Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Page 49
AÐALFUNDUR ÖRYRKJA-
BANDALAGS ÍSLANDS
Hinn 6. nóv. 1999 var haldinn
þrítugasti og sjöundi aðal-
fundur Öryrkjabandalags-
ins. Hófst hann kl. 9.30 árdegis og
var í Borgartúni 6. Formaður banda-
lagsins Haukur Þórðarson setti
fundinn með stuttu ávarpi og bauð
menn velkomna.
Fundinn munu hafa sótt 64 full-
trúar og 13 starfsmenn og gestir.
Fundarstjórar voru kjörnir Þórir
Þorvarðarson og Sigríður Kristins-
dóttir, en fundarritarar voru þau
Helgi Hróðmarsson og Kristín Jóns-
dóttir. Eins og á síðasta aðalfundi
höfðu skýrslur verið sendar tíman-
lega út til allra fulltrúa þ.e. skýrsla
formanns, framkvæmdastjóra,
skýrsla fulltrúa um samstarfsverk-
efni og erlend samskipti, skýrsla
lögfræðiþjónustu ÖBÍ, skýrsla
Hringsjár- starfsþjálfunar fatlaðra,
skýrsla Hússjóðs og skýrsla
Vinnustaða ÖBÍ. Sömuleiðis yfirlit
frá nefndum: atvinnumálanefnd,
félagsmálanefnd, kjaramálanefnd og
menntamálanefnd svo og sam-
stæðureikningar. Haukur Þórðarson
formaður ÖBÍ kom í skýrslu sinni
inn á tvo merkisdaga í desember á
liðnu ári: Dag fatlaðra 3. des. og 50
ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar
S.Þ. 10. des. Hann gat um sam-
stöðuhátíð í Reykjanesbæ, áform um
alþjóðlega ráðstefnu á íslandi, sam-
ráð ÖBÍ við Félag eldri borgara í
Reykjavík og Landsamband eldri
borgara. Og heimsókn Johan
Weseman. Þá minnti hann á úthlutun
úr Sjóði Odds Ólafssonar, breytingar
á bifreiðakaupastyrkjum til hreyfi-
hamlaðra, breyttar reglur um örorku-
mat og úrskurðarnefnd um almanna-
tryggingar. Allt eru þetta mál áður
kynnt hér.
Hann lagði út af þrem atriðum í
máli sínu: Tekjulind banda-
lagsins af lottófé sem gjörði banda-
laginu ijárhagslega kleift að heyja
baráttu sína.
Yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki
til sveitarfélaga sem um ríkti nú
mikil óvissa en yrði eitt meginmál
næsta starfsárs og að síðustu und-
irstrikaði Haukur nauðsyn þess að
bandalagið rækti vel hin erlendu sam-
skipti svo þýðingarmikil sem þau
væru. Lokaorð Hauks voru: “Við
sem búum á eylandi langt frá öðrum
löndum verðum að halda uppi sam-
skiptunum við aðrar þjóðir eða
hverfa ella inn í gráma einangrunar-
innar.”
í skýrslu Helga Seljan fram-
kvæmdastjóra var minnt á hina miklu
einstaklingsfyrirgreiðslu er bandalag-
ið veitti. Hann rakti samskipti við
Alþingi og stjórnvöld, yfirfærslu
málefna fatlaðra, fréttabréfið og
útbreiðslu þess sem gagnsemi, sagði
frá úthlutun Námssjóðs Sigríðar
Jónsdóttur og nýmælum ársins s.s.
djáknaþjónustu og sumarbústaða-
málum.
Iskýrslu Helga Hróðmarssonar full-
trúa minnti hann á reiðnámskeiðin
(nú yfir veturinn einnig), útilífs-
skólann og samstarf við ITR vegna
fatlaðra ungmenna. Hann minnti á
handbók um ferlimál, nefnd um
félagsmál þar sem hann átti sæti f.h.
ÖBÍ, hjálpartækjasýningu á næsta ári
og fræðslu til verðandi djákna s.s.
undanfarin ár. Fleira var í skýrslu
hans. Helgi var einnig með hinar
fróðlegustu upplýsingar um þátttöku
ÖBI í erlendu samstarfi sem er einkar
mikil. Svo aðeins sé að skammstöf-
unum vikið þá eru þetta: HNR, RI,
NFR, NSH, NHPR, MI, EDF og
HKIN en alls staðar þar á vettvangi
eru fulltrúar frá ÖBÍ.
Svo er bara að ráða í skammstaf-
anirnar miðað við þann mikla fróð-
leik hér um sem Helgi hefur áður
miðlað lesendum. I skýrslu Jóhann-
esar Alberts Sævarssonar lögfræð-
ings kom fram að milli aðalfúnda
hefðu 285 komið í viðtöl hjá lög-
fræðiþjónustunni auk símtala.
Jóhannes Albert minnti á mál hjá
umboðsmanni Alþingis vegna lækk-
unar mats úr 75% í 65% hjá ungri
konu vegna náms hennar en úr-
skurður umboðsmanns gekk konunni
í vil.
Jóhannes Albert fagnaði einnig
hinni nýju úrskurðarnefnd almanna-
trygginga. Fjölbreytni mála hjá
lögfræðiþjónustunni er afar mikil.
í skýrslu Guðrúnar Hannesdóttur
fyrir Hringsjá- starfsþjálfun fatlaðra
var minnt á þjónustusamningana við
félagsmálaráðuneyti og Trygginga-
stofnun ríkisins.
Við nám eru nú 76 nemendur,
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
49