Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Síða 56
,,ÖII veröldin er leiksvið og aðeins leikarar hver karl og kona”
-William Shakespeare.
a a eikhópurinn
wvw.islandia.is/—jonei/halinn
HÁTÚN 12-105 REYKJAVÍK - SÍMI 552 9188
Halaleikliópurinii var stoliiaður 27.
september 1992 með þíið að niarkmiði
að „iðka leiklist lyrir alla” og' liefur
starfað óslitið síðan.
Á þessum sjö árum sem liðin eru frá stofnun
Halaleikhópsins, hafa verið settar upp sýningar
á hverju ári
og hafa þær jafnan vakið athygli.
Fyrsta sýning hópsins var „Aurasálin"
eftir Moliere og aðrar fylgdu í kjölfarið.
Af þeim sýningum má nefna, „Allra meina bót“
eftir þá Jón Múla og Jónas Árnasyni,
„Gullna hliðið" eftir Davíð Stefánsson,
„Túskildingsóperuna“ eftir Berthold Brecht og
svo í lokin má ekki gleyma „perlunni" okkar, leikritinu
„Rómeó og Ingibjörg" eftir Þorstein Guðmundsson.
„Rómeó og Ingibjörg" var sérstaklega
skrifað fyrir hópinn og naut mikilla vinsælda.
Óhætt er að segja að Halaleikhópurinn hafi opnað
nýja vídd í starfi leikhópa hér á landi, því í honum er
fengist við leiklist á forsendum hvers og eins.
Um leið hefur hópurinn opnað augu margra fyrir því að
fatlað fólk getur einnig, þrátt fyrir ýmsar hindranir, leikið
á sviði eins og aðrir.
Þar með hefur hópurinn á sinn hátt, eytt fordómum
í garð fatlaðra. Fötlun skiptir engu máli í þessu
áhugaleikfélagi.
Nú nýlega sýndi hópurinn barnaleikritið „Trúðaskólann"
eftir Friedrich Karl Waechter
í leikstjórn Elfars Loga Hannessonar.