Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Qupperneq 45
s
Sjónstöðvar Islands
Sjónstöð íslands - þjónustu- og
endurhæfingarmiðstöð sjónskertra -
hefur gefið út vel gerðan bækling um
þá þjónustu sem veitt er á stöðinni.
Ljómandi myndir prýða þennan snotra
bækling.
Bæklingnum er skipt í afmarkaða
þætti: Augnskoðanir til að greina
augnsjúkdóma, mat á getu, horfum,
eðli og meðferðarúrræðum. Félags-
ráðgjöf sniðin að þörfum blindra og
sjónskertra. Metin þörf og hæfni sjón-
skertra fyrir sjónhjálpartæki. Þjálfun
veitt í notkun slíkra tækja svo og unnið
að sjónörvun mjög sjónskertra barna.
Smíði gerviaugna og augnskelja.
Þjálfun í athöfnum daglegs lífs,
kennsla í notkun hvíta stafsins, kennsla
fyrir aðstandendur og aðra í umgengni
við blinda og sjónskerta.
Sjónstöð Islands heyrir undir heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytið og
starfar skv. sérstökum lögum. Þeir sem
hafa minni sjón en 30% eiga rétt á
þjónustu. Tilvísun frá augnlækni er
skilyrði fyrir fyrstu komu.
A Sjónstöð starfa: Augnlæknir,
félagsráðgj afi, sjóntækj afræði ngur,
sjónþjálfi, ADL- og umferliskennari,
augnsmiður og ritarar. Sjónstöðin er
til húsa að Hamrahlíð 17 Reykjavík, í
húsnæði Blindrafélagsins. Hún er opin
mánudaga - föstudaga frá kl. 9-16.
Glöggum bæklingi er vel fagnað.
H.S.
Framkvæmdastjóraskipti
✓
hjá Islenskri getspá
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson sem verið
hefur framkvæmdastjóri Islenskrar
getspár frá upphafi hefur nú að eigin
ósk látið þar af störfum. Við starfi
hans tekur Bergsveinn Sampsted sem
hafði áður starfað um hríð hjá
Islenskri getspá. Nánar verður fjallað
um þessi skipti í haustblaðinu.
Halldór Kristjánsson:
Að bera aldurinn
Höfundi láðist að senda gamalli vinkonu kveðju á stórafmæli
hennar en sendi henni eftirfarandi hugleiðingar þegar hann hafði
áttað sig. Nú er þetta birt í trausti þess að það hafi að einhverju leyti
almennt gildi þegar ástæður verða svipaðar.
Ég átt hefði að geta þinn afmælisdag munað
því ýmiskonar forsendur styðja það í senn,
en þetta er því líkast sem mig gæti ekki grunað
að gömul yrðir þú eins og venjulegir menn.
En um þá fornu staðreynd er engin þörf að skrifa,
þau örlög ráða lífinu meðan jörðin snýst,
þeir hljóta að verða gamlir sem lofað er að lifa
svo Ijóst og einfalt er það og hrakið verður síst.
Og lítt er þörf að kvarta þó árin færist yfir,
og ellimörkin verði þá fleiri í dag en gær
á meðan brjóstið hrærist og í gömlum glæðum lifir
og gaman þykir að því sem nýrra vex og grær.
Og margt er hægt að þola þó andstætt gangi yfir
og illt að verða samstíga fjöldanum í dag
á meðan glóðin forna frá æskuárum lifir
og ylur þeirra kennda sem þá glæddu bræðralag.
Og hér er ekki nauðsyn að rekja eða ræða
og rifja upp gamlar sögur um fyrri daga hátt
en enn við skulum njóta þess sem ísinn kann að bræða
og okkur hjálpar til þess að ná við lífið sátt.
En mælgin verður óþörf þegar mestu er frá að segja
þó margt sé gott að vita um fyrri spor og stig
og samkvæmt því er heilrætt að hætta nú og þegja
með heillaósk vegna afmælis og þakkir fyrir mig.
Halldór Kristjánsson
frá Kirkjubóli.
Hinn aldni þulur Halldór vinur minn, löngum við Kirkjuból kenndur,
sendi mér þetta ágæta afmælisljóð. Og eitt er víst, það eru engin
ellimörk þar á frekar en öðru er frá honum kemur. Kærar þakkir.
Ritstjóri.
fréttabréf ÖRYRKJABANDALAGSINS
45