru ákveðnar reglur settar sem þetta
fólk ber ekki neina ábyrgð á en verður eftir að fara.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
35